Bændablaðið - 07.07.2011, Qupperneq 16
Bændablaðið | fimmtudagur 7. júlí 201116
Páll Lárusson Rist, bóndi á Litla-
Hóli í Eyjafjarðarsveit verður
níræður 1. ágúst næstkomandi
og er að líkindum elsti starf-
andi bóndi landsins. Hann rekur
ásamt eiginkonu sinni, Kristínu
Þorgeirsdóttur, sauðfjárbú að
Litla-Hóli og voru þau með ríf-
lega 170 kindur á liðnum vetri og
9 hross.
„Já, ætli það ekki, því miður,“
segir Páll aðspurður hvort hann sé
ekki elsti starfandi bóndi landsins.
Hann segir Grím Jónsson í Klifshaga
í Öxarfirði hafa borið þann heiður
með sóma, „og helst vildi ég að hann
bæri titilinn áfram því hann er sannur
fjárræktarmaður. Ég heimsótti hann
í haust sem leið og fékk hjá honum
gullfallegan lambhrút, þannig að
við erum nú enn að og ekki hættir í
fjárbúskap. Við erum nokkurn veginn
á sama róli, þannig að við getum
skipt þessum titli með okkur,“ segir
Páll. Grímur í Klifshaga er árinu
yngri en Páll, fæddur árið 1922.
Markaði lömbin
með hárbeittum hníf
Foreldrar Páls voru Lárus Rist íþrótta-
kennari og Margrét Sigurjónsdóttir,
en Páll fæddist á Akureyri 1. ágúst
1921, yngstur í hópi 7 systkina.
Margrét lést ung og varð að ráði
eftir lát hennar að drengjunum var
komið fyrir á bæjum í Eyjafirði, en
systurnar fylgdu föður sínum. Páll
var sendur í fóstur á Litla-Hóli til
þeirra Vilhjálms Jóhannessonar og
Margrétar Ingimarsdóttur sem þaðan
var ættuð.
Páll bjó á Litla-Hóli til ársins
1958 og var við búskap með fóstur-
foreldrum sínum, búskapurinn var
blandaður, bæði kýr og kindur.
Vilhjálmur og Margrét brugðu búi
og Pál langaði að breyta til, þannig
að hann flutti til Akureyrar og gekk
þar til liðs við lögregluna þar sem
hann starfaði í ríflega þrjá áratugi,
til ársins 1991 er hann varð sjötugur.
Hann flutti aftur að Litla Hóli um
síðastliðin aldamót og hóf búskap
að nýju.
Páll rifjar upp að þegar hann var á
níunda ári, vorið 1930, var hann með
eldri manni í sauðburði. „Ærnar voru
hafðar í afgirtum bithaga með smá
aðhaldi og var mitt starf að handsama
lömbin, en gamli maðurinn markaði
þau með vasahnífnum sínum. Þetta
var skemmtilegur tími en ég hafði
nokkrar áhyggjur af því að líklega
gæti ég ekki orðið bóndi eins og mig
langaði til, því ég gæti ekki markað
lömbin með svona hárbeittum hníf,“
segir Páll.
Í Bændaskólanum á Hólum
Á árunum 1939 og 1940 var Páll við
nám í Bændaskólanum á Hólum og
lauk þaðan búfræðiprófi. „Þetta var
góður skóli, en á mínum námsárum
gafst ekki kostur á að læra neitt nýtt
á sviði hins verklega náms fram yfir
það sem sjá mátti á góðu bænda-
býli,“ segir Páll, en stóran þátt í því
átti langvarandi kyrrstaða í land-
búnaði. „Það voru til úrvalsgóðir
dráttarhestar á Hólum og um þá
var vel hugsað þannig að þeir áttu
góða daga með vinnunni. Hestarnir
urðu fljótt vinir manns, það var eitt-
hvað við þá sem greip mann, ein-
hver tengsl urðu á milli hestanna og
þeirra starfa sem verið var að fást
við,“ segir Páll og minnist þess að
ein dráttarvél hafi verið til á staðn-
um sem stöku sinnum var tekin til
plæginga, „en mörgum fanst bara
hentugra að gípa til hestanna.“
„....þá fóru menn að hugsa um
peninga“
Páll segir að hann hafi rétt náð í
skottið á gamla tímanum í sveitinni
á sínum barns- og unglingsárum
þegar kyrrstaða var ríkjandi. Að
hans mati urðu skörp skil í samfé-
laginu í kjölfar þess að breski her-
inn kom til landsins árið 1940, þá
hafi augu manna opnast eftir lang-
varandi stöðnunartímabil. „Þá strax
fóru menn að hugsa um peninga,
allir vildu safna peningum og eiga
sem mest af þeim til að kaupa fyrir
lífsins gæði,“ segir hann.
Á styrjaldarárunum safnaðist
upp gjaldeyrir í þjóðarbúinu en
honum var ekki hægt að eyða
á meðan stríðið stóð sem hæst,
einungis það nauðsynlegasta var
keypt. Eftir stríð var staðan því góð
og við bættist Marshall-aðstoðin
bandaríska. „Peningar eru afl þeirra
hluta sem gera skal, eins og mál-
tækið segir. Nú gátum við keypt
okkur það sem vantaði; dráttarvélar,
jarðýtur, skurðgröfur og margs
konar tæki önnur sem komu til
góða í landbúnaði og auðvitað fékk
sjávarútvegurinn sína togara sem
strax drógu björg í bú,“ segir Páll, en
með tilkomu tækninnar hafi hjólin
farið að snúast fyrir alvöru.
Osturinn sendur heim í
mjólkurdunkum
Kallað var eftir aukinni framleiðslu,
en bændur undu glaðir við sitt, segir
Páll og voru ánægðir með þau tæki
sem við höfðu bæst og léttu þeim
bústörfin. „Ég held það hafi aldrei
verið jafn skemmtilegt í sveitunum
og á þessum árum,“ segir hann.
Aukinni tækni fylgdi aukin fram-
leiðsla, hún jókst hratt þó svo að
fólkinu sem vann við bústörfin
fækkaði í sveitunum. „Það kom svo
að því einn daginn að bændum brá í
brún, framleiðslan var orðin of mikil
og þeir vöknuðu upp við það að skyr
og ostur úr samlögunum var sendur
heim á bæina í mjólkurdunkum. Ég
held að margur osturinn hafi rúllað
aftur í bæinn til vina og kunningja
sem svo aftur hafði í för með sér
að ekki jókst við það salan,“ segir
Páll en bætir við að á málum hafi
svo verið tekið með skynsemi og
úr þeim leyst.
„Ég hef nú aldrei verið með
neinn stórbúskap,“ segir Páll, en
rifjar upp að eitt haustið hafi ásetn-
ingsféð staðið í 200 kindum og eins
og gengur og gerist voru menn að
spyrja hversu margt fé yrði á fóðrum á
komandi vetri. „Ég varð að sjálfsögðu
að gefa upp rétta tölu, en datt rétt si
svona í hug að best væri að kaupa eina
kind til viðbótar svo ég gæti sagst vera
með á þriðja hundraðið,“ segir Páll, en
bætir við að til þess hafi ekki komið.
Fær góða aðstoð
Páll segist við sæmilega heilsu nú
þegar hann stendur rétt á níræðu og
að hann fái aðstoð við ýmis verk er
tengjast búskapnum.„Það er langt í
frá að ég standi einn í þessu, börnin
og tengdabörnin eru liðtæk og koma
á álagstímum og hjálpa okkur. Þá
eigum við hjónin góða vinafjölskyldu
á Akureyri sem alltaf er til staðar og
veitir okkur aðstoð. Það þarf aldrei að
biðja um hjálp, þau vita alltaf hvenær
þörf er fyrir þeirra krafta, en ég gæti
ekki staðið í þessum búrekstri gengi
ég ekki að þessari aðstoð vísri,“ segir
Páll. /MÞÞ
Páll Lárusson Rist á Litla-Hóli, elsti starfandi bóndi landsins, að verða níræður:
Rétt náði í skottið á gamla tímanum í sveitinni
Man ekki eins langvarandi
kuldakafla áður
Langvarandi kuldatíð stóð yfir á austan- og norðanverðu landinu frá því um
miðjan maí og til loka júní nú í ár. Hún setti mark sitt á bústörf bænda í þes-
sum landshlutum, kindur voru hafðar á húsi yfir sauðburðinn, lítið var hægt að
sinna jarðvinnu og heyskapur er mun seinna á ferðinni en vant er. Páll kveðst
ekki muna svo langvarandi kuldatíð áður. „Þetta var óvenjulangur kuldakafli,
ég man ekki til þess að hafi verið svona kalt í þetta langan tíma. Það komu oft
slæm áhlaup að vori og jafnvel í júní en þau stóðu yfirleitt stutt,“ segir Páll.
Áður fyrr þóttu honum skarpari skil á milli árstíða en nú er, veturinn leið með
sínum vetrarveðrum, á stundum stórhríðum sem stóðu linnulaust í allt að þrjá
sólarhringa en yfir sumarmánuðina, einkum fyrri part sumars var bjart og
hlýtt. Nú þykir Páli veðrið jafnara yfir árið og skilin milli árstíða ekki eins skörp
og áður.
„Við sluppum vel, bændur í framanverðum Eyjafirði, hér var góð tíð í lok apríl
og byrjun maí og gróður hafði tekið vel við sér áður en kuldatíðin skall á. Það
var því góður gróður á túnum og ágæt beit fyrir sauðfé. Við sluppum betur en
margir aðrir frá þessari miklu ótíð,“ segir Páll.
Öllum þykir okkur mikilvægt að
finna til öryggis í lífinu.
Dynjandi hefur verið leiðandi á
sviði öryggisvara síðan 1954.
Dynjandi örugglega fyrir þig!
ÖRUGGLEGA FYRIR ÞIG!
Skeifunni 3 - Sími: 588 5080 - dynjandi.is
Dynjandi hefur mikið úrval af
vatns-, borholu-, og háþrýsti-
dælum af ýmsum stærðum og
gerðum. Hafðu samband og
við aðstoðum þig.
Dynjandi örugglega fyrir þig!
HJÁ OKKUR F
ÆRÐU
VATNSDÆLU
R