Bændablaðið - 10.09.2009, Side 9

Bændablaðið - 10.09.2009, Side 9
9 Bændablaðið | fimmtudagur 10. september 2009 ÉG HEF ekkert skrifað um málefni Matvælastofnunar í meira en ár, en sé það núna að við svo búið má ekki standa. Í september í fyrra fengum við senda frá Sláturfélagi Suðurlands tilkynningu um förgun á bóta- skyldu fé. Það var raunar afrit af tilkynningu sem ætluð var Matvælastofnun og ég geri ráð fyrir að MAST hafi borist þetta erindi um svipað leyti og okkur. Nærri ári seinna, eða síðasta dag ágústmán- aðar, skrifaði starfsmaður MAST okkur bréf sem hófst með þess- um orðum: Með bréfi þessu vill Matvælastofnun vekja athygli á að stofnuninni hefur borist tilkynning um að sauðfé í yðar eigu hafi farið yfir varnarlínu. Það er reyndar ekk- ert skýrt nánar, en ég geri ráð fyrir að þarna sé átt við féð okkar sem kom fram í Hrepparéttum í fyrra og var fargað hjá SS. Í fyrrahaust sóttum við um að fá féð okkar bólusett gegn garnaveiki. Þeirri umsókn svaraði Matvælastofnun aldrei og við feng- um enga bólusetningu. Ég færi fram þessi tvö litlu dæmi um vinnubrögð Matvælastofnunar til að sýna fram á að enn er þar flest í skötulíki sem áður var og að sleifarlagið viðgengst þar enn sem fyrr. Flestir sem þurfa að skipta við stofnunina vita þetta. Einhverjir kunna þó að halda að hjá MAST hafi allir hlutir verið færðir til betri vegar. En svo er greinilega ekki. Við hjónin í Arnarholti erum búin að gefast upp á að ná fram réttlæti í okkar málum gagnvart þessu apparati en við munum aldrei sætta okkur við að stofnunin, sem fer með jafn mikilvæg málefni landbúnaðarins á vegum hins opin- bera og raun ber vitni, sé vanhæf, í besta falli gagnslaus, í öðru falli til bölvunar. Og stundum spyr ég þann sem öllu ræður, hvað við bændur höfum gert til að eiga það skilið að íslenska ríkið setji yfir okkur annað eins og þetta. Sigríður Jónsdóttir, Arnarholti Skötulíki og sleifarlag FYLGJENDUR AÐILDAR Íslands að Evrópusambandinu hafa ítrekað beitt þeim blekkingum að okkur standi til boða undanþágur frá reglum ESB, t.d. í sjávarútvegs- málum og landbúnaðarmálum. Þetta eru ósannindi. Ekki veit ég hvað fólki sem þannig talar gengur til nema að því sé sama um fullveldi Íslands og að Ísland verði aðeins lít- ill ósjálfstæður og áhrifalaus hrepp- ur í ESB. Það er þó óþolandi að þetta fólk gangi um ljúgandi, jafn- vel fólk í æðstu stöðum þjóðfélags- ins. Þetta hefur að vísu gerst áður, t.d. á Sturlungaöldinni svokölluðu. Þá seldu menn fullveldið fyrir fé og völd en er eitthvað slíkt í boði núna? Ekki svo ég viti. Allir ábyrg- ir aðilar innan ESB sem við hefur verið rætt hafa sagt að okkur stæðu engar varanlegar undanþágur í boði. Það hefur t.d. verið bent á Möltu en það sem þeir fengu í sjávarútvegs- málum var aðeins 25 mílna belti í kringum eyjuna og það er meira að segja ekki varanlegt frekar en neitt annað sem ESB notar sem agn til að ná yfirráðum yfir löndum sem hafa eitthvað að bjóða fyrir hin nýju öxulveldi í Evrópu sem öllu ráða þar, Þýskaland, Frakkland og Ítalíu. Evrópusambandið stefnir nú hrað- byri í þá átt að verða hin nýju ráð- stjórnarríki álfunnar með allri þeirri miðstýringu og frelsisskerðingu sem slíkum ríkjum fylgja. Mörg þeirra ríkja sem teljast vera áhrifamikil í ESB eru nú farin að gerast óróleg vegna þess að aðildin að ESB hefur ekki verið þeim sú blessun sem þau bjuggust við. Í þeim hópi eru t.d. Spánverjar og Bretar sem ekki voru mjög ákafir fylgjendur aðildar í upp- hafi. Meðal þess sem ESB-sinnar hafa haldið fram er að aðgangur að allskonar sjóðum sem ESB hefur komið sér upp muni veita miklum fjármunum inn í atvinnulíf okkar. Þetta er bara bull og vitleysa því kostnaður okkar við að gerast með- limir í ESB er miklu meiri en styrkir úr þessum sjóðum, sem eru hvort eð er bara til málamynda á meðan ESB er að ná yfirráðum í viðkomandi löndum. Eitt af því sem Íslendingar hinir fornu gerðu að skilyrði við að gerast þegnar Noregskonungs/ Danakonungs var að „engar utan- stefnur viljum við hafa“. Í því fólst m.a. að Íslendingar voru ekki skyld- aðir til að gegna herþjónustu fyrir norrænu kóngana. ESB stefnir að því að koma sér upp sameiginlegum her. Verði Íslendingar aðilar að ESB verður herskylda eitt af því sem við verðum að gangast undir. Erum við tilbúin til að samþykkja það? Að lokum: Það eina sem við getum full- vissað okkur um að aðild að ESB muni hafa í för með sér fyrir Ísland er afnám fullveldisins. Ísland hættir að vera sjálfstætt ríki, íslenskt þjóð- erni og íslensk tunga munu hverfa af yfirborði jarðar á e.t.v. innan við 100 árum. Viljum við Íslendingar það? Nei! Íslendingar! Segjum nei við ESB! Verum áfram sjálfstæð þjóð! Áfram Ísland! Hermann Þórðarson ESB – engar undanþágur í boði

x

Bændablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.