Fréttablaðið - 30.01.2012, Qupperneq 13
MÁNUDAGUR 30. janúar 2012 13
FLÍSAR.. .TEPPI. . .PARKET.. .DÚKAR.. .
FLÍSAR.. .TEPPI. . .PARKET.. .DÚKAR.. .
FLÍSAR.. .TEPPI. . .PARKET.. .DÚKAR.. .
FLÍSAR.. .TEPPI. . .PARKET.. .DÚKAR.. .
FLÍSAR.. .TEPPI. . .PARKET.. .DÚKAR.. .
FLÍSAR.. .TEPPI. . .PARKET.. .DÚKAR.. .
FLÍSAR.. .TEPPI. . .PARKET.. .DÚKAR.. .
Þúsundir fermetra
af flísum með
20 -70% afslætti
Teppi og dúkar
25% afsláttur
Baðherbergisvörur
20 -70% afsláttur
ÚTS L
Sagnfræðingar tala um að stéttastjórnmál hafi leyst
sjálfstæðisstjórnmál af hólmi
árið 1916 þegar Alþýðuflokk-
urinn og Framsóknarflokkur-
inn voru stofnaðir til að gæta
hagsmuna verkalýðs og bænda
á meðan höfðingjarnir skiptust
í flóknar þversum og langsum
fylkingar eftir afstöðunni til sam-
bandsins við Dani og sameinuð-
ust ekki í einn flokk fyrr en 1929
í Sjálfstæðisflokknum. Æ síðan
hefur sá flokkur verið okkar Kon-
gressflokkur – valdaflokkurinn,
vettvangurinn.
En sjálfstæðisstjórnmálin
hurfu aldrei. Alla okkar full-
veldistíð hafa þau verið stunduð
af stjórnmálamönnum samhliða
hagsmunagæslu fyrir stéttir en
einkum þó alls kyns bræðralög
og hyglunarsamvinnufélög. Það
hefur verið stjórnmálamönnum
rík freisting að draga upp ein-
falda mynd af andstæðum hags-
munum lítillar þjóðar og svo
þjóðanna í kring. Samkvæmt
þeirri hugmynd fara hagsmunir
allra Íslendinga saman, alltaf;
það séu „okkar“ hagsmunir að
íslenskir útgerðarmenn eigi og
selji hver öðrum aflaheimildir
(og feli arðinn í aflöndum) fremur
en að þjóðin selji þessar heimildir
hæstbjóðanda. En útgerðarmenn
á Íslandi eru ekkert Íslendingar
eða útlendingar. Þeir eru aflend-
ingar.
Dvöl ameríska hersins hér
á landi ruglaði allt. Menn gátu
verið íhaldssamir í þjóðmálum,
hálfgerðir lénskerfissinnar í
atvinnumálum, andvígir félags-
legum réttindum, þéttbýlismynd-
un og frelsi fólks til að stjórna
lífi sínu og þar fram eftir göt-
unum en jafnframt andvígir veru
hersins – sem gerði þá að vinstri
mönnum samkvæmt ríkjandi
skilgreiningu; og svo gátu menn
verið frjálslyndir stuðningsmenn
réttinda fyrir alþýðu, jafnréttis-
sinnar og áhugamenn um fagurt
mannlíf fjöldans fremur en auð-
söfnun hinna fáu en jafnframt
aðhyllst vestræna samvinnu,
vestrænt gildismat – og voru því
kallaðir hægri menn fyrir vikið.
Sjálfstæðisstjórnmálin gera
að verkum að við horfum upp á
nýstárlega rekkjunauta í pólitík-
inni. Þannig hefur sameiginleg
andúð á Evrópusambandinu skap-
að sterk tengsl milli Ögmundar
Jónassonar og nokkurra grá-
myglulegustu íhaldsmannanna
úr repúplíkana-armi Sjálfstæð-
isflokksins. Við því er kannski
lítið að segja nema kjósendur
Ögmundar í suðvesturkjördæmi
hafa sennilega ekki gert sér grein
fyrir því að þeir væru að kjósa
Davíð Oddsson.
Sérhver verður að finna sér
sálufélag við hæfi. Það er hins
vegar þekkt að þegar ungir og
vænir menn lenda í vondum
félagsskap hyllast þeir til þess
að reyna að sanna sig með því
að ganga enn lengra í óknyttun-
um en eldri meðlimir klíkunnar.
Ýmislegt bendir til að þetta hafi
einmitt hent Ögmund; hann hélt
um daginn ræðu um embættis-
menn sem ánetjast hafi ferðum
til Brussel. Hann gaf til kynna
að það fólk sem svo átti að heita
forðum að hann ætti samleið
með, og væri raunar í forsvari
fyrir – opinberir starfsmenn
– láti stjórnast í starfi sínu að
Evrópu samstarfi af stjórnlausri
fíkn í ferðalög til Brussel, rétt
eins og ferðalög séu enn sjaldgæf
gæði hér á landi.
Hann lét að því liggja að þetta
fólk leggi sig ekki fram í þágu
lands og þjóðar, vinni störf sín
ekki af heilinum en sé með hug-
ann við að komast til Brussel,
það sem það hafi fram að færa sé
ekki marktækt. Þetta er ófyrir-
leitið lýðskrum af því tagi sem
maður gæti vænst að sjá hjá
bullunum á amx.is en varla frá
fyrrum formanni BSRB. Hvernig
á fólk að verjast slíkum ásökun-
um? Hvernig er hægt að neita því
að maður láti stjórnast af lágum
hvötum? Með þessu tali reynir
Ögmundur að grafa undan því
fólki sem á nú í samningaviðræð-
um við Evrópusambandið, vekja
tortyggni í garð þess. Innanríkis-
ráðherrann er ekki einungis í
stjórnarandstöðu við þá ríkis-
stjórn sem hann situr í – hann
er líka andvígur því fólki sem
starfar í stjórnsýslunni. Hann er
á móti öllum – nema Davíð.
Það er alls ekki slæm tilhugsun
að vera utan Evrópusambands-
ins. Það má alveg hugsa sér litla
og knáa eyþjóð í norðri sem lifir
af þeim gæðum sem landið og
miðin í kring gefa og selur varn-
ing sinn um allar jarðir; þjóð sem
nýtir sér vakin og sofin hátækni
og öll tækifæri sem bjóðast í ört
minnkandi heimi til að ná góðum
tengslum við fjarlægar þjóðir á
eigin forsendum.
Og svo framvegis. Þetta er
ágætt. Að vísu skulum við muna
að þann tíma sem Ísland hefur
verið fullvalda lýðveldi var það
lengst af undir verndarvæng
Bandaríkjamanna. Það kost-
aði sitt og fyrir það fékkst eitt
og annað, eins og lesa má um í
bókum Vals Ingimundarsonar:
Íslenskar ríkisstjórnir voru
ódeigar að rukka Bandaríkja-
menn fyrir aðstöðuna hér á landi
– ekki síður svonefndar vinstri
stjórnir en hinar.
Bandaríski herinn fór á haust-
dögum 2006. Íslendingar brugð-
ust við með því að hefja stór-
sókn til Evrópu til að leggja hana
undir sig – með lánsfé. Tveimur
árum síðar bað Geir Haarde guð
að blessa Ísland.
En það má alveg hugsa sér að
vera utan Evrópusambandsins.
Þó það nú væri. En það má líka
alveg hugsa sér að vera innan
þess. Og óskandi væri að þjóðin
fengi stjórnmálamenn sem litu
á þetta mál út frá sjónarmiðum
stéttastjórnmálanna, út frá hags-
munum fólks, lífsjörum, fremur
en að lifa sig inn í ræður frá 19.
aldar sjálfstæðisstjórnmálum.
Getum við ekki að minnsta
kosti reynt að tala saman eins og
fólk? Endurtekin brigsl Ögmund-
ar Jónassonar um mútuþægni
þeirra sem vilja ganga í ESB
(„glerperlur og eldvatn“) eru satt
að segja alveg óbærileg. Vera
má að þessum gamla verkalýðs-
foringja finnist ekki skipta máli
hvort lífskjör batna við inn-
göngu eður ei en aðrir hafa af
því áhyggjur af við kunnum að
missa unga fólkið okkar úr landi
ef hér er ekki gott að búa, gott
andrúmsloft, góð laun, góð lána-
kjör, góðir stjórnmálamenn. Sem
stendur – hér í heiðinni þar sem
allt er „ósköp frjálst“ – höfum
við ekkert af þessu. Það er sagt
að þjóðir fái þá stjórnmálamenn
sem þær eiga skilið. Það er ekki
satt. Engin þjóð á skilið að búa
við stjórnmál af þessu tagi.
Ögmundur og íhaldið
Guðmundur Andri
Thorsson
rithöfundur
Í DAG
Endurtekin brigsl
Ögmundar Jónas-
sonar um mútuþægni
þeirra sem vilja ganga
í ESB („glerperlur og
eldvatn“) eru satt að segja
alveg óbærileg.
Undirskrift þín til
forsetans skiptir máli
Nú getur fólk nálgast áskorun-arlista á forsetann á þrem-
ur vefmiðlum. Það er með því
að fara inn á visir.is, mbl.is og
askoruntilforseta.is. Fólk skrif-
ar fullt nafn í reitinn og kenni-
tölu sína, enginn getur skráð sig
nema einu sinni á einum stað.
Áður en áskorendalistanum verð-
ur skilað til forsetans verða nöfn
og kennitölur bornar saman við
þjóðskrá. Þeir sem ekki eru til
samkvæmt kennitölunni verða
felldir út af listanum.
Allur þessi spuni um að Mikki
mús og Denni dæmalausi og hún
Mjallhvít litla hafi skrifað sig á
listann er sjálfsagt rétt, þetta
góða fólk vill taka þátt í öllu sem
skynsamlegt er en þau standast
ekki prófið við þjóðskrána af því
að þau eiga enga lögformlega
kennitölu. Og verða því sett út af
stuðningslistanum, eins og aðrir
þeir sem ekki eru til.
Mikill kraftur í undirskriftunum.
Aldrei hefur undirskriftasöfn-
un eða áskorun farið jafnvel
af stað eins og nú, hvað varðar
þessa áskorun á forsetann okkar.
Ástæður þessa eru margar en
fyrst og fremst þær að Ólafur
Ragnar Grímsson forseti hefur
reynst mikilvægur málsvari
þjóðar sinnar, veitt öryggi og
traust á tímum sundrungar og
reiði hér innanlands. Málflutn-
ingur hans hefur reynst mikil-
vægur bæði innanlands og ekki
síður erlendis og þá sérstaklega
í Evrópu. Við höfum átt í illvíg-
um deilum við Breta og Hollend-
inga og nú Evrópusambandið út
af icesave-skuldum sem okkur
sem þjóð bar aldrei að borga. Ég
bið alla þá sem eru okkur stuðn-
ingsmönnum forsetans sammála
að skrá sig og þannig hvetja hann
til þess að verða við kalli fólks-
ins um að halda utan um öryggis-
ventilinn næstu fjögur árin.
Ólafur Ragnar þorir
Ólafur Ragnar Grímsson hefur
verið forseti sem hefur þorað
að taka ákvarðanir og tala máli
Íslendinga á erlendri grundu í
erfiðustu málum samtímans. Við
skulum viðurkenna að þar fyllti
hann upp í tómarúm þar sem
stjórnmálamennirnir og forystu-
menn landsins hikuðu eða brugð-
ust.
Enginn gleymir hvernig hann
tókst á við Bretana út af hryðju-
verkalögunum sem þeir settu á
Ísland, mesta niðurlæging sem
Íslendingar hafa orðið fyrir í
sögu sinni. Hann virkjaði síðan
26. gr. stjórnarskrárinnar á neyð-
arstundu í icesave-málinu. Og
þjóðin fékk tækifæri til að hafna
að borga skuldir óreiðumanna og
einkabanka í tvígang. Lýðræðis-
legt afrek sem margar aðrar
þjóðir virða og þakka íslensku
þjóðinni fyrir í dag. Yfirgang-
ur og frekja fjármálamannanna
eða þeirra gráðugu stendur enn
yfir, þeir vilja græða þegar vel
gengur en alþýðan skal taka við
ósómanum þegar allt hrynur af
þeirra völdum. Við og heimur-
inn allur verðum á ný að styrkja
stöðu hinna hógværu og heiðar-
legu athafnamanna sem vinna
fyrir fólkið sitt, byggðina sína
og landið sitt.
Lýðræðisleg átök eru framundan.
Ólafur Ragnar Grímsson er lýð-
ræðissinni, góður málsvari þjóðar
sinnar inn á við og ekki síður út á
við. Á tímum óvissu og pólitískrar
upplausnar bæði hér og um ver-
öld alla, er mikilvægt að maður
sem hefur sýnt bæði kjark og þor
gegni forsetaembættinu áfram.
Fram undan eru átök um
stjórnarskrá, þjóðaratkvæða-
greiðslur um stöðu Alþingis og
hlutverk forsetaembættisins.
Átök um aðild að Evrópusam-
bandinu, glímunni við yfirþjóð-
legt vald. Því skora ég á alla
Íslendinga að skrifa undir áskor-
un á forsetann að gefa kost á sér
til starfa á Bessastöðum næsta
kjörtímabil.
Forseta-
embættið
Guðni
Ágústsson
fv. alþingismaður og
ráðherra
Enginn gleymir
hvernig hann
tókst á við Bretana út
af hryðjuverkalögunum
sem þeir settu á Ísland,
mesta niðurlæging sem
Íslendingar hafa orðið
fyrir í sögu sinni.