Bændablaðið - 07.07.2011, Qupperneq 26

Bændablaðið - 07.07.2011, Qupperneq 26
26 Bændablaðið | fimmtudagur 7. júlí 2011 Utan úr heimi Í grein Pelle Neroth í tímaritinu E&T (Engineering and Technology Magazine) í apríl er bent á að Evrópusambandið sé nær algjör- lega háð utanaðkomandi ríkjum um olíu. Það sárvanti aðgengi að Norðurheimsskautssvæðinu og því sé nú mikil áhersla lögð á að ná Íslandi inn í ESB. Er þetta samhljóða orðum þingmanns Evrópuþingsins í óformlegum viðræðum við fulltrúa BÍ fyrir skömmu. Í greininni segir að nýlegur fundur Norðmanna á olíu í Barentshafi hjálpi ESB lítið, þar sem Noregur standi utan sambandsins. Stríðið um yfirráð yfir olíulindunum í fram- tíðinni muni snúast um aðgengi að Norðurheimskautinu. ESB vilji ná þar ítökum sem sambandið hefur ekki í dag. Bent hefur verið á að þó Danir séu í ESB, þá standa Grænlendingar utan þess og hafa engan áhuga á aðild. Segir Pelle Neroth, sem er frétta- ritari E&T hjá Evrópusambandinu, að þetta hafi beint athygli ESB að Íslandi sem hafi mögulega auðlindir á sínu yfirráðasvæði og aðgengi að þessum hafsvæðum, þó það sé ekki í sama mæli og Noregur og Rússland. Þá geti Reykjavík orðið Hong Kong norðursins á 21. öldinni varðandi flutninga um leið og siglingaleiðir opnist á milli Asíu, Evrópu og Ameríku yfir Norðurheimskautið. Það skipti miklu máli fyrir orku- hungraða Evrópu. Það hafi því verið sérlega góðar fréttir fyrir ESB þegar Íslendingar ákváðu að sækja um aðild að sambandinu. Vondu frétt- irnar séu hinsvegar sú mikla andstaða íslenskra kjósenda við að ganga í Evrópusambandið sem hafi endur- speglast í þjóðaratkvæðagreiðslunni um Icesave-málið. ESB hefur áhyggjur af þjóðaratkvæðagreiðslu „ESB hefur raunverulega ástæðu til að hafa áhyggjur. Jafnvel þótt Íslendingar endurgreiði skuldir sínar vegna efnahagshrunsins liggur annað vandamál óleyst. Þegar aðildar- viðræðum lýkur hefur íslenska ríkisstjórnin þær skyldur að leggja samninginn í þjóðaratkvæða- greiðslu. Sem stendur bendir allt til að Íslendingar séu mótfallnir aðild þó ekki sé út af öðru en yfir- ráðum fyrir fiskimiðunum. Fiskimið ESB eru verulega ofnýtt. Því munu íslensk fiskimið opna nýja möguleika fyrir örvæntingarfulla fiskimenn í Evrópusambandinu. Siglingaleiðin um Norður- heimskautið er möguleiki. Þegar Íslendingar segja nei við ESB ættu menn að líta til annarra smáríkja við svipaðar aðstæður. Singapúr varð ein af þýðingarmestu hafnarborgum heims og viðskiptamiðstöð og það án þess að vera í nánu sambandi við aðra.“ Niðurstaða greinarhöfundar E&T er að ESB verði að leggja mikið meira á sig í samningaviðræðum við Íslendinga til að ná markmiðum sínum um aðgengi að orku í norðri. Engu er líkara en forsvarsmenn ESB hafi tekið þessum orðum Pelle Neroth sem áskorun því á vegum ESB eru nú kynntar markvissar styrkveitingar til fjölbreyttra verk- efni á Íslandi. Markmið ESB eru ítök í hafsvæðunum umhverfis Ísland Þessi grein í E&T er athyglisverð í ljósi óformlegra viðræðna sem fulltrúar Bændasamtaka Íslands áttu við einn af þingmönnum Evrópusambandsins nú í vor en hann hefur jafnframt tekið þátt í samningaviðræðunum vegna aðildarumsóknar Íslands að ESB. Hann sagði þar hreint út, að megin- markmið Evrópusambandsins væri að ná ítökum í Norður-Atlantshafinu með tengingu inn í Norður-Íshafið. Evrópusambandið væri tilbúið að seilast ansi langt til að ná því markmiði. Vegna stöðu sinnar sem þingmaður á Evrópuþinginu og jafn- framt sem fulltrúi í viðræðunum við Íslendinga sagðist hann þó ekki geta sagt þetta undir nafni. Hann hafði samt ekkert á móti því að þetta kæmi upp á yfirborðið. Samningsferlinu ekki breytt Þingmaðurinn sagði líka athyglis- verða umræðuna hérlendis um að viðræðum verði flýtt og áhersluröð hugsanlega breytt varðandi land- búnaðar- og sjávarútvegsmál. Slíkt sé einfaldlega ekki inni í myndinni. ESB hafi skýrt markaða stefnu í sinni samningatækni. Viðræður muni taka þrjú til fjögur ár og sá tími verði ekk- ert styttur. Þar verði helstu ágrein- ingsatriðin geymd þar til síðast. ESB horfir til norðurs Talsvert hefur verið skrifað í erlend- um fjölmiðlum og á vefsíðum um vaxandi áhuga Evrópusambandsins á Norðurslóðum. Staðfesta þær það sem kemur fram í grein E&T og orð Evrópuþingmannsins. Bent er á að ESB sé þegar farið að búa sig undir að ná ítökum í Norður-Íshafinu. Einn liður í því væri plagg sem lagt hafi verið fyrir Evrópuþingið undir fyrirsögninni „The European Union and the Arctic Region“. Í janúar 2011 var einnig lagt fram plagg um stefnumörkun ESB fyrir Norðurheimskautið, sem það á þó lítinn sem engan aðgang að í dag (European Parliament Resolution of 20 January 2011 on a sustainable EU policy for the High North). Heimildir: Engineering and Technology Magazine, 19. apríl 2011 - European Commission - European Parliament Ísland er lykill ESB að Norður- Atlantshafi og norðurslóðum - Meginástæða fyrir áhuga Evrópusambandsins á Íslandi segir E&T Kína styrkir tengsl sín við Brasilíu Kína leitar fyrir sér víða um heim um kaup á korni og öðrum mat- vælum en íbúafjöldi landsins er kominn á annan milljarð og þurrkar hafa dregið þar úr upp- skeru á stórum svæðum. Athygli Kínverja hefur í þeim efnum beinst í vaxandi mæli að Brasilíu en óvíða ef nokkurs staðar á byggðu bóli eru meiri möguleikar á að auka matvælaframleiðslu. Sl. hálft ár hafa Kína og Brasilíu gert með sér stóra viðskiptasamn- inga. Íbúar Brasilíu hafa brugðist af nokkurri tortryggni við þeim, en viðurkenna jafnframt að þeir geti verið bændum landsins hagstæðir. Áhugi Kínverja á þessum við- skiptum stafar að hluta til af því að þeim er í mun að losa sig undan því að vera háðir Bandaríkjunum um þessi viðskipti og leita því nýrra viðskiptasambanda. Efst á óskalista þeirra í viðskiptum við Brasilíu eru þó jarðakaup. Frá árinu 2008 hafa Kína og Saudí-Arabía keypt 5,6 milljón hektara ræktunarlands í Afríku, sem svarar til allrar ræktunar Bandaríkjanna á maís og hveiti. Bændur í Brasilíu gefa hins vegar ekki kost á slíkum viðskiptum. Samningar Brasilíubúa og Kínverja á fyrrihluta þessa árs, 2011, hafa hins vegar verið fólgnir í því að veita brasilískum bændum lán til að marg- falda framleiðslu sína á sojabaunum sem Kínverjar sækjast eftir, m.a. til skepnufóðurs. Í forsetatíð Lulu da Silva í Brasilíu var gerður stór viðskipta- samningur við Kína, sem skipaði Brasilíu í efsta sæti í utanríkisvið- skiptum Kínverja, en auk matvæla kaupa þeir einnig m.a. járngrýti þaðan. Þá hafa Kínverjar fjárfest í stórum stíl í brasilískum orkufyrir- tækjum. Þessi miklu viðskipti við Kína hafa átt mikinn þátt í því að lyfta efnahag um 20 milljóna Brasilíubúa upp úr mikilli fátækt. Á hinn bóginn hafa þessi miklu samskipti vakið verulegar áhyggjur í Brasilíu. Árið 2010 voru hráefni 84% af útflutningi Brasilíu til Kína og höfðu aukist úr 68% árið 2000. Innflutningur frá Kína til Brasilíu hefur á sama tíma einkum verið iðnaðarvörur, þar á meðal bílar. Brasilískur iðnaður stendur því gagnvart risastóru verkefni að bæta úr því, en samskipti landanna minna óþægilega mikið á að Brasilía sé nýlenda Kína. Tilraunir Kínverja til kaupa á jarðnæði í Brasilíu hafa mætt þar mikilli andspyrnu og stjörnvöld í Brasilíu hafa gert ýmsar ráðstaf- anir gegn þeim. Dómsmálaráðherra Brasilíu, Luis Inácio Adams, gekkst fyrir lagabreytingum sem torvelda verulega að útlendingar geti keypt þar jarðnæði. Hið sama gerðist í Argentínu. Dómsmálaráðherra Brasilíu, Adams, lagði áherslu á að það væri vegna eftirspurnar margra landa eftir jarðnæði í Brasilíu að lagabreytingin var gerð og að hún beindist ekki ein- vörðungu að Kína. Kaup útlendinga á jarðnæði þar verða þó ekki bönnuð en strangar reglur settar um þau, sagði Adams í viðtali við New York Times. (Nationen, 23. júní 2011) Brasilía eftirsótt Jarðakaup útlendinga í Brasilíu hafa aukist verulega frá árinu 2008, skv. skýrslu Alþjóðabank- ans. Kina og Saudí-Arabía eru þar stórtækust. Kína hefur leitað víðar eftir kaupum á jarðnæði, bæði í Afríku og á Filippseyjum, en þar hefur þeim verið mótmælt harðlega. Alþjóðabankinn áætlar að fjárfestingar efnaðra landa í jarðnæði í þróunarlöndum nemi alls um 50 milljörðum dollara. Stór hluti af þessum landkaupum er ætlaður til framleiðslu á lífeldsneyti. Kína sækist mest eftir sojabaun- um til dýrafóðurs og þá einkum handa svínum.

x

Bændablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.