Bændablaðið - 07.07.2011, Side 5
Bændablaðið | fimmtudagur 7. júlí 2011 5
!"#$$$%&%
'((
)
**
+, *
- (.
+ /
0
&
* 1 0 +(%
Jörðin er á einstökum stað í blómlegri sveit, þar er sjö her-
bergja einbýlishús í góðu standi og byggingar sem hýstu
kúabú, verkstæði og geymslur. Það eru 30 km til Húsavíkur
og Mývatnssveitar og 80 km til Akureyrar. Í grunnskóla, tón-
listarskóla og leikskóla eru 8 km. Tún eru um 50 ha og landið
er gott til kornræktar. Í Miðhvammi er hitaveita, vatnsveita,
heitur pottur, malbik heim í hlað, lýsing á heimreið, góðar
reiðleiðir, berjaland og gæsaveiði.
Jörðin er um 145 ha, tún eru um 50 ha. Íbúðarhúsið er
steinsteypt á tveimur hæðum byggt árið 1976, 7 herbergja,
188 fermetrar. Á neðri hæð eru tveir inngangar aðaldyr og
bakdyr, forstofa, þvottahús, bakdyrainngangur, búr, 4 svefn-
herbergi, stofa, eldhús, gangur og baðherbergi. Úr gangi er
stigi upp á efri hæð húsins þar eru tvö stór svefnherbergi
og hol. Að austan við aðalinngang er steinsteypt stétt með
hitalögn, að vestan við bakdyr er pallur og heitur pottur.
Á síðustu árum hafa öll gólfefni í húsinu verið endurnýjuð
og er gegnheilt eikarparket á stofu, ítalskar flísar á forstofu,
gangi og eldhúsi, bakdyr og þvottahús flísalagt. Nýleg sér-
smíðuð innrétting frá Tak er í eldhúsi. Kúabú var rekið á
jörðinni þar til vorið 2010 í lausgöngufjósi með 53 básum.
Fjósið er sambyggt nautgripahúsi sem er um 150 fermetrar
auk fleiri rýma. Verkstæði, 94 fermetra upphitað er sam-
byggt fjósi. Geymsla 333 fermetrar (fyrrverandi refahús)
er nýtt sem geymsla þar er bæði tengt vatn og rafmagn.
Áhugasamir hafi samband við: Miðlun fasteignir - Sibba
sími: 864 0054 og 412 1600 eða Fasteignamiðstöðina -
Magnús, sími: 550 3000.
TIL SÖLU MIÐHVAMMUR Í AÐALDAL Í ÞINGEYJARSVEIT