Fréttablaðið - 16.01.2012, Side 2
16. janúar 2012 MÁNUDAGUR2
SPURNING DAGSINS
BRIDS
SKÓLINN
- - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - -
Byrjendur ... 23. janúar ... 8 mánudagar frá 20-23
Framhald ... 25. janúar ... 8 miðvikudagar frá 20-23
- - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - -
Á námskeiðinu fyrir byrjendur er farið vel yfir
leikreglur og undirstöður hins vinsæla Standard-sagnkerfis.
Byrjað alveg frá grunni og hægt að mæta ein/einn.
Á framhaldsnámskeiðinu er Standard-kerfið
skoðað í meiri smáatriðum og tæknin slípuð í úrspili og
vörn. Ekki nauðsynlegt að koma með makker.
Staður: Síðumúli 37 í Reykjavík.
Sjá nánar á bridge.is undir ”fræðsla”.
- - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - -
Uppl. og innritun í síma 898-5427 frá 13-18 daglega.
ALÞINGI Verði drög að frumvarpi
að nýjum vopnalögum samþykkt
á Alþingi verður þremur íþrótta-
greinum innan Skotíþróttasam-
bands Íslands sjálfhætt þar sem
nýliðun og uppfærsla á byssum
verður útilokuð.
Í drögunum, sem birt hafa verið
á vef innanríkisráðuneytisins, er
gert ráð fyrir algeru banni á því
að Íslendingar eigi hálfsjálfvirkar
byssur, hvort sem þær eru ætlaðar
til íþróttaiðkunar eða ekki.
Stjórn Skotíþróttasambands
Íslands mun funda vegna málsins
á þriðjudag, og líklegt að í kjöl-
farið verði óskað eftir fundi með
Ögmundi Jónassyni innanríkis-
ráðherra um málið, segir Halldór
Axelsson, formaður sambandsins.
„Með þessu er að óbreyttu verið
að loka fyrir þrjár íþróttagreinar
sem stundaðar hafa verið hér á
landi síðustu 40 árin,“ segir Hall-
dór. Í öllum þremur greinunum er
skotið í mark með skammbyssu.
Þó að bannað verði að flytja inn
og selja ákveðnar tegundir skot-
vopna samkvæmt frumvarpsdrög-
unum stendur ekki til að banna
þeim sem eiga slík vopn þegar
lögin taka gildi að halda þeim. Þess
vegna munu þeir sem í dag stunda
skotfimi geta haldið því áfram, en
nýliðun verður engin og ekki verð-
ur hægt að uppfæra byssurnar,
segir Halldór.
Hann bendir á að mikill upp-
gangur hafi verið í skotfimi á und-
anförnum árum. Nú stundi um
2.500 manns skotfimi, og árangur í
þessum greinum hafi verið frábær.
Skotveiðimenn eru hins vegar
ánægðir með frumvarpsdrögin.
„Við erum búnir að bíða lengi eftir
þessu, það verður mjög gott að
Frumvarpsdrög úti-
loka íþróttagreinar
Þremur skotíþróttum verður sjálfhætt verði drög að nýjum vopnalögum sam-
þykkt óbreytt á Alþingi. Engin undanþága fyrir skotíþróttir í drögunum. Skot-
veiðimenn fagna nýjum lögum sem setja strangari skilyrði fyrir byssueign.
SKOTFIMI Í þremur íþróttagreinum sem stundaðar eru hér á landi notast íþrótta-
menn við hálfsjálfvirkar skammbyssur. Þær verða bannaðar samkvæmt drögum
að frumvarpi að nýjum vopnalögum. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
Samkvæmt drögum að frumvarpi að nýjum vopnalögum þurfa þeir sem
vilja fá leyfi til að eiga skotvopn að vera reglusamir, og getur lögregla aftur-
kallað leyfið gerist leyfishafar sekir um stórfelld fíkniefnabrot, ofbeldisverk,
umferðalagabrot eða önnur sambærileg brot.
Samkvæmt drögunum mega þeir sem hafa skotvopnaleyfi ekki eiga
meira en 20 byssur, og þurfa að geyma þær í tryggilega læstum skotvopna-
geymslum. Einnig verða öll hálfsjálfvirk vopn bönnuð með öllu, að undan-
skildum haglabyssum sem aðeins taka tvö skothylki.
Hámarksrefsing fyrir stórfelld brot á lögunum munu varða allt að átta
ára fangelsi. Stórfelld brot eru til dæmis brot sem varða mörg eða sérlega
hættuleg vopn, og ef tjón eða hætta hefur hlotist af brotinu.
Reglusemi skilyrði fyrir skotvopnaleyfi
fá þetta í gegn,“ segir Elvar Árni
Lund, formaður Skotveiðifélags
Íslands.
Hann segir þau lög sem nú gilda
ónákvæm, og þeim fylgi óvissa
hvað varðar breytingar á byssum
sérstaklega. Þá séu ekki nægilega
ströng skilyrði fyrir því hverjir
megi eiga byssur í lögunum í dag,
og úr því eigi að bæta.
Elvar segir það ekki trufla þorra
skotveiðimanna að takmarka eigi
byssueign þeirra við 20 skotvopn.
„Ég held að flestir séu langt undir
þessu hámarki, og þeir sem eiga
mikinn fjölda af byssum eru orðn-
ir safnar og geta sótt um sérstakt
leyfi fyrir því.“ brjann@frettabladid.is
ÍTALÍA Suður-kóreskum brúðhjónum á þrítugsaldri
var snemma í gærmorgun bjargað úr braki ítalska
skemmtiferðaskipsins Costa Concordia, sem strand-
aði við eyna Giglio undan vesturströnd Ítalíu á
föstudagskvöld. Nokkru síðar var ítölskum manni
úr áhöfn skipsins bjargað úr brakinu, alvarlega
slösuðum á fótum.
Kafarar, sem leituðu í skipinu í gær, fundu lík
tveggja eldri karlmanna í þeim hluta þess sem er á
kafi. Til samans hafa fimm lík fundist í brakinu, en
15 manns var enn saknað í gærkvöld.
Sjónarvottar segja að skipstjórinn Francesco
Schettino hafi eytt lunganum af föstudagskvöldinu
á barnum í félagsskap konu. Þá hafi hann verið
meðal þeirra fyrstu sem yfirgáfu skipið eftir að það
strandaði.
Sjálfur segist skipstjórinn, sem nú situr í gæslu-
varðhaldi, hafa verið síðastur frá borði. Hann segir
að klettarnir sem skipið strandaði á hafi ekki verið
merktir inn á sjókortið sem siglt var eftir.
Margir farþeganna sem lifðu slysið af líktu
reynslu sinni við senu úr bíómyndinni Titanic. Þeir
hafi verið að snæða kvöldmat þegar mikið högg kom
á skipið. Vatn hafi þá tekið að flæða inn og skipið
fljótt farið að halla. Mikill ótti hafi gripið um sig
meðal farþega en litlar leiðbeiningar hafi fengist
frá áhöfn um hvernig ætti að yfirgefa skipið.
Um 4.200 manns voru um borð í skemmtiferða-
skipinu. - hhs
Fimm lík hafa fundist í ítalska skemmtiferðaskipinu sem strandaði á föstudag:
Brúðhjónum bjargað úr flakinu
SKIPBROTSMENN Kaldir og hraktir farþegar stíga á land eftir
að hafa verið bjargað úr sökkvandi skemmtiferðaskipinu Costa
Concordia á föstudagskvöld.
SLYS Vélsleðamaður slasaðist
töluvert í slysi á Mosfellsheiði síð-
degis í gær. Maðurinn var ásamt
félaga sínum á vélsleða á heið-
inni þegar hann flaug fram af
snjóhengju. Talið er að fallið hafi
verið um 10 metrar.
Sérútbúinn sjúkrabíll var send-
ur á vettvang og var maður flutt-
ur á slysadeild Landspítalans.
Björgunarsveitir voru kallaðar
út en þeim var snúið við eftir að
sjúkraflutningamenn komust
sjálfir að manninum.
Vísir greindi frá því í gærkvöld
að maðurinn hefði hlotið höfuð-
áverka en væri ekki í lífshættu.
- rat
Vélsleðaslys á Mosfellsheiði.
Féll 10 metra
fram af hengju
ELDSVOÐI Vistmaður á Kleppi,
karlmaður á fertugsaldri, hefur
viðurkennt að hafa kveikt í
starfsmannahúsi á lóð spítalans á
laugardagskvöld.
Allt tiltækt slökkvilið var
kallað á vettvang, þegar tilkynn-
ing barst lögreglu um hálf ell-
efu á laugardagskvöld. Vel gekk
að slökkva eldinn, en húsið er
talsvert skemmt.
Íbúðin var mannlaus þegar
lögregla og slökkvilið kom á stað-
inn. Sjúklingurinn sagðist hafa
kveikt í íbúðinni vegna sjúkdóm-
stengdra ranghugmynda sinna
um að eitthvað væri að í húsinu.
- hhs
Eldsvoði á laugardagskvöld:
Vistmaður á
Kleppi kveikti í
Aflaverðmætið eykst stórum
Skip þeirra átta útgerða, sem skiluðu
mestu aflaverðmæti á liðnu ári,
fiskuðu fyrir 72 milljarða króna eða
20% meira en árið áður, samkvæmt
samantekt Fiskifrétta. HB Grandi er
nú sem fyrr efsta fyrirtækið á þessum
lista með nálægt 18 milljarða í
aflaverðmæti.
SJÁVARÚTVEGUR
KÓPAVOGUR Bæjarstjóra Kópa-
vogs, Guðrúnu Pálsdóttur, hefur
verið sagt upp störfum. Guð-
ríður Arnardóttir, oddviti Sam-
fylkingarinnar í Kópavogi, til-
kynnti Guðrúnu um uppsögnina
á föstudag.
Deilt er um umboð Guðríðar
milli þeirra flokka sem mynda
meirihluta í bænum. Þeir eru,
auk Samfylkingarinnar, Vinstri
græn, Næst besti flokkurinn og
Listi Kópavogsbúa.
Guðrún Pálsdóttir var ráðin
bæjarstjóri eftir kosningar, en
hún starfaði áður sem embættis-
maður hjá Kópavogsbæ.
Óánægja hefur verið með störf
Guðrúnar meðal bæjarfulltrúa
meirihlutans. Sérstaklega hefur
verið óánægja með að dóttir Guð-
rúnar hafi um tíma haft bíl sem
Guðrún hafði frá bænum á meðan
Guðrún notaði aðra bíla bæjarins,
eins og fjallað var um í Frétta-
blaðinu. Einnig er óánægja með
hvernig staðið var að ritun sögu
bæjarins.
Samkvæmt heimildum er ekki
samstaða um hvernig standa átti
að uppsögninni. Einhverjir bæj-
arfulltrúar töldu rétt að bíða eftir
því að nýr bæjarstjóri yrði ráð-
inn, og eru þeir ósáttir við fram-
göngu Guðríðar í málinu. - bj, þþ
Bæjarfulltrúar meirihlutans ekki sammála um hvernig staðið var að uppsögn:
Bæjarstjóra Kópavogs sagt upp
GUÐRÍÐUR
ARNARDÓTTIR
GUÐRÚN
PÁLSDÓTTIR
SÓMALÍA Tugir þúsunda Sómala
munu hafa látið lífið af völdum
hungursneyðarinnar sem nú ríkir
í suðurhluta Sómalíu áður en úr
vandanum leysist.
Þetta fullyrðir Mark Bowden,
yfirmaður Hjálparstofnunar
Sameinuðu þjóðanna í Sómalíu, í
viðtali við BBC. Bowden segir að
allt að helmingur barna í Sómal-
íu sé vannærður. Hlutfall van-
nærðra fari lækkandi, en þó verði
líklega neyðarástand í landinu
næstu sex til sjö mánuðina.
Sameinuðu þjóðirnar áætla
að ein og hálf milljón manna
hafi hrakist frá heimilum sínum
vegna neyðarástandsins sem nú
ríkir í landinu. - hhs
Þúsundir deyja úr hungri:
Neyðarástand í
hálft ár í viðbót
Á HRAKHÓLUM Ein og hálf milljón
manna hefur hrakist frá heimilum sínum
vegna hungursneyðarinnar sem nú ríkir í
suðurhluta Sómalíu.
Eyjólfur er farið að blása
byrlega fyrir ykkur?
„Veðurhorfurnar eru allavegana
góðar.“
Eyjólfur Jóhannsson rafverktaki stefnir
að því ásamt félaga sínum að framleiða
rafmagn með vindmyllu á Héraði.
ALÞINGI Þingmenn snúa aftur úr
jólafríi í dag og hefja þingstörf.
Útkljá þarf mörg deilumál, meðal
annars um fiskveiðistjórnunar-
mál, vernd og nýtingu náttúru-
svæða og tillögu um afturköllun
ákæru á hendur Geir H. Haarde
fyrir landsdómi.
Til stendur að taka tillögu
Bjarna Benediktssonar, for-
manns Sjálfstæðisflokksins, um
afturköllun ákærunnar, fyrir á
föstudag. Sumir stjórnarþing-
manna vilja beita sér fyrir frávís-
un á tillögunni. - bj
Þingmenn úr jólafríi í dag:
Deilt um aftur-
köllun ákæru
SLÖKKVILIÐ
Bátur sökk í Kópavogshöfn
Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu
var kallað út klukkan 4 aðfaranótt
sunnudags þar sem bátur hafði
sokkið í Kópavogshöfn. Slökkviliðið
dældi upp úr bátnum. Ekki er vitað
hvað olli því að hann sökk.