Fréttablaðið - 16.01.2012, Blaðsíða 39

Fréttablaðið - 16.01.2012, Blaðsíða 39
MÁNUDAGUR 16. janúar 2012 15 Bókmenntir ★★★★ Náttúrugripasafnið Sigrún Eldjárn Mál og menning 2011 Það sem fyrst vekur athygli við Náttúrugripasafnið eftir Sigrúnu Eldjárn er flott hönnun bókarinn- ar. Sniðugar myndir eru nánast á hverri einustu opnu, bókin er líka falleg á litinn, fer vel í hendi og er í alla staði mjög girnilegur prentgripur. Sigrún er vel þekkt- ur myndlistarmaður og sér vita- skuld sjálf um myndskreytingar, en einnig brýtur hún bókina um. Sagan hentar börnum á aldr- inum 8-12 ára og hún fjallar um börn á því aldursbili. Aðalpersón- urnar eru Rúnar, sem býr ásamt föður sínum í þorpinu Ásgarði, og systkini af indverskum uppruna, þau Magga og Lilli, sem búa á sama stað með sínum foreldrum. Sagan er römmuð inn með frá- sögn af ömmu systkinanna Möggu og Lilla, en hún býr á Indlandi og veit ekki hvernig hinum ættleiddu barnabörnum hennar hefur reitt af. Hún sendir þeim pakka, en innihald hans leikur síðan lykil- hlutverk í sögunni. Rúnar tekur líka með sér dularfullan pakka úr skrítinni verslun í New York og fer með hann heim til Íslands í trássi við vilja móður sinnar. Það sem í honum leynist kemur líka heldur betur á óvart og af stað fer æsileg atburðarás. Náttúrugripasafnið er fantasía þar sem dvergar leika lausum hala, forsögulegur maður vaknar til lífsins, beinagrind löngu látinnar stúlku á safni tekur til sinna ráða og kettir hugsa líkt og menn. S a ga n er bæ ði skemmtileg og spenn- andi, en höfundur legg- ur líka lykkju á leið sína til þess að fræða hina ungu lesendur sína. Það verður þó aldrei „skólabókarlegt“ eða predikandi, heldur er fræðslan mjög smekk- lega felld inn í söguna og sett fram á einfaldan hátt. Gott dæmi er t.d. þegar krakkarnir fá dularfullt bréf sem inniheldur orð sem þau skilja ekki: Rúnar skýst inn í pabba herbergi og sest við tölvuna. Hann finnur fljótlega orða- bók á netinu og slær inn þetta undarlega orð. „Hey, hlustaðu, hérna er þetta. Það stendur: gísl –s, -ar, KK: maður afhentur eða tekinn í gæslu til trygg- ingar því að samningar takist (haldist) eða farið sé eftir fyrirmælum.“ Hann lítur á Möggu. „Ég skil þetta nú ekki almennilega, en þú? Hvað þýðir til dæmis þetta: -s, -ar og KK? Er þetta eitthvert dulmál? „Nei, bjáninn þinn! Þetta er málfræði,“ svarar Magga hneyksluð. „Kanntu ekki að fletta upp í orðabók? Ég skal útskýra þetta fyrir þér.“ (106-107) Fróðleikurinn er ekki einung- is málfræðilegur, heldur verða börn líka nokkurs vísari um fornleifa- og náttúrufræði (faðir Rúnars stendur í að koma á fót náttúrugripasafni í þorpinu) auk þess sem rammafrásögnin um uppruna systkinanna er falleg og til þess ætluð að undirstrika að „hjörtum mannanna svipar saman …“ eins og þar stendur. Sigrúnu Eldjárn tekst ákaflega vel upp með þessa sögu. Að vísu er sumt í henni heldur lítt undirbyggt eða útskýrt (eins og t.d. ástæða þess að tugþúsund- ára gömul múmía skuli liggja á lausu í lítilli búðarholu í New York – og hin sáraeinfalda aðferð sem síðar er notuð til að vekja þá múmíu til lífsins) en sem betur fer eru börn yfirleitt ekki neinir raunsæisþrælar, heldur taka hinu fantastíska fagnandi – og það er ég sannfærð um að þau gera við lesturinn á Náttúrugripasafninu. Þórunn Hrefna Sigurjónsdóttir Niðurstaða: Hressileg saga fyrir fróð- leiksfúsa og ævintýragjarna krakka. Hressileg saga fyrir fróðleiksfúsa krakka Hljómsveitin Guns N‘ Roses vinnur nú að plötu, þeirri sjöundu í röðinni. Platan myndi fylgja eftir plötunni Chinese Democracy, en aðdáendur hljómsveitarinn- ar biðu eftir henni í tæp 15 ár. DJ Ashba, gítarleikari Guns N‘ Roses, segir í viðtali við vefsíð- una Mamasfallenangels.com að hann vinni nú að nýjum lögum ásamt Axl Rose, forsprakka hljómsveitarinnar. „Að gera nýja plötu er algjört forgangsmál hjá okkur,“ segir Ashba. „Ég get ekki beðið eftir að hefja upptökur. Axl á tonn af nýjum lögum. Við höfum setið saman inni á hótel- herbergi á meðan hann spilar fyrir mig ný lög klukkustundum saman. Og ég er búinn að semja fleiri en tíu lög sem hann kann að meta.“ DJ Ashba vill ekki gefa upp hvenær platan kemur út. Það er því ljóst að sparkspekingur- inn Hjörvar Hafliðason og aðrir aðdáendur Guns N‘ Roses bíða með öndina í hálsinum þar til frekari fréttir berast. Ný plata forgangsmál NÝ PLATA Axl Rose ku vera afar frjór þessa dagana.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.