Fréttablaðið - 30.01.2012, Blaðsíða 18
Kristín Kjartansdóttir félagsfræðingur og Hlynur Hallsson myndlistarmaður reka
Flóru, forvitnilega búð í gamalli efnagerð í Gilinu á Akureyri. MYND/AUÐUNN NÍELSSON
„Til dæmis endurnýtingu eða
áframnýtingu á hlutum og ýmiss
konar heimaframleiðslu. Til-
gangurinn er líka að gera eitt-
hvað fyrir Listagilið sem er svo
skemmtilegur staður. Svo höfum
við sett upp myndlistarsýningar
í kjallaranum og sjálf er ég með
vinnustofu uppi. Við vildum búa
til stað sem er ekki eins og aðrir
staðir.“
Kristín og Hlynur keyptu hús-
næðið í Gilinu fyrir rúmum tutt-
ugu árum og ætluðu sér að búa
þar með vinnustofu. Þær áætl-
anir breyttust og hefur húsnæðið
verið í leigu þar til hugmyndin
að Flóru varð til. Upphaflega
átti KEA húsin og þar sem Flóra
Kristínar og Hlyns er, var ein-
mitt Efnagerðin Flóra til húsa
fyrir áratugum síðan.
„Nafnið er samt algjör tilvilj-
un. Ég ákvað nafnið út frá garð-
menningu og jurtum og frétti
bara seinna í heita pottinum að
þarna hefði Efnagerðin Flóra
verið áður,“ segir Kristín og
hlær. „En þetta fer skemmtilega
við sögu hússins.“
En hvernig gengur rekstur
á „hugsjónabúllu“, í gamalli
efnagerð? „Móttökurnar hafa
verið hreint frábærar frá því við
opuðum í vor. Fólk er forvitið um
þessa litlu búð og margir segja
að hún sé eins og „útlönd“ á
Akureyri. Það er alltaf gaman að
heyra það.“
heida@frettabladid.is
Framhald af forsíðu
Hollenski hönnuðurinn Bertjan Pot sýndi þennan stól á
húsgagnasýningunni imm í Köln á dögunum. Stóllinn heitir
Tie-break og er búinn til úr tennisneti en hann er ætlaður
sem garðstóll. Stóllinn er framleiddur af Richard Lampert.
Daniel Estes er nýstofn-
að merki sem rekið er af
stærra fyrirtæki sem hefur
sérhæft sig í framleiðslu
og dreifingu á klukkum.
Daniel Estes einblínir á
vandaða og flotta hönnun
eftir unga hönnuði,“ segir
Þórunn. „Enn sem komið er
eru þeir bara að framleiða
þessar tvær vörur eftir
mig undir þessu merki.
Devil‘s Pet er svo að kom-
ast á framleiðslustig og
við erum að vinna í fleiri
útfærslum á þeirri hug-
mynd. Fyrirtækið hefur
tvær skrifstofur, í Banda-
ríkjunum og Ungverja-
landi. Framleiðslan fer fram á
mismunandi stöðum, eftir því sem
hentar í hverju tilviki.“
Ertu þá komin á samning hjá
þeim? „Nei, nei, alls ekki. Við
gerum samning um einkarétt á
framleiðslu á þessum hlutum, en
ég er alls ekki bundin því að mega
bara hanna fyrir þá. En við eigum
mjög gott samstarf og ég er alveg
til í að vinna meira með þeim.“
Þórunn býr í London þar sem
hún lauk meistaragráðu
frá Royal College of Arts
í fyrrasumar. Hún segist
kunna vel við sig í Lond-
on og sé ekkert á leiðinni
heim. „Ég hef hér fullt
af samböndum í gegn-
um námið og flest verk-
efnin sem ég fæ eru annað
hvort í gegnum samnem-
endur eða kennara. Við
sem vorum að læra saman
bendum mjög oft hvert
á annað þegar verkefni
sem við getum ekki sinnt
bjóðast og eins eru kenn-
ararnir duglegir við að
koma okkur á framfæri.
Við vinnum líka oft verk-
efni saman, ég er til dæmis núna í
hópverkefni með nokkrum stelpum
sem voru í skólanum með mér.“
Hvað er svo framundan? „Við
stefnum að því að sýna Devil‘s Pet
í Mílanó í apríl, veit ekki ennþá
hvar og svo ætlum við stelpurnar í
hópverkefninu að sýna í maí, en það
er allt í vinnslu ennþá. Ég tek þetta
bara svona eftir hendinni og sé til
hvert það leiðir mig.“
fridrikab@frettabladid.is
Í samstarf við
Daniel Estes Designs
Þórunn Árnadóttir hönnuður er komin í samstarf við bandaríska
hönnunarfyrirtækið Daniel Estes Designs sem hefur hafið fram-
leiðslu á klukku hennar Sasa Clock, hillunni Tree and Cloud og mun
fljótlega hefja framleiðslu á kertinu Devil‘s Pet.
Sasa Clock fæst
í Spark Design á
Klapparstígnum.
Þórunn Árnadóttir hönnuður segist ánægð með samstarfið við Daniel Estes Designs
og fleiri hugmyndir séu í vinnslu í samstarfi við fyrirtækið. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Spænska postulínsmerkið LLadró kynnti
nýverið nýja postulínslínu sem nefnist
The Guest, eða Gesturinn. Línan var
hönnuð af hinum spænska Jaime Hayon,
bandaríska hönnuðinum Tim
Biskup og japanska hönnunar-
stúdíóinu Studio Devilrobots.
www.designartnews.com
FRÉTTIR VIÐSKIPTI ÍÞRÓTTIR LÍFIÐ UMRÆÐAN
Meiri Vísir.
2