Bændablaðið - 10.09.2009, Side 20
20 Bændablaðið | fimmtudagur 10. september 2009
Í byrjun ágúst sl. voru undirritað-
ir samningar milli Vélaborgar ehf.
og hollenska fyrirtækisins Lely
þess efnis að Lely kæmi inn sem
hluthafi og bakhjarl að félaginu
VB Landbúnaður ehf. (Vélaborg
Landbúnaður). Flestir bændur
þekkja Lely sem framleiðanda
ýmiss konar landbúnaðarvéla
og tækja, m.a. mjaltaþjóna. Með
þessum samningi er ljóst að hags-
munum þeirra bænda er borgið,
sem þurfa á þjónustu að halda
vegna Lely-tækja.
Stefán Bjarnason er fram-
kvæmdastjóri VB Landbúnaðar, en
hann mun þó áfram sinna störfum
fyrir Vélaborg. „Það hefur verið eitt
af forgangsverkefnum Vélaborgar
að undanförnu að bændur, okkar
ágætu viðskiptamenn, lendi ekki
í neinum vandæðum vegna þess
ástands sem skapast hefur á Íslandi.
Landbúnaður er og verður ein af
grunnatvinnugreinunum á Íslandi
og þar verða hjólin að snúast hvort
sem vel eða illa árar,“ segir hann.
„Við eigendur Vélaborgar
höfum í talsverðan tíma verið í við-
ræðum við Lely um aðkomu þeirra
að landbúnaðararmi Vélaborgar.
Vélaborg hefur enda náð mestri
markaðshlutdeild sem Lely hefur
í heiminum, en 80% mjaltaþjóna
á Íslandi eru Lely mjaltaþjónar,“
segir Stefán.
Stefán segir að aðaláhersla fyr-
irtækisins verði á mjaltaþjónum,
heyvinnuvélum, hreinsivörum og
öðrum vörum frá Lely, en í framtíð-
inni mun fyrirtækið að öllum líkind-
um taka yfir meira af landbúnaðar-
armi Vélaborgar. Auk Stef áns hafa
sex aðrir starfsmenn verið ráðnir til
VB Landbúnaðar ehf. Hann segir að
með stofnun þess sé orðið til félag
með 100 milljónir króna í eigið fé og
mjög öflugan bakhjarl, sem eigi að
geta þjónustað íslenskan landbúnað
vel í framtíðinni. VB Landbúnaður
ehf. og Vélaborg muni í framtíðinni
hafa með sér margvíslegt samstarf,
viðskiptamönnum sínum til hags-
bóta.
VB Vörumeðhöndlun
Að sögn Stefáns hefur Vélaborg
undanfarin ár starfað á þremur
meginsviðum; í landbúnaði, vöru-
meðhöndlun og verktöku. Nú hefur
einnig verið stofnað sérstakt fyrir-
tæki á sviði vörumeðhöndlunar, VB
Vörumeðhöndlun ehf. (Vélaborg
Vörumeðhöndlun), sem Stefán
segir að sé samskonar félag og VB
Landbúnaður, sem starfi við hlið
Vélaborgar. „Þar eru viðræður við
annan erlendan birgi í góðum far-
vegi. Stofnun þessa félags er búin
að vera í undirbúningi frá því 2007,
en það var ekki fyrr en að krónan
féll í fyrra sem þeir sýndu þessu
máli verulegan áhuga. Vonandi
tekst okkur að klára þá samninga
einnig.“ Stefán segist ekki geta
upplýst á þessu stigi málsins hver
umræddur erlendur aðili sé.
Stefán segir að rekstur VB Land-
búnaðar og VB Vörumeð höndlunar
styrki mjög stöðu Vélaborgar á ís-
lenskum vinnuvéla- og tækjamark-
aði. „Vélaborg hefur ekki þurft að
segja upp nema sárafáum starfs-
mönnum og enn starfa nærri 50
manns hjá fyrirtækinu. Fimm starfa
hjá VB Vörumeðhöndlun og sjö hjá
VB Landbúnaði. Það er sorglegt
að sjá hvernig samdrátturinn er að
leika mörg félög í þessari atvinnu-
grein en við höfum trú á því að
með aðstoð góðra aðila stöndum
við sterkari eftir en áður.“ -smh
Á markaði
Norðlenska stefnir að útflutningi
á rúmlega 30% sauðfjárfram-
leiðslunnar í ár, en að mati for-
svarsmanna félagsins er allt eins
líklegt að útflutningsþörfin geti
orðið meiri en það á næsta ári.
Verðlagning sauðfjárafurða þetta
haustið er ákvörðuð í skugga erf-
iðra aðstæðna í þjóðfélaginu. Allur
almenningur sem og atvinnurekst-
ur býr við miklar aðfangahækk-
anir, minnkandi kaupmátt og erf-
itt rekstrarumhverfi.
Bændur hafa ekki farið varhluta
af þessu, frekar en aðrir landmenn.
Það er því vandasamt að verðleggja
sauðfjárafurðir segir í frétt á vef
félagsins, því allir bændur hafa
þörf fyrir hækkun á sínum afurð-
um, en á sama tíma hafa yfir 30%
launamanna orðið fyrir tekjuskerð-
ingu auk þess sem kaupmáttur
launa hefur minnkað verulega.
„Kaupgeta íslenskra heimila hefur
því minnkað verulega og þarf því
að huga sérstaklega að því að verð-
leggja ekki vörur út af markaði.
Minnkandi kaupgeta hefur valdið
því að verulegur samdráttur hefur
orðið í sölu kjöts innanlands, sér-
staklega hefur þetta verið alvarlegt
nú síðustu fjóra mánuði. Þessi sölu-
samdráttur hefur bitnað hvað harð-
ast á lambakjöti.“
Þrátt fyrir minni innanlandssölu
dilkakjöts hefur orðið aukning í
útflutningi. Þar hefur lág skrán-
ing krónu gagnvart öðrum gjald-
miðlum vegið þyngst. Útflutningur
dilkakjöts er vænlegri en áður, en
þó ber þess að geta að miðað við
sölusamdrátt innanlands stefnir í
a.m.k. 2500 tonna útflutningsþörf,
sem er um 1000 tonnum meiri
útflutningur en fyrri ár. Að auki
verði að hafa í huga að ekki eru
bara vandamál í efnahagslífinu á
Íslandi, aðrar þjóðir berjast líka við
kreppu. Það er því ekki alveg gefið
að auðvelt sé að flytja þetta magn
út fyrir viðunandi verð.
Nýr búvörusamningur hefur
tekið gildi en honum fylgir
ekki útflutningsskylda, þá hefur
geymslugjald sem áður gekk til
sláturleyfishafa verið lækkað.
Óvarlegt þykir við þessar aðstæð-
ur að hækka verð á innanlands-
markaði, en hækkun sem gengur til
bænda er hækkun á það sem áður
var útflutningsverð og nemur sú
hækkun 9,4% á heildarverði dilka-
kjöts frá fyrra ári.
Engin sumarslátrun var hjá
SAH afurðum á Blönduósi í
ár þar sem spurn eftir sum-
arslátrun hefur nánast horfið.
Sauðfjárslátrun hófst því hjá
SAH afurðum 1. September sl.
Sigurður Jóhannesson, fram-
kvæmdastjóri SAH afurða
segir á vefsíðu félagsins að um
langt árabil hafi SAH Afurðir
verið leiðandi í því að lengja
það tímabil sem sauðfjárslátr-
un tekur yfir.
„Á ákveðnum tíma gekk þetta
vel og var til að mynda slátrað
ríflega 10.000 fjár í ágúst fyrir
fáum árum síðan. Allt frá þeim
tíma hefur slátrun í ágúst dregist
saman og var slátrað ríflega 350
fjár í ágúst á síðastliðnu ári. Þrátt
fyrir að umtalsverðar yfirborganir
hafi verið í boði,“ segir Sigurður
Jóhannesson.
Sigurður Jóhannesson segir
að því miður séu ekki forsendur
til hærri yfirborgana en í boði séu
vegna almennt erfiðra efnahags-
aðstæðna í þjóðfélaginu og ekki
síður vegna markaðsaðstæðna.
Hjá SAH afurðum er slátr-
að sauðfé af svæði sem nær
frá Kelduhverfi í austri til
Dýrafjarðar í vestri, ásamt
fé úr Borgarfirði, Dölum og
Þingvallasveit. Nautgripum
og hrossum er slátrað eftir því
sem framboð gefur tilefni til.
Samhliða rekstri sláturhúss er
rekin kjötvinnsla sem stofnuð
var 1963, þar sem megináherslan
er lögð á grófvinnslu fyrir aðrar
kjötvinnslur.
Engin sumarslátrun á Blönduósi
Verðlagning ákvörðuð í skugga erfiðra aðstæðna
"
# $
&
'*+<$
$$>
Allir sláturleyfishafar hafa nú birt
verð sauðfjárafurða fyrir haust-
ið. Verðbreytingin frá í fyrra er
alls staðar með svipuðum hætti,
þ.e. útflutningsverð 2008 hækk-
ar upp í innanlandsverð þess árs.
Það þýðir að hækkunin er á bilinu
8-10% á milli ára og meðalverð
fyrir kindakjöt til bænda verð-
ur um 407 kr/kg. Það er talsvert
frá viðmiðunarverði LS en þar er
meðalverðið 444 kr/kg.
Sindri Sigurgeirsson formaður
Landssamtaka sauðfjárbænda segir
þetta vera vonbrigði. „Samtökin
töldu vera svigrúm fyrir meiri
hækk un, ekki síst í ljósi þess að út-
flutn ingur hefur verið að skila góðu
verði. Sláturleyfishafar bera sig
hins vegar illa vegna hás vaxtastigs
og erfiðrar stöðu efnahagsmála. Því
er ekki að neita, en það hefur einnig
bitnað illa á bændum og ekkert ber á
neinum aðgerðum ríkisstjórnarinn-
ar til aðstoðar heimilunum og fyr-
irtækjunum í landinu. Atvinnulífinu
er smám saman að blæða út á meðan
mörgum vikum var eytt í þvarg um
ESB. Ég vil þó taka fram að það er
mjög mikilvægt að útflutningur á
kindakjöti gangi áfram vel og bænd-
ur njóti ávinningsins af honum með
sanngjörnum hætti.“
Í meðfylgjandi töflu er búið
að reikna út meðalverð byggt á
verð skrám allra sláturleyfishafa.
Reikn að er út meðalverð á dilka-
kjöti, ærkjöti og síðan heildarverð
þar sem hin tvö eru vegin saman.
Meðal verðið er reiknað út frá
flokk un á landinu öllu árið 2008.
Heildar verðið reiknast út frá hlut-
falli ærkjöts og dilkakjöts í fram-
leiðslu á landinu öllu árið 2008.
Samskonar útreikningur er birtur
fyrir viðmiðunarverð LS til saman-
burðar. Verðið frá 2008 er með út-
flutningsskyldu og tekur tillit þeirr-
ar uppbótar sem Fjallalamb greiddi
á útflutningsverð í júní sl, 10 kr.
álagsgreiðslu SV sem greidd var
á allt innlegg í nóvember 2008 og
álagsgreiðslu SAH afurða á helstu
flokka dilkakjöts í lok síðasta árs.
Þess skal getið að til 16. október
greiða KS og SKVH sérstakar 200
kr./kg álagsgreiðslur á allt dilkakjöt
í fituflokkum 4 og 5. Að auki ber að
geta þess að flestir sláturleyfishafar
greiða sérstakar álagsgreiðslur á allt
innlagt dilkakjöt út næstu viku (14.-
18. sept). Greiðslurnar eru misháar
eftir tímabilum og einstökum slát-
urleyfishöfum og bændur eru hvattir
til að skoða verðskrárnar í heild sem
nálgast má á heimasíðum þeirra.
Þessar álagsgreiðslur eru ekki með
í útreikningum á meðalverði í með-
fylgjandi töflu.
Afurðaverð til sauðfjárbænda 2009
2008 Dilkar Fullorðið Heild
Viðmiðunarverð LS 428 kr. 133 kr. 400 kr.
Fjallalamb 412 kr. 116 kr. 384 kr.
Sláturfélag Vopnfirðinga 403 kr. 127 kr. 377 kr.
SAH afurðir 401 kr. 127 kr. 375 kr.
KS/SKVH 402 kr. 111 kr. 374 kr.
SS 399 kr. 128 kr. 373 kr.
Norðlenska með viðsk.samn. 397 kr. 127 kr. 371 kr.
Norðlenska án viðsk.samn. 392 kr. 127 kr. 367 kr.
Vegið landsmeðaltal 401 kr. 122 kr. 373 kr.
2009 Dilkar Fullorðið Heild
Viðmiðunarverð LS 475 kr. 147 kr. 444 kr.
Sláturfélag Vopnfirðinga 440 kr. 125 kr. 410 kr.
KS/SKVH 440 kr. 119 kr. 410 kr.
SAH afurðir 438 kr. 115 kr. 407 kr.
SS 437 kr. 112 kr. 406 kr.
Fjallalamb 436 kr. 116 kr. 406 kr.
Norðlenska með viðsk.samn. 436 kr. 118 kr. 405 kr.
Norðlenska án viðsk.samn. 418 kr. 113 kr. 389 kr.
Vegið landsmeðaltal 438 kr. 116 kr. 407 kr.
Innflutt kjöt
Tímabil janúar - júlí Árið 2009 Árið 2008
Alifuglakjöt 192.185 377.547
Nautakjöt 70.929 275.930
Kindakjöt 61 0
Svínakjöt 110.954 206.769
Aðrar kjötvörur af áðurtöldu 19.747 12.721
Samtals 393.876 872.967
Leitað að kaupendum að Vélaveri
Þann 19. ágúst síðastliðinn lagði Vélaver inn beiðni um gjaldþrot
en nú er unnið að því að selja félagið. Eftir að kreppan skall á varð
algjört hrun hjá fyrirtækinu í sölu atvinnutækja og minnkaði hún
um 90 prósent. Þegar mest var voru um 60 starfsmenn hjá fyr-
irtækinu en þegar það fór í þrot voru þeir 13. Var starfsmönnum
sagt upp í kjölfarið en reiknað er með að flestir verði endurráðnir.
„Fyrirtækið er rekið sem þrotabú og stendur Landsbankinn að baki
rekstrinum. Vélaver er á sama stað og áður og starfsfólkið er hér í vinnu
því fyrirtækið er rekið áfram. Hér er veitt sú þjónusta sem var áður en
beiðni um gjaldþrot var lögð fram. Þó að sala á atvinnutækjum hafi
hrunið er talsverð sala í rekstrar- og viðhaldsvörum. Þjónustufulltrúar
okkar annast þjónustu við bændur enn um sinn en þegar um þrota-
bú er að ræða er leitað að kaupendum og það sem við teljum jákvætt
er að það er áhugi á fyrirtækinu. Í væntanlegri sölumeðferð leggjum
við áherslu á að þjónusta við bændur verði í góðum höndum og eins
tengslanet við birgja líkt og verið hefur. Markmið okkar er að bændur
finni sem allra minnst fyrir því þó að hugsanlega verði einhver eig-
endabreyting,“ segir Reynir Kristinsson, tilsjónarmaður með rekstri
þrotabús Vélavers. ehg
Breytingar hjá Vélaborg
Q # '
'X X [Q
Kjötinnflutningur á fyrri hluta ársins