Bændablaðið - 07.07.2011, Page 40

Bændablaðið - 07.07.2011, Page 40
13. tölublað 2011 Fimmtudagur 7. júlí Næsta tölublað Bændablaðsins kemur út 18. ágúst Hjá okkur færðu betri verð Varahlutir og rekstrarvörur í: • New Holland dráttarvélar og heyvinnutæki • Case IH / Steyr dráttarvélar og heyvinnutæki • Komatsu vinnuvélar • Zetor dráttarvélar • Fella Heyvinnutæki • Alö Quicke ámoksturstæki • Kongskilde jarðvinnutæki • Weidemann smávélar • Överum plóga • Howard jarðtætara og rótherfi • Nordsten sáðvélar Útvegum varahluti í allar gerðir véla og tækja Dalvegi 6-8 201 Kópavogur Sími 535 3500 www.kraftvelar.is kraftvelar@kraftvelar.is Mikið um að vera í Grýtubakkahreppi - Mikil gróska í atvinnulífi og ferðamenn streyma að: Grenivíkingar leggjast í víking með elsta sparisjóð landsins Viðgerð á sundlauginni á Grenivík er lokið og nýtt þjónustuhús hefur verið reist á tjaldstæðinu Atvinnulífið er einstaklega öflugt og nú hyggjast Grenvíkingar fara í sókn með Sparisjóð Höfðhverfinga og opna útibú á Akureyri í haust. „Það var eins og við manninn mælt, að um leið og sólin byrjaði að skína iðaði hér allt í mannlífi,“ sagði Guðný Sverrisdóttir sveitarstjóri í samtali við Bændablaðið. Var hún þá nýbúin að setja pistil inn á heima- síðuna um að nú vantaði aðeina ferða- mennina. „Hér var frábært veður, sól og 20 stiga hiti um síðustu helgi. „Það er voða gaman að fá alla þessa ferðamenn en ég held samt að við komum seint til með að lifa á ferða- þjónustunni hér á Grenivík,“ segir Guðný. Þar hefur atvinnulíf af öðrum toga verið mjög blómlegt og ekkert atvinnuleysi. Í Grýtubakkahreppi standa landbúnaður og sjávarútvegur styrkum stoðum og margvíslegur annar atvinnuvegur. Þar má nefna lyfjafyrirtækið PharmArctica, sem framleiðir lyf og snyrtivörur. Útibæu sparisjóðsins opnað á Akureyri „Þá er starfandi á Grenivík elsti sparisjóður landsins, Sparisjóður Höfðhverfinga. KEA og Akureyrarbær hafa verið að auka þar sitt stofnfé. „Nú ætlum við bara að leggjast í víking með sparisjóð- inn. Trúlega verður opnað útibú á Akureyri í haust. Það er allavega í hendi hvað sem framtíðin ber annars í skauti sér.“ Til viðbótar þessum tíðindum hefur Bæjarverk verið í startholunum með að hefja malbikun í plássinu. Þá er verið að standsetja upplýsingamið- stöð í Jónsabúð og mun hún vera að taka til starfa þessa dagana. Eins er búið er að opna tvö gallerý á Grenivík, Gallerý Miðgarða og Gallerý Glóa en að auki er Útgerðarminjasafnið opið daglega eftir hádegið fram til 15. ágúst. Mikið líf í fiskvinnslu og útgerð „Gjögri er hér með fiskvinnslu og síðan er Darri með harðfiskverkunina. Ætli það vinni ekki um 40 manns á þessum stöðum í sumar. Síðustu misserin hefur gengið mjög vel hér í atvinnulífinu og maður vonar að svo verði áfram. Uppsjávarveiðiskipið Hákon hefur verið í viðhaldi og eins frystitogarinn Frosti en bæði skipin eru með heimahöfn á Grenivík. Þessi skip eru nú farin að fiska aftur á fullu,“ segir Guðný. /HKr./MÞÞ Grenivík. Mynd / MÞÞ

x

Bændablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.