Bændablaðið - 07.07.2011, Qupperneq 25
25Bændablaðið | fimmtudagur 7. júlí 2011
Í haust verða liðin þrjú löng ár frá
hruni bankakerfisins. Þrátt fyrir
allt tal um að endurreisn bank-
anna hafi gengið vonum framar
er stór hluti landsmanna ennþá í
biðstöðu og óvissu um fjárhagslega
framtíð sína. Þetta á jafnt við um
flesta þjóðfélagshópa, hvort sem
þeir fá laun sín greidd frá öðrum
eða afla eigin fjár. Þessi óvissa
veldur heilsutjóni og magnar
þá kraumandi reiði sem enn er í
þjóðfélaginu vegna seinagangs og
óréttlætis.
Lausnirnar sem eru í boði eru
mismunandi útgáfur af nauðasamn-
ingum sem ná til allra framtíðar-
tekna. Þeir sem ekki eru nógu illa
staddir til að falla í þann flokk fá
litla sem enga úrlausn sinna mála,
nema að teygja og toga skuldirnar
þannig að greiðsluþol sé þanið til
hins ýtrasta, þó eru oftast einhverjar
gulrætur sem fylgja með. Þeir sem
hafa örlítið svigrúm eða vilja jafnvel
framkvæma fá litla sem enga fyrir-
greiðslu og alls ekki leiðréttingu. Þó
hefur Landsbankinn stigið fram fyrir
skjöldu, rétt fram litlafingur í sátta-
boði og boðið skuldurum landsins
örlitla dúsu í formi vaxtaafsláttar
sem lækki stökkbreyttar skuldir. En
betur má, ef duga skal.
Endurreikningur ólögmætra
gengistryggðra lána gengur hægt
og aðferðir eru ekki eins. Dómstólar
virðast dæma á grundvelli þess
hversu góðir lögfræðingar fjár-
málastofnananna voru í skjalagerð,
en ekki samkvæmt eðli máls. Ekki
er búið að skera úr um hvernig skuli
meðhöndla vaxtagreiðslur aftur
í tímann og ennþá virðist eiga að
láta reyna á sem flest lánaeyðublöð.
Núverandi endurreikningur, sem
framkvæmdur er jafnvel í fjórða
skiptið hjá sumum, virðist því ennþá
vera bráðabirgðaniðurstaða á meðan
ekki er búið að skera úr um ágrein-
ingsefnin og ekki virðist samnings-
vilji vera fyrir hendi í bankakerfinu.
Stefna fjármálastofnana virðist
því vera að innheimta eins og þær
geta, vera eins ósveigjanlegar og
þær komast upp með og umfram
allt að líta á viðskiptavini sína sem
tímabundna auðlind sem best sé
að þurrausa áður en hún hverfur.
Viðskiptavild var ofmetin fyrir hrun,
en nú virðist sem fjármálastofnanir
hafi ákveðið að hún skipti engu máli,
allavega ekki viðhorf þeirra við-
skiptavina bankanna sem eru í við-
skiptum nú þegar. Er það nema von
að flestir sem ég tala við séu að hugsa
um að skipta um viðskiptabanka við
fyrsta tækifæri. Enda virðist mark-
aðssetning fjármálastofnananna mið-
ast við að fá nýja viðskiptavini, ætli
þær sjái ekki að þeir gömlu fari við
fyrsta tækifæri, það er ef þeir losna
úr spennitreyju viðskiptabankanna.
Allt þetta og miklu meira til gerir
það að verkum að ég spyr mig að því
hvort íslenskar fjármálastofnanir hafi
hugsað sér að starfa til framtíðar á
viðskiptabankamarkaði hér á landi,
eða hvort þær séu að innheimta eins
mikið fé og hægt er áður en þær verði
lagðar niður?
Smádekk - Grasmunstur Stærð
DEKK
Útsölustaðir Útsölustaðir Útsölustaðir
SÍMI 440 1120
WWW.N1.ISN1 er leiðandi verslunar- og þjónustufyrirtæki á sviði bílatengdrar starfsemi fyrir einstaklinga og fyrirtæki.
Dráttarvéladekk - Radial Stærð
Dráttarvéladekk - Nylon Stærð
Kambdekk - 3RIB Stærð
Verð frá m/vsk
Vagnadekk Stærð
Fínmunstruð dekk Stærð
Dráttavéla framdekk Stærð
Verð geta breyst án fyrirvara
Verð frá m/vsk
Verð frá m/vsk
Verð frá m/vsk
Verð frá m/vsk
Tjaldvagna og fellihýsa dekk Stærð Verð frá m/vsk
Verð frá m/vsk
Verð frá m/vsk
Vesturland/Vestfirðir
N1 Akranesi 431-1379
Bílabær Borgarnesi 437-1300
Bifreiðaþ. Harðar Borgarnesi 437-1192
KM. Þjónustan Búardal 434-1611
G. Hansen Dekkjaþ. Snæfellsb. 436-1111
KB Bílaverkstæði Grundarfirði 438-6933
Dekk og smur Stykkishólmi 438-1385
Vélaverkst. Sveins Borðeyri 451-1145
Hjólbarðaverkstæði Ísafjarðar 456-3501
Bílaverkstæði S. B. ehf. Ísafirði 456-3033
Græðir sf. Varmadal, Flateyri 456-7652 Suðurland
Bifreiðav. Gunnars Klaustri 487-4630
Framrás Vík 487-1330
Gunnar Vilmundar Laugarvatni 486-1250
Vélaverkstæðið Iðu 486-8840
Hjólbarðaþjón. Magnúsar Selfossi 482-2151
Bifreiðav. Jóhanns Hveragerði 483-4299
Bílaþjónustan Hellu 487-5353
Varahl.v. Björns Jóh. Lyngási ,Hellu 487-5906
Hvolsdekk Hvolsvelli 487-8005
Austurland
Bifreiðav. Sigursteins Breiðdalsvík 475-6616
Vélsmiðja Hornafjarðar 478-1340
Bíley Reyðarfirði 474-1453
Réttingav. Sveins Neskaupsstað 477-1169
Bifreiðav. Sigursteins Breiðd.vík 475-6616
Höfuðborgarsvæðið
N1 Mosfellsbæ 440 1378
N1 Réttarhálsi 440 1326
N1 Fellsmúla 440 1322
N1 Reykjavíkurvegi 440 1374
N1 Ægissíðu 440 1320
N1 Bíldshöfða 440 1318
Norðurland
Vélav. Hjartar Eiríkss. Hvammst. 451-2514
Kjalfell Blönduósi 452-4545
Bílaverkstæði Óla Blönduósi 452-2887
Vélav. Skagastrandar Skagaströnd 452-2689
Pardus Hofsósi 453-7380
Hjólbarðaþ. Óskars Sauðárkróki 453-6474
Kf. Skagfirðinga Sauðárkróki 455-4570
B.H.S. Árskógsströnd 466-1810
Bílaþjónustan Húsavík 464-1122
Suðurnes
N1 Vesturbraut 552
Vallarheiði 440 1372
320/70 R 24 82.900
320/85 R 24 99.000
360/70 R 24 125.900
380/70 R 24 116.900
420/70 R 24 143.900
480/65 R 24 154.900
340/85 R 28 109.900
420/85 R 28 110.900
440/65 R 28 161.900
480/65 R 28 174.900
540/65 R 28 199.900
420/85 R 30 164.900
480/70 R 30 154.000
420/85 R 34 178.900
460/85 R 34 179.900
480/70 R 34 189.900
480/70 R 38 209.000
520/70 R 38 229.900
540/65 R 38 252.500
600/65 R 38 383.000
8.3 - 24 46.900
9.5 - 24 46.900
11.2 - 24 56.900
12.4 - 24 59.400
14.9 - 24 70.900
16.9 - 24 69.000
16.9 - 26 90.900
11.2 - 28 58.900
12.4 - 28 65.500
13.6 - 28 68.900
14.9 - 28 79.900
16.9 - 28 99.900
16.9 - 30 114.900
16.9 - 34 134.900
18.4 - 34 143.000
13.6 - 36 69.900
4.00 - 16 12.900
4.50 - 16 12.900
6.00 - 16 17.500
6.50 - 16 18.300
7.50 - 16 20.900
9.00 - 16 29.000
1000 - 16 39.900
1100 - 16 56.900
4.00 - 19 16.900
7.50 - 20 21.900
7.50 - 10 28.500
10.0/80 - 12 22.500
10.0/75 - 15.3 29.900
11.5/80 - 15.3 42.900
12.5/80 - 15.3 46.900
400/60 - 15.5 52.900
15.0/55 - 17 52.500
19.0/45 - 17 73.500
500/50 - 17 89.900
500/60 - 22.5 149.900
550/60 - 22.5 139.000
600/40 - 22.5 169.900
600/50 - 22.5 189.000
13x5.00 - 6 5.700
15x6.00 - 6 7.600
16x6.50 - 8 8.700
18x6.50 - 8 8.500
18x8.50 - 8 13.900
20x8.00 - 8 15.900
20x10.00 - 8 16.800
20x8.00 - 10 13.500
20x10.00 - 10 18.500
23x8.50 - 12 19.900
23x10.50 - 12 29.100
24x13.00 - 12 30.900
24x8.50 - 12 21.700
26x12.00 - 12 39.900
3.00 - 4 3.490
4.00 - 4 4.290
3.50 - 6 6.500
4.00 - 8 8.400
3.00 - 4 2.390
4.00 - 4 2.990
3.50 - 6 4.300
4.00 - 6 3.300
15x6.00 - 6 5.900
3.50 - 8 3.390
4.80/4.00 - 8 2.900
16x6.50 - 8 8.600
18x8.50 - 8 10.900
5.00 - 8 12.500
16.5x6.50 - 8 14.900
18.5x8.50 - 8 12.900
20.5x8.00 - 10 23.900
20.5x10.00 - 10 26.900
145/80 R 10 10.500
195/55 R 10 31.900
145/80 R 12 10.900
155/70 R 12 23.900
155/80 R 12 14.900
185/60 R 12 30.900
155/80 R 13 17.900
175/80 R 13 23.900
195/50 R 13 34.900
Ætla fjármálastofnanir landsins
að starfa hér til framtíðar?
Búrekstur
Ráðunautur í búrekstri og hagfræði
Jóhanna Lind Elíasdóttir
Bændablaðið
Smáauglýsingar. 5630300