Fréttablaðið - 16.01.2012, Blaðsíða 35
MÁNUDAGUR 16. janúar 2012 3
hann úr rekavið. Lampinn er því
grófur en laus við flísar og viður-
inn er ekki unninn að öðru leyti
en að hann er olíuborinn. Viðar-
liturinn framkallar mjög mjúka
birtu og í framhaldinu langar
okkur að prófa hann úr íslensku
lerki líka,“ útskýrir Dóra.
Upphaflega var Tindur lampa-
skermur sem Dóra hannaði fyrir
Upplýsingamiðstöð ferðamanna í
Borgarnesi og var smíðaður þar.
Skermarnir vöktu strax mikla
athygli svo Dóra ákvað að þróa
þá yfir í heildstætt ljós.
„Ég leitaði til fyrirtækisins
Lighthouse en þar þekkja menn
allar reglugerðir og nauðsynlega
öryggisstaðla. Lampinn fékk síðan
góðar móttökur á sýningunni 10+
á HönnunarMars og Lighthouse
óskaði eftir að framleiða hann,“
útskýrir Dóra. Lampinn verður
í þremur stærðum að ummáli, 45
sentimetrar, 60 og 80 sentimetrar.
„Sá stærsti hentar inni í stofn-
anarými þar sem hátt er til lofts
og vítt til veggja en hinar stærð-
irnar henta inni á heimili. Lýsing-
in frá lampanum er skemmtileg
en birtan skín gegnum rimlana og
svo beint niður. Ef önnur ljós eru
slökkt kemur einnig skemmtilegt
skuggaspil fram.“
Dóra hefur áður hannað úr
rekavið en í fyrra sýndi hún
borðið Ferðalag með útskorinni
fjöl í miðri borðplötu. Hún útilok-
ar ekki að von sé á fleiri vörum
frá henni úr rekavið. Nánar má
forvitnast um hönnun Dóru á
www.eitta.is. og undir heitinu
Frú Hansen á vef Hönnunar-
miðstöðvar. heida@frettabladid.is
Tindur er á leið til Stokkhólms á sýninguna Stockholm furniture & light fair. Sjá
www.lighthouse.is. MYND/ANNA M. SIGURJÓNSDÓTTIR
Lampinn Tindur er smíðaður úr rekavið
frá Hrauni á Skaga en fyrirtækið Light-
house sér um framleiðslu. Áætlað er að
markaðssetja hann á Norðurlöndunum.
MYND/ ANNA M SIGURJÓNSDÓTTIR
Framhald af forsíðu
Hinn Íslenski HönnunarMars er meðal þess sem vefurinn Cool
Hunting telur með því áhugaverðasta á árinu. Cool Hunting
hefur frá árinu 2003 þefað uppi það áhugaverðasta hverju
sinni í hönnun, ferðalögum, tísku og fleira. Vefurinn er lesinn
um allan heim af þeim sem vilja fylgjast með því nýjasta og
ferskasta hverju sinni.
www.coolhunting.com