Bændablaðið - 07.07.2011, Side 34

Bændablaðið - 07.07.2011, Side 34
34 Bændablaðið | fimmtudagur 7. júlí 2011 Bræðurnir Ásgeir og Barði tóku við búi af foreldrum sínum árið 1998 og byrjuðu strax að byggja og stækka bústofninn jafn og þétt. Árið 2006 byggðu þeir nýtt 430 fermetra fjárhús. Faðir þeirra tók við af föður sínum upp úr 1960 og kaupir jörðina í framhaldi af því. Áður hafði Innri-Múli verið leigujörð frá Haga. Á bænum voru kýr og kindur fram til 1990, en þá var mjólkurkvótinn seldur og keypt greiðslumark í sauðfé. Býli? Innri-Múli. Staðsett í sveit? Barðaströnd í Vesturbyggð. Ábúendur? Sveinn og Kristín ásamt sonum sínum tveimur, Barða og Ásgeiri. Fjölskylda Ásgeirs, Birna og strákarnir þeirra Óliver Logi og Frosti Þór, er búsett á Bildudal. Fjölskyldustærð (og gæludýra)? Sveinn og Kristín eiga átta börn og helling af barnabörnum. Hundarnir eru þrír Tryggur, Perla og Dimma – allt Border Collie hundar. Stærð jarðar? Ræktað land er 25 ha og sameiginlegur úthagi með Ytri-Múla er 660 ha. Tegund býlis? Sauðfjárbú. Fjöldi búfjár og tegundir? 850- 900 kindur. Hvernig gengur hefðbundinn vinnudagur fyrir sig á bænum? Með morgungjöfum og svo eftir hádegið er gert það sem þarf að gera hvert sinn og dagurinn endar með kvöldgjöfum. Skemmtilegustu/leiðinlegustu bústörfin? Heyskapur og smala- mennskur eru skemmtilegastar en hitt er allt svipað skemmtilegt. Hvernig sjáið þið búskapinn fyrir ykkur á jörðinni eftir 5 ár? Með svipuðum hætti. Hvaða skoðun hafið þið á félagsmálum bænda? Finnst bændasamtökin bitlaus í garð stjórnvalda! Bændur hafa tekið á sig gríðarlegar kjaraskerðingar og hækkanir á aðföngum en lítið sem ekkert heyrist frá bændasamtök- unum til varnar bændum. Hvernig mun íslenskum land- búnaði vegna í framtíðinni? Vel ef við höfnum aðild að ESB. Hvar teljið þið að helstu tæki- færin séu í útflutningi íslenskra búvara? Á íslenska lambinu og mjólkurafurðum. Hvað er alltaf til í ísskápnum? Mjólk! Hver er vinsælasti maturinn á heimilinu? Grillaðir hryggvöðvar. Eftirminnilegasta atvikið við bústörfin? Þegar við fluttum fyrstu kindurnar í nýja fjárhúsið 2007. 2 9 8 7 2 6 7 4 5 8 3 9 4 5 2 5 6 7 2 7 2 9 7 1 1 3 4 1 3 5 1 7 2 5 4 6 7 8 3 1 9 5 2 2 8 3 1 7 4 9 7 5 5 2 8 1 2 9 7 2 6 3 5 1 8 6 2 9 Sudoku Galdurinn við Sudoku-þrautirnar er að setja réttar tölur frá 1-9 í eyðurn ar. Sama talan má ekki koma fyrir tvisvar í línu lárétt og lóð rétt og heldur ekki innan hvers reits sem afmarkaður er af sverari lín um. Þrautirnar eru miserfiðar, sú sem er lengst til vinstri er léttust og sú til hægri þyngst en sú í miðjunni þar á milli. Hægt er að fræðast nánar um Sudoku-þrautirnar á vefsíðunni www.sudoku2.com og þar er einnig að finna fleiri þrautir ef þessi skammtur nægir ekki. Líf og lyst Kalt kaffi á heitum sumardögum Það er skemmtileg tilbreyting á heitum sumardögum að fá sér ískalt og hressandi ískaffi í stað þess að drekka heita kaffidrykki. Síðan er hægt að leika sér með samsetningar, vanilla, kanill eða mynta passa til dæmis einstaklega vel saman við kaffi, ísmola og örlítið rjómatár! Ískaffi með vanillubragði Aðferð: Takið kaffið og setjið í kokteil- hristara eða einhverskonar hristara sem er nógu stór. Bætið sykrinum út í og látið standa í um 30 sekúnd- ur eða svo og bætið þá mjólk eða rjóma út í og klakamolum. Berið fram í fallegu glasi með röri. Suðurríkja-ískaffi Aðferð: Setjið kaffi og krydd í skál og hrærið saman. Látið standa í klukkustund á köldum stað undir loki. Þá er kaffið síað í stóra könnu og líkjörnum hrært saman við og kannan fyllt með ísmolum. (Úr bókinni Matarást). /ehg MATARKRÓKURINN 8 er engin hindrun Innri-Múli BÆRINN OKKAR

x

Bændablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.