Bændablaðið - 07.07.2011, Qupperneq 35
35Bændablaðið | fimmtudagur 7. júlí 2011
Kattaeigendur kannast við það hvað það er
erfitt að hafa hemil á heimiliskettinum á
vorin og sumrin þegar fuglarnir eru að koma
upp ungunum sínum. Þá dugar ekkert nema
góð hálsól og ein eða fleiri bjöllur til að vara
umhverfið við að köttur sé á ferð. Hér kemur
uppskrift að heklaðri hálsól með bjöllu sem
hringir í hvert sinn sem kisa hreyfir sig, ekki
skemmir fyrir að ólin er mýkri og léttari en
plastól.
Hálsól 1
Garnið heitir Frapan og liturinn er no 70924
fjólublátt.
Heklunál nr 3,5.
Aðferð:
Fitjið upp 35-40 loftlykkjur eða það margar
sem þarf kringum hálsinn á kisa. Snúið við og
heklið 1 stuðul í hverja loftlykkju. Snúið við
og heklið 12 fastalykkjur í næstu 12 stuðla,
*2 stuðla í 3ja stuðul frá fastalykkjunni, 1
tvöfaldan stuðul, 2 loftlykkjur, 1 tvöfaldan
stuðul og 2 stuðla í sömu lykkju þannig að
það myndist tunga, 1 fastalykkju í 3ja stuðul
frá miðjunni á tungunni* endurtakið þrisvar.
Þannig eiga að myndast 3 tungur fyrir miðju,
heklið fastalykkjur út á enda. Heklið 3 loft-
lykkjur og tengið þannig að myndist lítið
hnappagat. Saumið litla tölu í hinn endann.
Hengið svo 1-3 bjöllur framan í hálsbandið.
Hálsól 2:
Garn Whistler frá Garn.is bleikt.
Heklunál nr 3,5.
Aðferð:
Fitjið upp 35-40 loftlykkjur, eða það sem þarf
kringum hálsinn á kisa. Snúið við og heklið
1 stuðul í hverja loftlykkju til enda. Snúið
við og heklið 2 loftlykkjur , *3 stuðla í 3ju
lykkju frá síðustu fastalykkju , 2 loftlykkjur
og 3 stuðla í sömu lykkju, 1 fastalykkju í
þriðju lykkju frá síðasta stuðli* endurtakið
6 sinnum og heklið svo fastalykkjur til enda,
heklið 3 loftlykkjur og tengið svo myndist
hnappagat. Klippið frá og gangið frá enda,
saumið litla tölu hinum megin. Hengið eina
eða fleiri bjöllur framan á hálsbandið.
Ég vona svo að þið eigið gott sumarfrí.
Prjónakveðja;
Inga Þyrí
Hekluð hálsól
Axel Ingi Auðunsson er Sand-
gerðisbúi á ellefta ári sem æfir
knattspyrnu og mun eyða lungan-
um úr sumrinu í að sparka í tuðrur.
Hann mun þó eitthvað kíkja í tölvu
þegar tími gefst til og þá er, að hans
mati, skemmtilegast að vera á fés-
bókinni.
Nafn: Axel Ingi Auðunsson.
Aldur: 10 að vera 11 ára.
Stjörnumerki: Ljón.
Búseta: Sandgerði.
Skóli: Grunnskólinn í Sandgerði.
Hvað finnst þér skemmtilegast í
skólanum? Heimilisfræði.
Hvert er uppá-
halds dýrið þitt?
Blettatígur.
Uppáhalds-
matur: Pítsa.
Uppáhalds-
hljómsveit:
Black Eyed Peas.
Uppáhalds-
kvikmynd: Fast
and the Furious.
Fyrsta minn-
ingin þín? Þegar
Gróa amma dó.
Æfir þú íþróttir, eða spilarðu á
hljóðfæri? Já, fótbolta.
Hvað er það skemmtilegasta
sem þú gerir í tölvu? Að vera á
Facebook.
Hvað ætlar þú að verða þegar
þú verður stór? Atvinnumaður í
fótbolta.
Hvað er það klikkaðasta sem þú
hefur gert? Að hoppa af trampólíni
í heitan pott úti í Lúxemborg.
Hvað er það leiðinlegasta sem þú
hefur gert? Að fara í skólann.
Ætlar þú að gera eitthvað sérstakt
í sumar? Ég fór á N1-mótið á
Akureyri. /ehg
Hoppaði af trampólíni ofan í heitan pott
Axel Ingi æfir
knattspyrnu og
stefnir á að verða
atvinnumaður.
Tómás Helgason fæddist í
Hnífsdal 23. apríl 1918. Hann
lést á Landspítalanum 16. júní
sl. Útför Tómásar fór fram frá
Fossvogskirkju föstudaginn 24.
júní sl.
Ég kynntist Tómási lítillega
þegar hann vann í fornbókaverslun,
en ég leit oft þar inn um skeið.
Fljótlega fann ég að hann vissi allt
um bókmenntir er snertu landbúnað
og hvar hugsanlegt var að ná í það
sem mig vanhagaði um. Þegar
Tómás komst að því að ég var
Hvanneyringur, var eins og hann
ætti í mér hvert bein. Hann ræddi
alltaf um dvölina á Hvanneyri með
ljóma í augum og félagar hans,
skólabræðurnir, voru honum dýr-
mætir, bæði sem félagar og vinir.
Eftir að ég kom að Hvanneyri
og tók við skólastjórn og 100
ára afmæli Bændaskólans nálg-
aðist komu þeir til mín, Tómás
og Magnús Óskarsson kennari.
Erindið var að Tómás vildi láta
okkur Hvanneyringa vita af þeim
óskum sínum og Vigdísar konu
hans, að ánafna skólanum bóka-
safn það sem Tómás hafði komið
sér upp. Tómás var að kanna hvort
Bændaskólinn hefði áhuga á að
taka við safninu. Eftir alllangar
umræður og kynningu á umfangi
safnsins, varð mér ljóst að hér
dygði ekki einfalt já, eða að lýsa
vilja til að taka við safni þeirra
hjóna. Hér þurfti meira til. Við
Magnús Óskarsson vorum þó sam-
mála um að það yrði mikil lyfti-
stöng fyrir fræðastörf við skólann
að eignast þetta mikla bókasafn
um landbúnað. Seinna kynnti ég
óskir Tómásar og Vigdísar fyrir
kennurum og öðrum starfsmönn-
um skólans. Allir voru sammála
um að þetta yrði mikill fengur og
hróður fyrir stofnunina. Hafa ber
í huga að rafræna byltingin var
ekki hafin á þessum árum!
Öllum var hins vegar ljóst að
hér dygði ekki að segja bara já
og láta þar við sitja. Það þyrfti að
koma þessu safni fyrir í sómasam-
legu húsnæði og tryggja öryggi
þeirra verðmæta sem þar er að
finna. Verkefni mitt var því að
útvega fjármagn, svo hægt væri
að hefjast handa við að innrétta
sérstakt herbergi fyrir Tómásar-
og Vigdísarsafn. Ég fór því á
fund ráðuneytisstjóra landbún-
aðarráðuneytisins, Sveinbjörns
Dagfinnssonar, og kynnti málið
fyrir honum. Viðbrögð ráðu-
neytisins voru jákvæð. Sérstök
fjárveiting til skólans vegna
afmælisins var myndarleg og var
fjárveitinganefnd Alþingis með-
vituð um bókagjöfina og því með-
mælt að tekið yrði við henni.
Innréttað var sérstakt her-
bergi á jarðhæð Skólastjórahúss,
þar sem bókasafn skólans var til
húsa. Þetta herbergi var að fullu
innréttað og tilbúið þegar kom að
formlegri afhendingu safnsins.
Á hundrað ára afmæli skólans,
24. júni 1989, var hátíðlegasta
athöfnin þegar Tómás ahenti
einkasafn þeirra hjóna sem gjöf til
skólans. Það gerði hann með því að
afhenda afrit af Reykholtsmáldaga
ásamt fleiri fágætum bókum.
Eins og fram hefur komið annars
staðar er safnið sennilega full-
komnasta safn bóka og bæklinga
um landbúnað sem til er í landinu.
Reyndar var margt fleira í safninu,
t.d. auglýsingaspjald frá upphafi
notkunar tilbúins áburðar í land-
búnaði, svo eitthvað sé nefnt. Eftir
1989 hefur Tómás bætt við safnið
nær árlega ritum sem honum hafa
áskotnast eða hann keypt til að fylla
uppí eða bæta við.
Hvanneyringar minnast
Tómásar með virðingu og þökkum.
Við hjónin vottum aðstandendum
samúð og þökkum þeim þátt þeirra
í að hlúa að og fegra líf heiðurs-
hjónanna Vigdísar Björnsdóttur og
Tómásar Helgasonar frá Hnífsdal.
Gerður og Sveinn Hallgrímsson
Minningarorð
Tómás Helgason
frá Hnífsdal
YFIRHEYRSLA
PRJÓNAHORNIÐ Á hundrað ára afmæli skólans, 24. júni 1989, var hátíðlegasta athöfnin þegar Tómas afhenti einkasafn þeirra hjóna sem gjöf til skólans.
Lesendabásinn
Bændur, sveitarfélög,
sumarhúsaeigendur
Borum fyrir heitu og köldu vatni. Áratuga reynsla.
Ræktunarsamband Flóa og Skeiða ehf
Sími 480 8500 - www.raekto.is