Bændablaðið - 07.07.2011, Side 18

Bændablaðið - 07.07.2011, Side 18
Bændablaðið | fimmtudagur 7. júlí 201118 Undanfarin ár hefur Bjarni Eiríkur Sigurðsson fyrrum kenn- ari , skólastjóri og leiðsögumaður með meiru, unnið að bók þar sem hann reynir að svara því með rökum sem Njála upplýsir ekki um landnám Íslands. Segir hann að eftir að hafa kynnst vel sögum „leigupennans“ Ara fróða, þá hafi æ fastar sótt á hug sínum ýmsar frásagnir í Njálu sem voru á skjön við viðtekna söguskýringu um að víkingar hafi fyrstir numið hér land árið 874. Er Bjarni langt kominn með bókina sem mun bera heitið „Hugarflug Njáluhöfunda“ og vonast til að hún verði tilbúin til útgáfu næsta vetur. Öflugt bændasamfélag löngu fyrir tíð Ingólfs „Mín kenning er sú að hér hafi verið öflugt bændasamfélag löngu áður en Ingólfur Arnarson og norsku landnámsmennirnir sett- ust hér að. Þetta var friðsamt fólk, hákristið sem hefur flúið hingað frá Orkneyjum og víðar undan ofríki víkinga og víkingakonunga sem réðust á Bretlandseyjar.“ Urðu að treysa á bústofn frumbyggjanna „Víkingarnir gátu aldrei komið með á sínum 20 metra löngu og 7,5 metra breiðu skipum þann bústofn sem þeir þurftu til að lifa af. Bændur þekkja það manna best að það tekur nokkur ár að fá fjölda kinda út af tveim gimbrum, kú, hænum og tveim geitum eða svo til að um 20 manns geti lifað á því eins og algengt var á bæjum víkinganna. Þegar þessir strákar komu frá Noregi gátu þeir engan veginn komið með nægan bústofn í skipum sínum. Það hlaut því að hafa verið hér fyrir samfélag sem hafði bústofn sem þeir gátu gengið í til að komast af. Sá bústofn var i eigu þessa gallíska fólks sem kom hingað og hafði m.a. með sér þekk- inguna á að yrkja og kunni bæði að lesa og skrifa. Norðmennirnir voru ómenntaðir gaurar sem höfðu átt í sífelldum innanlandsárekstrum í Noregi áður en þeir fóru til Íslands. Þeir gerðu Írana sem hér voru að sínum leigu- liðum og neyddu þá til að sjá þeim fyrir mat. Ella yrðu þeir drepnir.“ Bústofninn ekki upprunninn í Noregi „Ég vil því með bók minni slá á þann krumpna hugsunarhátt að öll okkar dýr séu upprunnin í Noregi. Það er bara ekki rétt. Landnámshænan sem mikið er gert úr en verið er að rannsaka uppruna hennar á Hvanneyri, var löngu komin hingað á undan víkingunum. Hænurnar komu frá Írlandi. Ég var úti á Mön í Írlandshafi fyrir tveim árum og þar fann ég hænur sem voru nákvæm- lega eins og hænurnar okkar,“ segir Bjarni. Landnámið var mun fyrr en kennt hefur verið Athyglisvert er að kenningar Bjarna virðast þegar hafa verið staðfestar að nokkru með kolefnis- mælingum á munum úr uppgreftri á Suðurnesjum. Er það meira að segja svo að talið er líklegt að þörf sé á að endurskrifa íslenskar sögubækur. Aldursgreiningar á mannvistarleif- um á Reykjanesi sem Fréttablaðið greindi frá í júníbyrjun, sýna að dvöl fólks þar hafi mögulega náð aftur til ársins 770 eða fyrr. Það er meira en hundrað árum fyrir það landnám sem sögubækur greina frá að hafi átt sér stað árið 874. Aldursgreiningar á mannvist- arleifum í Höfnum á Reykjanesi sýna að skáli sem þar stóð var byggður töluvert fyrir árið 874. Kolefnisaldursgreining sýnir að sá skáli var yfirgefinn á tímabilinu 770 til 880 og draga má þær ályktanir að fólk hafi hafst þar við eitthvað fyrir þann tíma. Fornleifafræðingurinn Bjarni F. Einarsson telur að skálinn hafi verið útstöð erlendra manna frá Skandinavíu eða Bretlandseyjum og að hingað hafi menn sótt sér tekjur á borð við fugl, egg, hvalreka og fisk. Hann telur einnig að landnám hafi því orðið í kjölfar þess að hér hafi verið slíkar útstöðvar. Ýmislegt hefur komið fram sem styður kenningar um að Ísland hafi verið numið af fólki frá Bretlandseyjum mun fyrr en sögubækurnar kenna okkur. Kross í Seljalandshelli er t.d. talinn klappaður þar í bergvegg- inn um árið 800 eða fyrr en hann er sambærilegur krossum sem fundist hafa í Skotlandi frá þeim tíma. Mannvistarleifar við munna Kverkhellis á sömu slóðum sýna líka ummerki manna löngu fyrir árið 871 en greint var frá þeim á vefsíðunni Unreported Heritage News þann 23. desember 2010. Bjarni Eiríkur Sigurðsson reynir að finna sannleikann um upphaf byggðar á Íslandi í skrifum sínum og reynir að hrekja með rökum ýmis- legt úr Njálu. Telur hann ómögulegt annað en að hér hafi verið búið að koma á fót umtalsverðu bændasam- félagi áður en víkingarnir komu. Að öðrum kosti hefðu víkingarnir aldrei getað þraukað. Bók til að útskýra ýmsa hluti „Þessi bók er skrifuð til að útskýra ýmsa hluti sem ég fékk aldrei skýr- ingar á þegar ég las Njálu eða fór á námskeið í Njálu hjá Jóni Bö og fleirum. Landbúnaðurinn á Íslandi má gjarnan vita af því að Ari fróði og Sæmundur fróði voru leigu- pennar. Biskuparnir létu þá skrifa Íslendingabók, Flateyjarbók og Landnámu. Það er sérkennilegt að okkar ágætu fræðimenn, sem margir eru samt afskaplega snjallir, skuli aldrei hafa tekið þessa leigupenna betur í gegn. Biskupinn í Skálholti kærði sig ekkert um að verið væri að nefna það fólk sem hér var fyrir. Enda voru þetta viðkvæm mál. Leigupenni getur aldrei skrifað annað en það sem leigjandinn vill láta koma fram. Allt sem gerðist áður en norsku landnámsmenn- irnir komu er því látið liggja á milli hluta.“ Í landnámabók segir (s 145, H116) Þuríður sundafyllir fóru af Hálaugalandi og námu Bolungavík og bjuggu í Vatnsnesi Hún tók til á kollótta af hverjum bónda í Ísafirði. Hverjir bjuggu í Ísafirði þegar Þura kom þangað? Líkir Bjarni þessu við þá þekktu speki að sagan sé alltaf skrifuð af sigurvegurunum og hagrætt til að fegra þeirra sögu. Sögu þeirra sem tapa er þá ekki haldið á lofti og gleymist. „Af hverju kíkja fræðimennirnir ekki á augljós merki eins og tilurð kennileita á borð við Papey og Papós. Einnig Apavatn sem auðvitað hefur heitið Papavatn. Við getum líka nefnt Papafjall í Suðursveit og minjar sem þar eru. Það er skrítið að þessir fræðimenn okkar skuli ekki gera sér grein fyrir því að landnámsmennirnir svokölluðu gátu ekki lifað eingöngu af því sem landið gaf af sér. Þeir urðu að hafa aðgang að bústofni sem var Írskir bændur námu Ísland löngu á undan norskum víkingum: Landnámssagan var hugarflug Njálu- höfunda og skrifuð af leigupennum biskupa - segir Bjarni Eiríkur Sigurðsson sem er að skrifa bók til að upplýsa um það ósagt er sagt í Njálu Bjarni Eiríkur Sigurðsson hyggst koma á framfæri í nýrri bók því sem ekki er sagt í Njálu. Mynd / HKr. Menningarveisla Sólheima, verð- ur haldin laugardaginn 9. júlí. Að því er fram kemur í fréttatil- kynningu mun Unnur Birna og Munaðarleysingjarnir halda tón- leika í Sólheimakirkju kl. 14:00. Unnur Birna syngur og spilar á fiðluna og meðleikarar hennar eru Halldór Gunnar Pálsson á gítar, Tómas Jónsson á hljómborð, Óskar Þormarsson á trommur og Brynjar Páll Björnsson á bassa. Á dagskránni verða blús- lög, þjóðlög og frumsamið efni. Fjölbreyttir og fjörugir tónleikar í Sólheimakirkju! Fyrirlestur um gæði og miklvægi íslensks neysluvatns Hrólfur Sigurðsson, matvæla- fræðingur og sérfræðingur hjá Matís fjallar um gæði og mikilvægi íslensks neysluvatns. Fyrirlesturinn hefst í Sesseljuhúsi að loknum tón- leikum kl. 15:00. Menningarveislan stendur svo til 13. ágúst með tónleikum, fræðslu- fundum og listsýningum. Opið verður á Grænu könnunni og í versluninni Völu alla daga frá kl. 12:00-18:00 í sumar. Aðgangur er ókeypis og allir hjartanlega velkomnir. Menningarveisla Sólheima: Tónleikar og fyrirlestur Þórhildur Jónsdóttir frá Lambey í Fljótshlíð gerði þessar myndir af Njáli persónum í Njálu. Krossmark úr Seljalandshelli sem á samsvörun í krossum í Skotlandi frá því fyrir árið 800. Bjarni hefur áhuga á ýmsu öðru en fornsögunum. Þannig fékk hann hausa af villifé, sem var drepið eftir smölun í fjallinu Tálkna á milli Tálknafjarðar og Patreksfjarðar í janúar 2010. Ekki er að sjá á þes- haldið en þarna hafði gengið úti fé allt árið um kring áratugum saman. Kverkhellir. Í kjölfar eldgossins í Grímsvötnum, ákváðu stjórnendur Kraftvéla að gefa New Holland og Case IH eig- endum á öskufallssvæðinu nýjar loftsíur í dráttarvélarnar. Starfsmenn fyrirtækisins höfðu urðu úti í öskufallinu, og buðu þeim fríar loftsíur, og var það auðvitað kærkomin gjöf. Starfsmaður bú- vélasölu fór svo af stað með fullan bíl af loftsíum og dreifði til eigenda New Holland og Case IH dráttarvéla. New Holland og Case IH eigendur á gossvæðinu: Fengu fríar loftsíur frá Kraftvélum

x

Bændablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.