Bændablaðið - 13.01.2009, Blaðsíða 7

Bændablaðið - 13.01.2009, Blaðsíða 7
7 Bændablaðið | þriðjudagur 13. janúar 2009 Kæru lesendur. Gleðilegt nýtt ár, 2009. Megi það verða okkur hagfellt til lands og sjávar og fara batnandi þegar á líður. Þennan þátt rita ég í Litlu-Brekku á Höfðaströnd í Skagafirði og tekur efnið nokk- urt mið af því. Séra Sigfús Jónsson, prest- ur á Mælifelli, gerðist síðar kaupfélagsstjóri Skagfirðinga snemma á síðustu öld. Eftir ára- mót sendi hann gömlum granna, Sveini á Mælifellsá, sjávarfang og þessar óskir með: Gleðilegt nýár, góði Sveinn, gæfan við þér brosi. Lifðu ávallt hjartahreinn á heilagfiski og trosi. Ásgrími Kristinssyni í Ásbrekku í Vatnsdal þótti fækka úr hófi hagmæltum Húnvetningum: Víða andans vorköld jörð vill ei rísa úr dái. En skyggnist ég í Skagafjörð skáld er á hverju strái. Sighvatur Birgir Emilsson var prestur á Hólum í Hjaltadal. Á þeim árum var hann félagi í Lionsklúbbnum Höfða á Hofsósi. Eitt sinn var fundur og Þorvaldur bóndi á Krossi forfallaður vegna veikinda. Sighvatur var nú hvattur til að sýna annaðhvort bænhita sinn eða kynngi sem kraftaskáld og lækna Þorvald einhvers konar fjarlækningu eða hvetja mátt- arvöldin til þess. Vísa varð þá til: Besti faðir bjarga oss, bóndann þarf að hvíla. Sendu engil oní Kross með aspirín og stíla. Öðru sinni var séra Sighvatur að aka um Hjaltadalinn í fljúgandi hálku. Sú ferð endaði utan vegar og laskaðist bíllinn nokkuð á annarri hliðinni. Rósberg G. Snædal orti: Það er illt að þurfa að aka þrönga veginn. Sighvatur er soldið sleginn, sérstaklega hægra megin. Þórður á Stafnshóli bað Fjól- mund Karlsson á Hofsósi fyrir bréf í póst, en átti ekki smápen- inga í vösum heldur aðeins þús- und króna seðil í veskinu. Illt er að búa upp við fjall, allt er af bændum rúið. Þórður á bara þúsundkall og þá er það líka búið. Aðra vísu gerði Fjólmundur þegar hann hafði gert við bíl og var að ganga frá reikningnum ásamt bíleigandanum. Sá síðar- nefndi gerði góðlátlega athuga- semd við alla þessa aukaliði á reikningnum. Fjólmundur svar- aði, ekki síður með glettni í svip: Fimmhundruðkallinn er fyrstur, þá fáum við skrifaðan tíma Svo koma „trygging“ og „tvistur“ og tvöhundruð krónur í síma. Friðrik Steingrímsson í Mývatnssveit varð afi fyrir skömmu: Montið upp um metra þaut þó mikið verið hafi, nýlega ég nafnbót hlaut nefnilega AFI. Sem minnir á gamla vísu Bald- urs á Ófeigsstöðum af sama tilefni: Hérna fæddist lítið lamb, ljúfir draumar rættust. Við Ófeigsstaða ættardramb 11 merkur bættust. Bestu kveðjur og óskir. Hjálmar Jónsson hjalmar@domkirkjan.is Í umræðunni MÆLT AF MUNNI FRAM Umræða í samfélaginu er farin á fulla ferð um hugsanlega inngöngu Íslands í ESB. Hvernig hafa Bændasamtök Íslands brugðist við þessari umræðu ? Þessi umræða fór í gang af fullum krafti sl. haust meðan á fundaferð BÍ stóð og var strax þar brugðist við henni. Síðasti fundurinn í þeirri fundaröð var síðan hér á Hótel Sögu 10. desember sl. þar sem frummæl- endur voru Haraldur Benediktsson og Christian Anton Smedshaug sérfræð- ingur Norges Bondelag í málefnum ESB. Fjölmenni var á fundinum og þar náðum við að koma sjónarmið- um BÍ vel til skila út í þjóðfélags- umræðuna. Síðan var annar fundur með aðildarfélögum BÍ þann 19. des- ember þar sem farið var yfir afstöðu BÍ eins og hún hafði verið kynnt fram að því og fyrirhugað starf næstu vikur. Síðan hafa fleiri fundir í því ferli verið haldnir innanhúss og annar fundur sem aðildarfélög voru boðuð til. Einnig hafa bæði sjónarmið BÍ og ýmsar upplýsingar um land- búnað og ESB verið reifuð á síðum Bændablaðsins. Það kemur sér vel núna að Bændasamtökin hafa fylgst með þessum málum um árabil, aflað sér upplýsinga m.a. með starfi í nefnd utanríkisráðherra á árunum 200-2003 og í gegnum samstarf við norræn systurfélög og þannig reynt að máta íslenskan landbúnað inn í þennan heim. Við teljum okkur vera vel und- irbúin fyrir þessa umræðu. Getur þú útskýrt hvaða áhrif það myndi hafa á íslenskan landbúnað (og tengdar greinar) ef við þyrftum að gangast undir sameiginlega landbúnaðarstefnu ESB (CAP)? Sameiginlega landbúnaðarstefnan er óásættanleg fyrir íslenska bændur; hún gengur gegn þeirri stefnu sem um árabil hefur verið fylgt og miðar að því að tryggja framleiðslu á gæða- vöru. Hugmyndafræði þessarar stefnu gengur kannski upp í þéttbýlli Evrópu, en ekki hér, aðstaða þessara þjóða og fjarlægð frá mörkuðum er allt önnur. Svo má ekki gleyma að landbúnaðar- stefna ESB er í sífelldu breytingaferli, halda menn að þær breytingar verði gerðar fyrst og fremst með hagsmuni Íslands í huga? Landbúnaðarstefna ESB er sameig- inleg og ytri tollar sameiginlegir. ESB fer t.d. með þessi mál öll gagnvart Alþjóða viðskiptastofnuninni, WTO. Áhrifin kæmu strax fram við afnám tolla gagnvart öðrum ESB löndum. Innflutningur jafnt sem útflutningur yrði tollalaus. Þetta myndi ekki breyta miklu varðandi útflutning búvara til ESB þar sem samið hefur verið um tollkvóta fyrir mikilvægustu vörur okkar eins og t.d. lambakjöt sem ekki er fullnýttur. Þetta getur þó auðveld- að útflutning á hrossum til Evrópu til dæmis. Stóra atriðið er hins vegar tollalaus innflutningur á búvörum frá öðrum ESB löndum samhliða grund- vallar breytingum á opinberum stuðn- ingi við landbúnað. Afnám tolla þýðir gerbreytta sam- keppnisstöðu okkar framleiðslu við innfluttar vörur. Þetta á við marga vöruflokka t.d. osta, svína-, nauta- og alifuglakjöt, egg, blóm, kartöflur og svo má áfram telja. Í núverandi stöðu krónunnar gagnvart evru er erfitt að leggja mat á áhrifin en ég tel að inn- fluttar vörur myndu taka til sín verulega markaðshlutdeild í þessum flokkum. Líkur má leiða að í sumum greinum yrði algert hrun. Verð til framleiðenda myndi lækka hér á landi. Ef horft er til reynslu nágrannaþjóða okkar má nefna að framleiðsla á afskornum blómum hefur nánast lagst af í Danmörku vegna undirboða hollenskra framleiðenda. Svíar eru orðnir stór innflytjendur á kjöti síðan þeir gengu í ESB og reynd- ar flytja þeir líka mikið inn frá löndum utan ESB. Óraunhæft er annað en að gera ráð fyrir svipaðri þróun hér. Stuðning ESB við landbúnað er einnig á öðru formi en hér á landi. ESB er að hverfa frá stuðningi við búgreinar en þess í stað er stuðningi beint að bændum og landbúnaðarlandi sem greiddir voru styrkir til á skil- greindum viðmiðunartíma. Ekki eru kröfur um framleiðslu heldur frekar meðferð lands, að það sé í landbún- aðarhæfu ástandi, sem og meðferð búfjár. Hér á landi beinist stuðningur hins vegar í meira mæli að búgreinum og framleiðslu – og sýnileg landbún- aðarframleiðsla stendur að baki. Þetta telja Bændasamtökin farsælli leið og má einnig tengja öðrum markmiðum eins og gert er varðandi stuðning við sauðfjárrækt. Nú gengu Finnar í Evrópusambandið árið 1995. Hvaða lærdóm getum við dregið af þeirra reynslu innan ESB? Ég hef einkum kynnt mér reynslu Finna varðandi landbúnað og aðild- arsamning þeirra á sínum tíma við ESB. Á sínum tíma var unnið mark- visst að því í finnskum stjórnmálum að fá bændur til að fallast á aðild. Í aðildarsamningum var mikið kapp lagt á að ná sem hagstæðastri nið- urstöðu fyrir landbúnað og almennt er það skoðun manna að Finnar hafi náð mun betri samningum fyrir sinn land- búnað en Svíar. Við aðild Svíþjóðar og Finnlands var skrifaður nýr kafli í sameiginlegu landbúnaðarstefnuna um stuðning við norðlægan land- búnað. Samið var um að þessi lönd mættu, af eigin fjármunum, styðja við landbúnað norðan 62. breiddargráðu umfram það sem annarsstaðar gerist í Evrópu. Einnig var allt Finnland skil- greint sem harðbýlt svæði frá árinu 2000 (85% frá 1. janúar 1995). Finnskir bændur fengu einnig greidda umsamda heildarupphæð á fyrsta ári aðildar til að mæta tekjutapi vegna afnáms tolla frá 1. degi aðildar. Í því ljósi tel ég að íslenskur landbún- aður myndi ganga inn í regluverk ESB um stuðning við norðlægan landbún- að. Þess vegna skiptir afstaða þeirra stjórnvalda, sem semja við ESB (ef til þess kemur), til landbúnaðar og fjár- veitinga til hans gríðarlega miklu máli. Engu að síður er reynsla Finna af aðild þekkt, tekjutap var mikið. Þá er augljós óvissa um ýmislegt sem þarf að semja um við ESB s.s. grundvöll að úthlutun á stuðningi. Landbúnaðurinn verður alltaf að horfa til langs tíma, og í ljósi undangenginna breytinga á sameiginlegu landbúnaðarstefnunni má ætla að hagsmunir Mið- og Suður- Evrópu verði þar ráðandi. Það er áhætta sem er tekin ef menn framselja ákvörðunarréttinn yfir eigin ákvörð- unum á nýtingu auðlinda í þessu tilfelli landinu. Gæti innganga í ESB stofnað matvælaöryggi þjóðarinnar í hættu undir einhverjum kringumstæðum? Bændasamtökin hafa löngum und- irstrikað mikilvægi eigin mat- vælaframleiðslu og þar með land- búnaðar fyrir matvælaöryggi þjóð- arinnar, þ.e.a.s. að ákveðið framboð á matvælum sé tryggt. Við kynnt- umst anga af birtingarmynd þessa þegar gjaldeyriskreppa skall hér á fyrirvaralaust. Ef eigin matvæla- framleiðsla minnkar við ESB aðild blasir við að birgðir og framboð af eigin matvælaframleiðslu yrði minna en ella ef meiriháttar trufl- anir yrðu á flutningum til og frá landinu. Við megum ekki gleyma að kreppt getur að af öðrum ástæð- um en efnahagslegum, matvæla- öryggi er því alvöru viðfangsefni. Heimsmyndin er líka að breytast, mannkyninu fjölgar ört, gróð- urhúsaáhrif hafa víða valdið versn- andi ræktunarskilyrðum og mik- ilvægi matvælaframleiðslu annars staðar í heiminum hefur því vaxið. Ein af höfuðrökum ESB-sinna lýtur að lækkun á mætvælaverði með inngöngu. En er ljóst hvað verður með vörur utan ESB? Rökin eru sett fram án þess að taka tillit til aðstæðna á smásölumarkaði hér á landi og standast ekki alfarið skoðun. Ef ég ræði aðeins fyrst full- yrðinguna um lækkun matvælaverðs þá mætti stundum halda að þeir sem þetta fullyrða fylgist tæpast með, því menn tala ennþá um allt að 20-40% lækkun ef af aðild yrði. Fyrir tveimur árum lækkaði virðisaukaskattur á mat úr 14% í 7% og það hefur auðvitað leitt til lækkunar á matvöruverði. Verð á matvörum hefur líka lækkað minna en á mörgum öðrum liðum vísitölu neysluverðs undanfarna mánuði. Tengsl lífskjara og launa við verðlag eru líka vel þekkt og í rannsókn sem Hagfræðistofnun gerði fyrir nokkrum árum kom fram að breytileiki á laun- um skýri 60% af mun á verðlagi milli Íslands og Þýskalands. Þegar litið er á hlutfall útgjalda neytenda til mat- og drykkjarvöru kemur því mun hag- stæðari mynd fyrir íslenska neytendur í ljós. Það er líka mikilvægt að muna að kjöt, mjólk og grænmeti, innlent og innflutt vegur 5,8% af útgjöld- um samkvæmt vísitölu neysluverðs. Hlutur innfluttra mat- og drykkjar- vara og innlendra, annarra en kjöts, mjólkur og grænmetis, í útgjöldum samkvæmt vísitölu neysluverðs er hins vegar 7,5% og innfluttar vörur og hráefni til framleiðslu eru tolla- lausar. Ísland mun fara inn fyrir sameig- inlega ytri tolla ESB verði af aðild. Innfluttar matvörur frá ESB sem í dag eru tollalausar verða það áfram en ýmsar matvörur sem í dag eru fluttar inn frá öðrum löndum koma til með að bera toll. Dæmi um vörur sem tollur er lagður á af ESB – en eru tollalausar hér (samkvæmt dönsku tollskránni á ver- aldarvefnum) – eru epli, perur, pasta, kúskus, morgunverðarkorn, blómkál, gulrætur og salat. Gulrætur, salat, pasta og morgunverðarkorn eru dæmi um vörur sem verulegur hluti innflutn- ings kemur í dag frá löndum utan ESB og tollur yrði lagður á. Þessar vörur hækka þá í verði. Er hægt að segja til um það með einhverri vissu hvernig þróun á mat- vælaverði yrði með inngöngu í ESB? Það má vel rökstyðja að einhver lækkun gæti orðið á matvælaverði. Ég efast hins vegar um að lögmál samkeppni á matvælamarkaði muni færa neytendum mögulegan ábata af lækkun á verði til framleið- enda. Reyndin í Finnlandi var t.d. 11% lækkun matvælaverðs meðan verð til framleiðenda lækkaði svo nam jafnvel tugum prósenta. Því má ekki gleyma að íslenski matvæla- markaðurinn er í reynd ör-mark- aður þar sem fákeppni ríkir. Við höfum síðustu 3 ár horft upp á að þegar tollar falla niður á innfluttum kartöflum á vorin snar hækkar kart- öfluverð í búðum. Það er líklegt að sterkir aðil- ar taki sig t.d. til og bjóði tilteknar afurðir á lágu verði þann tíma sem tekur að ryðja innlendum framleið- endum af markaði og nýti sér síðan stöðuna síðar meir þegar innlends framboðs nýtur ekki lengur við, til að verðleggja viðkomandi vöru með öðrum hætti. Hvernig sérðu að þessi ESB- umræða muni þróast á næstu vikum og mánuðum – hvað munu Bændasamtök Íslands leggja áherslu á í þeim málum? Það er mikill þungi í þessari umræðu núna. Mér finnst líklegt að nið- urstöður landsfunda Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks í þessum málaflokki hafi mikið að segja um hvernig málin þróast. Bændasamtökin munu áfram leggja í sínum málflutningi áherslu á mikilvægi landbúnaðar fyrir atvinnu og byggð í dreifbýli og líka sem vettvang ýmiskonar nýsköpunar. Við munum líka halda fram gæðum íslenskra búvara og leggja aukna áherslu á merkingu þeirra sem og þátt landbúnaðarins í matvælaöryggi. Við tökum líka undir fleiri atriði sem mæla gegn ESB aðild og bendum m.a. á að allar líkur eru á að greiðslur okkar til ESB yrðu hærri en það sem fengist til baka frá sambandinu. Hvaða skilaboð sendir þú bændum varðandi þeirra þátttöku í umræðunni næstu daga og vikur? Ég hvet bændur til að vera ódeiga við að koma sínum sjónarmiðum á fram- færi út frá hagsmunum landbúnaðar og láta ekki flokkslínur og flokka- drætti trufla sig í því. Um leið hvet ég þá til að afla sér upplýsinga og ég bendi t.d. á skýrslu nefndar utanrík- isráðherra frá því í nóvember 2003. Einnig er ýmislegt efni að finna í Bændablaðinu og víðar. Bændablaðið heldur áfram umfjöllun um málefni íslensks landsbúnaðar og Evrópusambandsins, enda brýn þörf á að varpa ljósi á helstu álitamálin í þessum snúnu málefnum. Helsti sérfræðingur Bændasamtak Íslands í Evrópumálum er Erna Bjarnadóttir og því ekki úrhendis að leita til hennar með nokkrar áleitnar spurningar. Erna hefur starfað sem hagfræðingur hjá Bændasamtökum Ísands frá árinu 2000 en var áður hjá Framleiðsluráði landbúnaðarins og forstöðumaður Hagþjónustu landbúnaðarins. Frá 1999 hefur hún setið í miðstjórn norrænu bændasamtakanna NBC þar sem m.a. er fjallað um WTO og þróun landbún- aðarstefnu ESB. Einnig sat hún í nefnd utanríkisráðherra á árunum 2002-2003 sem vann ítarlega skýrslu um íslenskan landbúnað í alþjóðlegu umhverfi. Síðan hefur hún skrifað margar greinar í Bændablaðið um þessi mál og situr nú í tveimur nefndum á vegum utanríkisráðherra sem fjalla um þessi mál. Önnur þeirra skoðar stefnu ESB í landbúnaðarmálum og íslenskan landbúnað en hin á að greina stefnu ESB í byggðamálum. Í sumum greinum yrði algert hrun

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.