Bændablaðið - 07.07.2011, Page 1

Bændablaðið - 07.07.2011, Page 1
13. tölublað 2011 Fimmtudagur 7. júlí Blað nr. 352 Upplag 23.000 14 Aðildarsamningar nýrra ríkja við Evrópusambandið (ESB) hafa ekki skilað ríkjunum varanlegum und- anþágum frá reglum sambandsins varðandi landbúnaðarmál nema að mjög litlu leyti og alls ekki frá meginstoðum sambandsins. Ein meginstoðin er t.a.m. frjáls för vöru milli aðildarríkja sambands- ins, án tolla eða annarra hafta. Þetta er niðurstaða Stefáns Más Stefánssonar prófessors við laga- deild Háskóla Íslands og sérfræð- ings í Evrópurétti en hann er höf- undur ritsins Landbúnaðarlöggjöf Evrópusambandsins og Evrópska efnahagssvæðis ins , sem Bændasamtök Íslands hafa nú gefið út. Í varnarlínum Bændasamtakanna sem kynntar voru formlega í gær er meðal annars sett fram sú krafa að íslenskum stjórnvöldum verði áfram heimilt að leggja tolla á búvörur frá löndum E S B . Samkvæmt þessum nið- u r s töðum Stefáns er því ljóst að við ramman reip verður að draga í samninga- viðræðum Íslands við ESB um landbúnaðarmál. Stefán segir að ríki hafi sett fram alls konar kröfur um undanþágur frá reglum sambandsins í aðildar- viðræðum sínum. „Það er hins vegar ekki að sjá að þær hafi skilað miklum árangri.“ Stefán segir nauðsynlegt að halda því á lofti að ESB geti veitt allar þær undanþágur sem hægt sé að hugsa sér. Hins vegar þurfi að vera vilji til þess. „Aðildarsamningur [Íslands] verður að vera samþykktur af öllum aðildarríkjunum og því er það bara vilji þeirra sem ræður för.“ Jafnframt bendir Stefán á að ef Ísland fái aðild að ESB þurfi að hlíta þeim reglum sem þar gilda. Aðildarríki geti ekki lagt fram harðari eða veikari reglur en sam- bandið hafi innleitt. Hins vegar veiti EES-samningurinn Íslandi ákveðið frjálsræði í því hvaða gerðir ESB séu teknar upp hér. Íslendingar þurfi því ekki möglunarlaust að taka upp gerð- ir sambandsins sem ekki eigi erindi hér á landi. „Í því liggur munurinn á því sjálfræði sem við höfum með EES-samningnum en myndum ekki hafa innan ESB.“ /fr - Sjá viðtal við Stefán á bls. 12 Nýtt rit um landbúnaðarlöggjöf Evrópusambandsins og Evrópska efnahagssvæðisins: Undanþágur frá meginstoðum ESB hafa hingað til ekki náðst - Kröfur um undanþágur í aðildarviðræðum hafa ekki skilað miklum árangri Bændasamtök Íslands kynntu í gær með formlegum hætti kröfur sínar í yfirstandandi samninga- viðræðum íslenskra stjórnvalda við Evrópusambandið og nýja bók um laga- og regluverk ESB. Haraldur Benediktsson, formaður Bændasamtaka Íslands, segir að það sé mikilvægt að málefnaleg umræða fari fram um sérstöðu og kröfur Íslands nú þegar samningaviðræð- urnar eru formlega hafnar. „Bókinni sem nú kemur út eftir Stefán Má Stefánsson lagaprófess- or er ætlað að varpa skýru ljósi á það hvað landbúnaðarstefna ESB og Evrópska efnahagssvæðisins felur í sér. Það er ástæða til að hafa veru- legar áhyggjur af þróun mála og hagsmunagæslu fyrir Íslands hönd í komandi viðræðum. Svo virðist sem samningsafstöðu Íslands eigi ekki að ræða með opnum hætti, heldur innan þröngra veggja samn- inganefndar embættismanna. Við þurfum öfluga málsvörn, enda hafa Bændasamtökin í langan tíma bent á að ekkert sé í „aðildarpakkanum“ nema reglur ESB,“ segir Haraldur. - Sjá nánar á bls. 2 Sama dag og varnarlínurnar sjö voru kynntar var boðað til fundar í Bænda- höllinni með sendiherrum Evrópuríkja á Íslandi. Þeim voru kynntar lág- markskröfur íslenskra bænda í viðræðum stjórnvalda við ESB. Hér má sjá fulltrúa Noregs, Danmerkur og Bretlands rýna í gögn BÍ. Mynd / TB Kanínurækt til manneldis er hafin á Hvammstanga, en það er Birgit Kostizke sem stendur á bak við hana og hefur stofnað fyrirtæki um reksturinn. Hún hefur búið í Húnaþingi vestra frá árinu 2007 og greindi fyrst opinberlega frá þessum áformum sínum í Bændablaðinu 26. maí sl. Stefnir hún nú á að reka kanínubú með um 250 lífdýrum og tæplega 6.000 sláturdýrum. Hlaut verkefnið m.a. styrk frá Atvinnumálum kvenna en Impra hefur séð um gerð við- skiptaáætlunar og markaðskönnunar. Birgit hefur fest kaup á hús- næði sem er neðan við vatns- tankinn á Hvammstanga. Á Hvammstangavefnum er svo greint frá því að hún sé þegar komin með fjórar kanínur sem hún fékk hún frá Egilsstöðum á dögunum. Til ræktunar verða notaðar tvær tegundar, innlendar holdakan- ínur og innfluttar svokallaðar Helle Grosssilber (Silver Gray). Hefur Birgit sótt um innflutningsleyfi hjá Matvælastofnun og sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu á þeirri síðarnefndu, sem er þýsk. Hugmyndin að því að rækta kan- ínur til manneldis á Íslandi kviknaði fyrir tveimur árum þegar Birgit fór að velta fyrir sér af hverju Íslendingar borði ekki kanínukjöt þrátt fyrir að vera mikil kjöt þjóð. Sjálf hafði hún alist upp við kanínukjöt í Þýskalandi og eftir smá umhugsun ákvað hún að tími væri kominn til að gera eitthvað í þessu og hóf að undirbúa verkefnið. Kanínukjöt er að hennar áliti spenn- andi valkostur fyrir sælkera sem og kröfuharða neytendur, enda kjötið talið hollt. Kannanir Birgit leiddu í ljós að um 75% þeirra sem spurðir voru sögðust vera tilbúnir að smakka kanínukjöt en vildu helst gera það í fyrsta skipti á veitingahúsi. Birgit áætlar að fyrst um sinn verði kjötið selt til veitingahúsa og seinna muni neytendur fara að sjá það í kjötborðum verslana. Þar sem landsmenn eru ekki vanir kanínu- kjöti ætlar Birgit að kynna það og eiginleika þess m.a. með því að gefa út matreiðslubók með uppskriftum og fróðleik. Á heimasíðu hennar, kanina.is er að finna margvíslegar upplýsingar og fróðleik um kanínur. /MÞÞ/HKr. Birgit Kostizke byrjuð í kanínurækt á Hvammstanga: Verður með um 6000 sláturdýr af íslensku og þýsku kyni Það var margt um manninn og mikill fjöldi glæsilegra hrossa á Landsmóti hestamanna sem lauk á Vindheimamelum Mynd / HKr. Birgit Kostizke kannaði í Kringlunni í vor afstöðu fólks til neyslu á kaní- nukjöti. Stefán Már Stefánsson. „Þurfum öfluga málsvörn" Tækifærin felast í breytingum í matvælaframleiðslu Bærinn okkar Innri - Múli 3416 Rétt náði í skottið á gamla tímanum í sveitinni

x

Bændablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.