Bændablaðið - 28.03.2006, Blaðsíða 33
33Þriðjudagur 28. mars 2006
Fóðurblandan hefur hafið
innflutning á Acetona Synergi
frá Finnska fóðurfyrirtækinu
Suomen Rehu. Þetta sérfóður
hefur slegið rækilega í gegn
í Danmörku.
Því er ætlað að auka nyt kúnna og
frjósemi og koma í veg fyrir súrdoða
og júgurbólgu. Fyrst í stað verður
Acetona flutt inn í 20 kg sekkjum en
fæst auk þess í 600 kg sekkjum sem
og í fljótandi formi.
Acetona Synergi fóðrast beint
eða blandað við annað fóður.
Nánari upplýsingar
á www.fodur.is
Sími: 570 9800Hlíðarvegi 2-4 Hvolsvelli Fax: 570 9801 www.fodur.isKorngörðum 12 Reykjavík Austurvegi 69 Selfossi Bústólpi Akureyri
Acetona Synergy = sérfóður
Eykur heilbrigði og nyt
Fyrir skömmu var undirritaður
samningur Landsbankans og
Norðlenska sem felur í sér endur-
fjármögnun Landsbankans á
birgða- og rekstrarlánum Norð-
lenska. Einnig kveður samningur-
inn á um fjármögnun á nýbygg-
ingu Norðlenska á Akureyri, þar
sem starfsmannaaðstaða og skrif-
stofur félagsins verða.
Höfum mikla trú á Norðlenska
„Mikil umskipti hafa orðið í
rekstri Norðlenska síðustu misseri
sem aukið hefur styrk og getu fé-
lagsins. Við í Landsbankanum
höfum mikla trú á því sem Norð-
lenska er og hefur verið að gera og
ekki síður á framtíðaráformum fé-
lagsins. Það er okkur Landsbanka-
mönnum því ánægjuefni að taka
þátt í uppbyggingu Norðlenska
með endurfjármögnun, sem von-
andi er til þess fallin að styrkja fé-
lagið enn frekar,“ segir Helgi Teit-
ur Helgason, útibússtjóri Lands-
bankans á Akureyri.
Viðsnúningur í rekstri
„Í mínum huga er það skref sem
Landsbankinn stígur með endur-
fjármögnun Norðlenska mjög af-
gerandi. Ég tel að þetta sé til
marks um að fyrirtækið hafi upp-
fyllt væntingar Landsbankans
varðandi rekstur og bankinn hafi
trú á framtíðaráætlunum okkar og
vilji styðja við áframhaldandi
vöxt og sókn. Rekstrarviðsnún-
ingur fyrirtækisins á síðustu miss-
erum og árum er ekki síst frábæru
starfsfólki félagsins að þakka og
það er því ánægjulegt að sjá fram
á að geta bætt starfsmannastöðuna
með nýju húsnæði hér á Akur-
eyri,“ segir Sigmundur E. Ófeigs-
son, framkvæmdastjóri Norð-
lenska.
Norðlenska er stærsti slátur-
leyfishafi landsins og hefur jafnt
og þétt verið að styrkja stöðu sína
á kjötmarkaði. Verulegur viðsnún-
ingur hefur orðið í rekstri félags-
ins á undanförnum árum og er
ljóst að rekstur ársins 2005 skilar
hagnaði.
Heildarmagn kjöts úr slátrun
hjá Norðlenska á síðastliðnu ári
var 3.850 tonn og til viðbótar
keypti félagið um 600 tonn frá
öðrum sláturleyfishöfum. Heild-
arsala Norðlenska á kjöti á síðasta
ári var því tæplega 4.500 tonn
Samningur um langtímaleigu á
sláturhúsinu í Búðardal
Norðlenska rekur stórgripaslátur-
hús á Akureyri og Höfn í Horna-
firði, sauðfjársláturhús á Húsavík,
Höfn og frá og með september nk.
mun Norðlenska taka á leigu til
langs tíma sauðfjársláturhúsið í
Búðardal, sem er í eigu Slátur-
hússins í Búðardal ehf. Á liðnu
hausti var slátrað þar tæplega 16
þúsund dilkum, en Norðlenska, í
samstarfi við heimamenn, hyggst
auka þar verulega slátrun.
Nýtt hús fyrir starfsmannað-
stöðu og skrifstofur Norðlenska
Stefnt er að því að ráðast í ný-
byggingu á lóð Norðlenska á
komandi hausti. Um er að ræða
tveggja hæða hús - að grunnfleti
250-300 fermetrar - heildarflatar-
mál því milli 500 og 600 fermetr-
ar. Á jarðhæð hússins verður
mötuneyti starfsmanna og bún-
ingsaðstaða og skrifstofur á efri
hæð.
Samningur um
endurfjármögn-
un Norðlenska
SVFR leitar eftir
fleiri veiðisvæðum
Stangaveiðifélag Reykjavíkur
(SVFR) auglýsti nýverið í
Bændablaðinu eftir veiðisvæð-
um. Páll Þór Ármann, fram-
kvæmdastjóri félagsins, sagði
að stangaveiðimönnum og fé-
lögum í SVFR hefði fjölgað
svo hin síðari ár að nauðsyn-
legt væri fyrir félagið að fjölga
veiðisvæðum. Hann sagði að
félagið leitaði eftir ám því það
væri hluthafi í Veiðikortinu
sem veitir aðgang að 23 vötn-
um víðsvegar um landið.
Páll Þór sagði að víða um
land væru tækifæri á að fá veiði-
svæði. Margir landeigendur
væru að selja veiðileyfi sjálfir
eða samningar að renna út. Hann
sagði að SVFR næði ekki að
fylgjast með þessu öllu og því
hefði félagið auglýst eftir veiði-
svæðum. Með því væri það að
minna á sig en vænti þess ekki
að auglýsingin bæri árangur
strax daginn eftir. Í dag er SVFR
með á milli 20 og 30 ár og veiði-
svæði á leigu.
Heilu fjölskyldurnar saman
Um vaxandi vinsældir stanga-
veiðinnar sagði Páll Þór að það
væri vaxandi að hjón færu sam-
an að veiða eða jafnvel heilu
fjölskyldurnar. Stangaveiðin
væri ekki lengur ríkra karla
sport nema þá yfir miðsumarið.
Bæði fyrri- og seinnihluta sum-
ars væri hægt að fá veiðileyfi í
góðum ám fyrir skaplegt verð.
Hann nefndi dæmi um þá vin-
sælu laxveiðiá, Norðurá. Þar
kostar stangardagurinn ekki
nema um 20 þúsund krónur í
júní og ágúst.
Aðalfundur
Búnaðarsambands Eyjafjarðar
verður haldinn í Laugaborg Eyjafjarðarsveit
þriðjudaginn 11.apríl og hefst hann kl. 10:00.
Auk venjubundinna aðalfundarstarfa, kosningu búnaðar-
þingsfulltrúa og verðlaunaveitinga verða á dagskrá tvö
erindi:
Staða og horfur á kjötmarkaði
Sigurður Jóhannesson formaður stjórnar Landssamtaka
sláturleyfishafa.
Hver græðir á hagræðingu í
mjólkurframleiðslunni?
Daði Már Kristófersson sérfræðingur
hjá Bændasamtökum Íslands.
Hádegisverður og
kaffiveitingar í boði BSE.
Hér má sjá f.v.: Árna Magnússon, fjármálastjóra Norðlenska og Sigmund
E. Ófeigsson,framkvæmdastjóra Norðlenska. Þá koma útibússtjórar
Landsbankans á Akureyri, Helgi Teitur Helgason og Birgir Björn Svavars-
son.