Fréttablaðið - 16.01.2012, Síða 1

Fréttablaðið - 16.01.2012, Síða 1
veðrið í dag HANDBOLTI Strákarnir okkar í handboltalandsliðinu eru mættir til Serbíu og spila sinn fyrsta leik á Evrópumótinu á móti Króötum í kvöld. Íslenska liðið er án þeirra Ólafs Stefánssonar og Snorra Steins Guðjónssonar og þá er óvissa hvort markvörðurinn Björgvin Páll Gústavsson geti verið með í kvöld en hann lá uppi í rúmi í gær með hita. „Það er alltaf sérstök tilfinn- ing að hefja leik á stórmóti. Það er um margt að hugsa þessa dagana en við undirbúum okkur af kost- gæfni og höfum verið duglegir að greina króatíska liðið síðustu daga. Það er allt mögulegt en við verðum samt að ná algjörum toppleik til þess að vinna,“ segir Guðmundur Guðmundsson landsliðsþjálfari en íslenska liðið hefur aldrei náð að vinna Króata á stórmóti. Aron Rafn Eðvarðsson, mark- vörður Hauka, var kallaður til Serbíu vegna veikinda Björgvins Páls. „Auðvitað vonum við að Björg- vin hristi þetta af sér en við vild- um ekki taka neina áhættu og þess vegna hringdum við í Aron. Hann verður því til taks ef Björgvin hressist ekki,“ segir Guðmundur Guðmundsson landsliðsþjálfari. - óój, hbg / sjá síðu 18 MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI* Sími: 512 5000 *Samkvæmt prentmiðlakönnun Capacent Gallup júlí - september 2011 Mánudagur skoðun 10 2 SÉRBLÖÐ í Fréttablaðinu Allt Fasteignir.is 16. janúar 2012 13. tölublað 12. árgangur Sölufulltrúar: Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Brynja Dan Gunnarsdóttir brynjadan@365.is 512 5465 Snorri Snorrason snorris@365.is 512 5457 D óra Hansen, innan-húsarkitekt og ein af eigendum Eitt A innanhúsarkitektar, hefur hannað lampa úr íslenskum rekavið Sí Lighthouse og nú er hann tilbú-inn til framleiðslu. Dóra er á leið-inni með lampann á Stockholmfurniture & light f i mig máli að nýta innlenda fram-leiðslumöguleika “ segir Dótré í Sænska hönnunarteymið Claesson Koivisto Rune hefur hannað þennan stól með áföstu borði sem svar við síaukinni fartölvunotkun almennings. Stóllinn er hannaður fyrir ítalska húsgagnaframleiðandann Tacchini. Íslenskur lampi úr rekavið á leið á Stockholm furniture & light fair í febrúar.Innlend framleiðsla Öflugir TUDOR High Tech rafgeymar fyrir jeppa. FASTEIGNIR.IS 16. JANÚAR 2012 3. TBL. Heimili fasteignasala hefur til sölu gott parhús í Salahverfi Kóp Gott parhús í Salahverfi Húsið er á tveimur hæðum, haganlega skipulagt og vel innréttað. Á Heimili fasteignasölu starfa öflugir fasteignasalar með áratuga reynslu í faginu sem eru tilbúnir að vinna fyrir þig með vönduð vinnubrögð að leiðarljósi. Okkar verkefni eru: - Sala og kaup íbúðarhúsnæðis - Sala og kaup atvinnuhúsnæðis - Sala og kaup sumarhúsa - Leigusamningsgerð - Verðmöt - Raðgjöf á fasteignamarkaði heimili@heimili.is Sími 530 6500 Bogi Molby Pétursson lögg.fasteignasali Finnbogi Hilmarsson lögg.fasteignasali Andri Sigurðsson sölufulltrúi og lögg. leigumiðlari Tryggvi Kornelíusson sölufulltrúi Ásdís Írena Sigurðardóttir skjalagerð Eignir óskast! - Nýleg 3-4ra herbergja miðsvæðis - Sérbýli í Hafnarfirði í skiptum fyrir 4ra herbergja - Sérhæð í vesturbæ í skiptum fyrir parhús H úsið er á tveimur hæðum og stendur neðan götu og frá því er útsýni. Húsið er skráð 204,3 fermetrar. Íbúðarrými er 180,2 fm og innbyggður bílskúr er 24,1 fm. Byggingarár er 2003. Á suðurhlið hússins eru 14 4 f li er haganlega skipulagt og vel innréttað. Á efri hæð er tvöföld stofa og þrjú til fjögur svefnherbergi á neðri hæð. Gólf- efni í húsinu eru parket og flísar en flestar innréttingar eru úr eik. Á Skoðanir fasteigna og leiguíbúða. Verðmöt fasteigna. P d i 5 Vantar allar gerðir eigna á skrá VÍTAMÍND Fæst í verslunum um allt land. Nánar á www.yggdrasill.is frá NOW fyrir börn og fullorðna fiskurinn Mánudags Fáðu uppskriftina á gottimatinn.is Ruglið um álfana Árni Björnsson er áttræður í dag og berst enn fyrir því að afhjúpa ýmiskonar rugl. tímamót 12 Innanhúsarkitektinn Dóra Hansen Hannar lampa úr íslenskum rekavið. allt Á UPPLEIÐ Guðjón Valur Sigurðsson og Aron Pálmarsson verða í stórum hlutverkum hjá íslenska liðinu á Evrópumótinu í Serbíu. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM HLÝNAR LÍTIÐ EITT Í dag má búast við vaxandi SA-átt, einkum sunnan- og suðaustantil, víða 10-15 m/s. Rigning og síðar skúrir víða sunnanlands en úrkomulítið annars staðar, einkum NA-til. Hlýjast syðst. VEÐUR 4 6 0 1 5 4 Á leiðinni til Utah Kvikmyndagerðarmaðurinn Helgi Jóhannsson er á leiðinni til Utah með stuttmyndina sína. fólk 22 REYKJAVÍK Tíu milljónir króna sem Reykjavíkurborg setti í svokall- aðan Silfursjóð eftir góðan árang- ur íslenska handboltalandsliðs- ins á Ólympíuleikunum árið 2008 hafa nú verið færðar til. Pening- arnir munu ekki nýtast til að gefa ungmennum kost á að kynnast handbolta eins og ákveðið var. Þetta kemur fram í grein eftir Geir Sveinsson, borgarfulltrúa og fyrrverandi landsliðsmann í handbolta, í Fréttablaðinu í dag. Tuttugu milljónir voru settar í sjóðinn árið 2008 og ákveðið að úthluta fimm milljónum á ári næstu fjögur ár. Úthlutað var tvisvar úr sjóðnum áður en hann var sameinaður Forvarnasjóði Reykjavíkurborgar. Ekki hefur fengist fé úr þeim sjóði til að sinna verkefni Silfursjóðsins. - bj / sjá síðu 11 Sjóðir borgarinnar sameinast: Silfursjóðurinn gufaður upp GEIR SVEINSSON HEILBRIGÐISMÁL Mörg stærstu matvælafyrirtæki landsins eru meðal þeirra sem hafa keypt iðnaðarsalt af Ölgerðinni til að nota við matvælaframleiðslu. Listi yfir þá tugi fyrirtækja sem um er að ræða var birtur á vef Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur í gær. Þar á meðal eru Slátur- félag Suðurlands, Kjarnafæði og Mjólkursamsalan. Upp komst að iðnaðarsalt hefði verið selt til matvæla- fyrirtækja fyrr í vetur og um miðjan nóvember gerði Mat- vælastofnun (MAST) heilbrigð- iseftirlitinu grein fyrir málinu. Í tilkynningu frá heilbrigðiseft- irlitinu kemur fram að þá hafi MAST greint frá ákvörðun sinni um að leyfa Ölgerðinni að selja þær saltbirgðir sem eftir voru. Heilbrigðiseftirlitið var ekki sammála þeirri ákvörðun. Jóhannes Gunnarsson, for- maður Neytendasamtakanna, sagði í samtali við Fréttablað- ið að þó að vissulega mætti gera athugasemdir við eft- irlitsstofnanir og birgja sé ábyrgðin fyrst og fremst hjá matvælaframleiðendunum. „Það brýtur í bága við reglur að nota iðnaðarsalt í matvæli og það er þar sem brotin eiga sér stað.“ Steingrímur J. Sigfússon, sjávarútvegs- og landbúnaðarráð- herra, segir ráðuneytið líta málið alvarlegum augum og farið verði grannt yfir málið. Spurður um möguleg áhrif málsins á ímynd íslenskr- ar matvælaframleiðslu segir Steingrímur málið óheppilegt. „En það fer allt eftir því hvern- ig brugðist verður við og hvort menn sýni með trúverðugum hætti að slíkt muni ekki gerast aftur. Trúverðugleiki og orðstír ræðst að miklu leyti af því að menn taki með einurð á því þegar svona kemur upp.“ Einar Sigurðsson, forstjóri Mjólkursamsölunnar, sagði í gær- kvöld að fyrirtækið hafi ekki haft vitneskju um að umrætt salt hafi ekki verið ætlað til matvælafram- leiðslu. Það hafi hins vegar verið notað í skamman tíma í aðeins tvær vörur af rúmlega 500 hjá fyrirtækinu. Einar segir málið afar bagalegt fyrir fyrirtækið. „Við leggjum upp úr að vera með fyrsta flokks fram- leiðslu og hráefni og þess vegna er mjög óþægilegt þegar atvik af þessu tagi koma upp. Við brugðumst strax við þessu og dreifðum eftir það engum mjólkurvörum sem inni- héldu iðnaðarsalt.“ - þj / sjá síðu 6 Risarnir keyptu iðnaðarsalt Mörg af stærstu matvælafyrirtækjum landsins eru meðal kaupenda að iðnaðarsalti sem Ölgerðin seldi. Ráðherra segir viðbrögð þeirra skipta máli ef ímynd íslenskrar matvælaframleiðslu á ekki að skaðast. Það brýtur í bága við reglur að nota iðnað- arsalt í matvæli og það er þar sem brotin eiga sér stað. JÓHANNES GUNNARSSON FORMAÐUR NEYTENDASAMTAKANNA Íslenska handboltalandsliðið spilar sinn fyrsta leik á EM í Serbíu í kvöld: Þurfa toppleik á móti Króötum Frábær byrjun Gylfa Gylfi Þór Sigurðsson lagði upp sigurmark Swansea í frumrauninni í ensku úrvalsdeildinni. sport 19 Í GULLVAGNINUM Margrét Þórhildur Danadrottning fagnaði um helgina 40 ára krýningarafmæli sínu og var mikil hátíðardagskrá í tilefni þess. Meðal annars ók hún um götur Kaupmannahafnar í gylltum hestvagni. Hún nýtur mikillar hylli og er vinsælasti konungborni þjóðhöfðingi Evrópu. NORDICPHOTOS/AFP

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.