Bændablaðið - 07.07.2011, Page 9
Bændablaðið | fimmtudagur 7. júlí 2011 9
Á aðalfundi Dýralæknafélags
Íslands lýstu dýralæknar áhyggj-
um af því hvert stefndi varðandi
dýralæknaþjónustu í dreifðari
byggðum landsins og var eftir-
farandi ályktun samþykkt:
„Aðalfundur Dýralæknafélags
Íslands, haldinn í Stykkishólmi
þann 5. júní 2011, átelur harðlega
seinagang Sjávarútvegs- og land-
búnaðarráðuneytis varðandi útgáfu
reglugerðar sem er ætlað að kveða á
um stuðning við dýralæknaþjónustu
í dreifbýli.
Aðalfundur skorar á ráðherra að
láta málið til sín taka sem allra fyrst;
þannig að velferð dýra verði ekki
stefnt í voða við þá kerfisbreytingu
sem tekur gildi þann 1. nóvember
2011.”
Í athugasemd formanns
Dýralæknafélags Íslands segir síðan:
„Sú breyting verður 1. nóvem-
ber 2011 að störf héraðsdýralækna
sem sinna bæði opinberu eftirliti og
almennri dýralæknaþjónustu verða
lögð niður. Þetta á við um héraðs-
dýralæknana sem nú eru staðsettir í
Borgarnesi, Stykkishólmi, Búðardal,
á Ísafirði, Hvammstanga, Blönduósi,
Húsavík, Egilsstöðum, Breiðdalsvík,
Höfn og á Kirkjubæjarklaustri. Í stað
þess koma stærri opinber eftirlits-
svæði þar sem Matvælastofnun hefur
umdæmisskrifstofur og ákveður
stofnunin staðsetningu héraðsdýra-
lækna og annarra eftirlitsaðila sem
þar verða ráðnir til opinberra eftir-
litsstarfa og sóttvarna. Með þessari
breytingu verður jafnframt nauðsyn-
legt að tryggja almenna dýralækna-
þjónustu í dreifðum byggðum lands-
ins með öðrum hætti en verið hefur.
Markmiðið er að tryggja dýra-
eigendum um allt land nauðsynlega
dýralæknaþjónustu og þar með, m.a.
af dýraverndarástæðum, að veik og
slösuð dýr fái rétta meðhöndlun eins
fljótt og kostur er.
Ólíklegt er að dýralæknar fáist til
starfa þar sem dýrafjöldi er takmark-
aður og verkefni við lækningu dýra
fremur fá.
Til að ná markmiðum greinarinn-
ar um að tryggja dreifðum byggðum
reglubundna dýralæknaþjónustu og
bráðaþjónustu verður að stuðla að
því að fyrir hendi verði nauðsynleg
starfsaðstaða fyrir sjálfstætt starf-
andi dýralækna á Snæfellsnesi, í
Dalasýslu, á Vestfjörðum, í Austur-
og Vestur-Húnavatnssýslum, í
Suður- og Norður-Þingeyjarsýslum,
í Norður- og Suður-Múlasýslum og í
Austur- og Vestur-Skaftafellssýslum.
Jafnframt þarf hið opinbera að
greiða einhverja staðaruppbót og/
eða kostnað við ferðir dýralækna á
þessum stöðum. Að öðrum kosti er
ekki tryggt að dýralæknaþjónustan
verði nægileg til að tryggja heilbrigði
og velferð dýra.
Þar sem samkvæmt framanrituðu
er verið að gera verulegar breytingar
á dýralæknakerfinu með því að fækka
héraðsdýralæknum sem áður hafa
annast þjónustu við dýraeigendur er
talið nauðsynlegt að gefin verði út
reglugerð um hvernig dýraeigendum
í hinum dreifðu byggðum landsins
verði tryggð dýralæknaþjónusta.
Gert er ráð fyrir því að ráðherra skuli
hafa samráð við Dýralæknafélag
Íslands, Bændasamtök Íslands,
Samband íslenskra sveitarfélaga og
Matvælastofnun.
Guðbjörg Þorvarðardóttir
Formaður Dýralæknafélags
Íslands"
Aðalfundur Dýralæknafélags Íslands átelur seinagang ráðuneytis
Hátíðin Kátt í Kjós verður haldin
laugardaginn 16. júlí. Er þetta í
fimmta sinn sem efnt er til slíks
opins dags í sveitarfélaginu. „Kátt
í Kjós“ hefur tekist með miklum
ágætum á undanförnum árum þar
sem fleiri þúsund manns hafa sótt
Kjósina heim.
Í fréttatilkynningu frá sveitar-
félaginu segir að með „Kátt í Kjós“
vilji Kjósverjar gefa íbúum höfuð-
borgarsvæðisins og öðrum lands-
mönnum tækifæri til að koma í
sveitaheimsókn og skoða sveitina
og sjá með eigin augum hvað Kjósin
hefur upp á að bjóða. Markmið með
opna deginum er meðal annars að
vekja athygli á þeirri starfsemi
sem fram fer í Kjósinni, mann-
lífi Kjósarinnar og náttúrufegurð
hennar.
Bændur opna býli sín og bjóða
gestum heim til að kynna þeim
starfsemi sína og starfsvettvang og
Kjósverjar og aðrir kynna fram-
leiðsluvörur sínar í Félagsgarði
í Kjós. Á „Kátt í Kjós“ munu
t.d. þessi fyrirtæki kynna starf-
semi sína: Biobú á Neðra-Hálsi,
Matarbúrið á Hálsi, Ólaskógur á
Stekkjarflöt, matvælaframleiðslan
að Sogni, Gæludýragrafreiturinn að
Hurðarbaki, Kaffi Kjós og ferða-
þjónustan Hjalla, Ferðaþjónustur
að Eyrarkoti, Þúfu og Kiðafelli
1, Samansafnið að Kiðafelli,
Veiðikort ið/Meðalfel lsvatn,
Hvammsvík o.fl.
Í Félagsgarði verður alvöru
sveitamarkaður þar sem vörur úr
sveitinni verða kynntar og seldar
af um 20 aðilum. Kvenfélag
Kjósarhrepps verður með kaffisölu.
Íslandsmeistaramót Poulsen í
heyrúlluskreytingum verður haldið
þriðja árið í röð við Félagsgarð
ef heyskapur gengur að óskum.
Skólahreystibrautin verður sett upp á
vellinum við Félagsgarð og vonandi
verður hægt að koma af stað keppni
um frumlegustu fuglahræðuna. Opið
frá kl. 12-17.
Nánari upplýsingar er að finna á
www.kjos.is.
Kátt í Kjós
í Kjósinni