Fréttablaðið - 16.01.2012, Síða 39
MÁNUDAGUR 16. janúar 2012 15
Bókmenntir ★★★★
Náttúrugripasafnið
Sigrún Eldjárn
Mál og menning 2011
Það sem fyrst vekur athygli við
Náttúrugripasafnið eftir Sigrúnu
Eldjárn er flott hönnun bókarinn-
ar. Sniðugar myndir eru nánast
á hverri einustu opnu, bókin er
líka falleg á litinn, fer vel í hendi
og er í alla staði mjög girnilegur
prentgripur. Sigrún er vel þekkt-
ur myndlistarmaður og sér vita-
skuld sjálf um myndskreytingar,
en einnig brýtur hún bókina um.
Sagan hentar börnum á aldr-
inum 8-12 ára og hún fjallar um
börn á því aldursbili. Aðalpersón-
urnar eru Rúnar, sem býr ásamt
föður sínum í þorpinu Ásgarði, og
systkini af indverskum uppruna,
þau Magga og Lilli, sem búa á
sama stað með sínum foreldrum.
Sagan er römmuð inn með frá-
sögn af ömmu systkinanna Möggu
og Lilla, en hún býr á Indlandi og
veit ekki hvernig hinum ættleiddu
barnabörnum hennar hefur reitt
af. Hún sendir þeim pakka, en
innihald hans leikur síðan lykil-
hlutverk í sögunni. Rúnar tekur
líka með sér dularfullan pakka úr
skrítinni verslun í New York og fer
með hann heim til Íslands í trássi
við vilja móður sinnar. Það sem í
honum leynist kemur líka heldur
betur á óvart og af stað fer æsileg
atburðarás.
Náttúrugripasafnið er fantasía
þar sem dvergar leika lausum hala,
forsögulegur maður vaknar til
lífsins, beinagrind löngu látinnar
stúlku á safni tekur til
sinna ráða og kettir
hugsa líkt og menn.
S a ga n er bæ ði
skemmtileg og spenn-
andi, en höfundur legg-
ur líka lykkju á leið sína
til þess að fræða hina
ungu lesendur sína.
Það verður þó aldrei
„skólabókarlegt“ eða
predikandi, heldur er
fræðslan mjög smekk-
lega felld inn í söguna
og sett fram á einfaldan hátt. Gott
dæmi er t.d. þegar krakkarnir fá
dularfullt bréf sem inniheldur orð
sem þau skilja ekki:
Rúnar skýst inn í
pabba herbergi og
sest við tölvuna. Hann
finnur fljótlega orða-
bók á netinu og slær
inn þetta undarlega
orð.
„Hey, hlustaðu, hérna
er þetta. Það stendur:
gísl –s, -ar, KK:
maður afhentur eða
tekinn í gæslu til trygg-
ingar því að samningar
takist (haldist) eða farið
sé eftir fyrirmælum.“
Hann lítur á Möggu. „Ég skil
þetta nú ekki almennilega, en þú?
Hvað þýðir til dæmis þetta: -s, -ar
og KK? Er þetta eitthvert dulmál?
„Nei, bjáninn þinn! Þetta
er málfræði,“ svarar Magga
hneyksluð. „Kanntu ekki að fletta
upp í orðabók? Ég skal útskýra
þetta fyrir þér.“ (106-107)
Fróðleikurinn er ekki einung-
is málfræðilegur, heldur verða
börn líka nokkurs vísari um
fornleifa- og náttúrufræði (faðir
Rúnars stendur í að koma á fót
náttúrugripasafni í þorpinu) auk
þess sem rammafrásögnin um
uppruna systkinanna er falleg
og til þess ætluð að undirstrika
að „hjörtum mannanna svipar
saman …“ eins og þar stendur.
Sigrúnu Eldjárn tekst ákaflega
vel upp með þessa sögu. Að
vísu er sumt í henni heldur lítt
undirbyggt eða útskýrt (eins og
t.d. ástæða þess að tugþúsund-
ára gömul múmía skuli liggja
á lausu í lítilli búðarholu í New
York – og hin sáraeinfalda aðferð
sem síðar er notuð til að vekja þá
múmíu til lífsins) en sem betur
fer eru börn yfirleitt ekki neinir
raunsæisþrælar, heldur taka hinu
fantastíska fagnandi – og það er
ég sannfærð um að þau gera við
lesturinn á Náttúrugripasafninu.
Þórunn Hrefna Sigurjónsdóttir
Niðurstaða: Hressileg saga fyrir fróð-
leiksfúsa og ævintýragjarna krakka.
Hressileg saga fyrir fróðleiksfúsa krakka
Hljómsveitin Guns N‘ Roses
vinnur nú að plötu, þeirri
sjöundu í röðinni.
Platan myndi fylgja eftir
plötunni Chinese Democracy,
en aðdáendur hljómsveitarinn-
ar biðu eftir henni í tæp 15 ár.
DJ Ashba, gítarleikari Guns N‘
Roses, segir í viðtali við vefsíð-
una Mamasfallenangels.com að
hann vinni nú að nýjum lögum
ásamt Axl Rose, forsprakka
hljómsveitarinnar. „Að gera nýja
plötu er algjört forgangsmál hjá
okkur,“ segir Ashba. „Ég get ekki
beðið eftir að hefja upptökur.
Axl á tonn af nýjum lögum. Við
höfum setið saman inni á hótel-
herbergi á meðan hann spilar
fyrir mig ný lög klukkustundum
saman. Og ég er búinn að semja
fleiri en tíu lög sem hann kann að
meta.“
DJ Ashba vill ekki gefa upp
hvenær platan kemur út. Það
er því ljóst að sparkspekingur-
inn Hjörvar Hafliðason og aðrir
aðdáendur Guns N‘ Roses bíða
með öndina í hálsinum þar til
frekari fréttir berast.
Ný plata
forgangsmál
NÝ PLATA Axl Rose ku vera afar frjór
þessa dagana.