Fréttablaðið


Fréttablaðið - 30.01.2012, Qupperneq 16

Fréttablaðið - 30.01.2012, Qupperneq 16
30. janúar 2012 MÁNUDAGUR16 Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli og útfarir má senda á netfangið timamot@frettabladid.is. Auglýsingar á að senda á auglysingar@frettabladid.is eða hringja í síma 512 5000. timamot@frettabladid.is BORIS SPASSKY skákmeistari er 75 ára í dag. „Það má líkja klassískri skák og hraðskák við leikhús og kvikmyndir – sumir leikarar hafa óbeit á kvikmyndum og vilja frekar vinna í leikhúsi.“ „Við ætlum að fagna allt árið. Það er gott mótvægi við allt sem er í gangi, bæði í kirkju og þjóðfélagi, að gleðjast svolítið saman. Við gerum þetta með stæl,“ segir séra Sigrún Óskarsdóttir, sóknarprestur í Langholtskirkju. Í ár eru sextíu ár frá gildistöku laga sem skiptu nokkrum söfnuðum í borginni í smærri einingar. Langholtssöfn- uður var einn þessara nýju söfnuða og verður tímamótanna minnst með margvíslegum hætti á afmælisárinu. Sigrún sinnir prestsþjónustu í söfn- uðinum fyrri hluta ársins þar sem hún og séra Jón Helgi Þórarinsson, sem þjónað hefur söfnuðinum í fimmtán ár, höfðu embættismannaskipti í níu mánuði frá 1. nóvember síðastliðn- um. „Það er frábært tækifæri að detta svona inn. Ég vissi ekki af afmælis- árinu þegar ég tók við svo það er stór bónus. Það er gaman að skipuleggja svona lagað,“ segir Sigrún, en meðal þess sem bryddað verður upp á eru gestapredikarar einu sinni í mánuði. Meðal þeirra sem staðfest hafa komu sína eru rithöfundarnir Guð- mundur Andri Thorsson og Árni Bergmann, hjónin Björk Vilhelms- dóttir borgarfulltrúi og Sveinn Rúnar Hauksson og sjálfur Bubbi Morthens, sem syngur lög sín sem innblásin eru af trú. Bubbi á rætur í Langholts- kirkjusöfnuði og heimsókn hans því viðeigandi. „Þegar Bubbi treður upp ætlum við að rifja upp fræga popp- messu sem haldin var hér á sjöunda áratug síðustu aldar. Þorgeir Ást- valdsson, sem spilaði í þeirri messu, verður okkar innan handar með það, en þessi messa var gríðarlega umdeild á sínum tíma. Séra Sigurður Haukur Guðjónsson færði popptónlist inn í kirkjuna og á þeim tíma var mörg- um misboðið. Rætt var um að Sigurð- ur gæti misst hempuna og ýmislegt fleira sem varð þó aldrei. Þetta var mikið frumkvöðlastarf,“ segir Sigrún. Afmælisnefnd safnaðarins hefur fleiri hugmyndir á takteinum sem stefnt er að því að fylgja úr hlaði, meðal annars sérstakar kvenna- og karlamessur, þar sem konur eða karlar sjá um alla þjónustu, predik- un, orgelleik, söng og fleira í hvorri messu fyrir sig. „Svo erum við að skipuleggja hlaupamessu, en hugmyndina að henni fengu ég og góð vinkona mín, sem er formaður sóknarnefndar, þegar við hlupum maraþon í Berlín í haust. Messan yrði um sumar og gaman væri að fá hlaupahópinn í Laugum til að hlaupa í messu í þar til gerðum fatnaði, lesa og syngja texta sem tengjast hlaupum og hreyfingu og svo yrði bara íþróttadrykkur í kirkjukaffinu,“ segir Sigrún og hlær. „Þessi hugmynd er enn í vinnslu en við viljum endilega láta hana verða að veruleika, eins og svo margar aðrar á afmælisárinu.“ kjartan@frettabladid.is LANGHOLTSKIRKJUSÖFNUÐUR SEXTUGUR: MIKIÐ STENDUR TIL FAGNA AFMÆLINU ALLT ÁRIÐ AFMÆLI Hlaupamessa og mánaðarlegir gestapredikarar eru meðal þess sem bryddað verður upp á í tilefni sextíu ára afmælis Langholtssafn- aðar, þar sem séra Sigrún Óskarsdóttir er sóknarprestur fyrri hluta ársins. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Merkisatburðir 30. janúar 1790 Fyrsti björgunarbáturinn prófaður á Tyne-ánni í Englandi. 1933 Adolf Hitler settur í embætti kanslara Þýskalands. 1945 Mannskæðasti skipstapi sögunnar, þegar sovéskur kafbát- ur sökkvir þýska skipinu Wilhelm Gustloff og 9.343 farast. 1971 Frost mælist 19,7° í Reykjavík sem er það kaldasta síðan 1918. Þúsundir manna vottuðu Sir Winston Churchill, fyrrverandi forsætisráðherra Breta, hinstu virð- ingu þegar hann var borinn til grafar í London þann 30. janúar 1965 eftir viðhafnarútför á vegum ríkisins. Þögull mannfjöldi stóð meðfram öllum götum og fylgdist með kistu Churchills borinni út úr Westminster Hall um leið og Big Ben sló 09.45. Líkfylgdin fór í gegnum miðborgina á leið til St. Paul’s dómkirkjunnar þar sem útförin fór fram. Fjörutíu myndavélum frá BBC var komið fyrir á leiðinni og öllu sjónvarpað beint. Milljónir manna um allan heim fylgdust með sjónvarps- útsendingunni. Fremst í flokki syrgjenda fór ekkja Churchills, Lady Clementine, ásamt börnum þeirra. Drottn- ingin og aðrir meðlimir konungsfjölskyldunnar fylgdu á eftir, en alls sendu 112 þjóðir fulltrúa sína til að fylgja einum mikilhæfasta stjórnmála- manni 20. aldarinnar síðasta spölinn. ÞETTA GERÐIST 30. JANÚAR 1965 Winston Churchill borinn til grafar Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, Sæmundur Haraldsson Dalbraut 7, Grindavík, lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja, miðvikudaginn 25. janúar. Útförin fer fram frá Grindavíkurkirkju, fimmtudaginn 2. febrúar kl. 14.00. Vilborg Ásgeirsdóttir Kristín Sæmundsdóttir Gísli Sveinsson Jón Steinar Sæmundsson Þorvaldur Sæmundsson Steinunn Ingvarsdóttir Stefán Sæmundsson Linda Agnarsdóttir Rúnar Sæmundsson og barnabörn Ástkær faðir okkar, Ingimundur Eyjólfsson Hafnarbraut 23, Kópavogi, lést á Landspítalanum í Fossvogi sunnudaginn 22. janúar sl. Útförin fer fram frá Fossvogskirkju mánudaginn 30. janúar kl. 13.00. Jón Þórir Ingimundarson Elín Ingimundardóttir Vigdís Gígja Ingimundardóttir Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og dóttir, Kristín Sigurvinsdóttir Framnesvegi 15, Keflavík, lést á Landspítalanum Fossvogi, miðvikudaginn 25. janúar. Útför verður frá Keflavíkurkirkju föstudaginn 3. febrúar kl. 13.00. Hreinn Steinþórsson Sigurvin Hreinsson Ágústa K. Jónsdóttir Steinþór Hreinsson Elísabet Kristinsdóttir Jóhann Hreinsson Þorgerður Halldórsdóttir barnabörn Jóhanna Karlsdóttir Ástkær faðir minn, tengdafaðir og afi, Jóhannes Guðmann Kolbeinsson Til heimilis að Ljósheimum 10a Reykjavík Verður jarðsunginn frá Langholtskirkju Þriðjudaginn 31. Januar, kl. 13:00. Ari Þórólfur Jóhannesson Vilborg Jónsdóttir Kolbrún Edda Aradóttir Davíð Einarsson Jón Trausti Arason Ingibjörg Jónsdóttir Kristín Tinna Aradóttir

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.