Fréttablaðið - 30.01.2012, Blaðsíða 38
KYNNING − AUGLÝSINGRáðstefnur og fundir MÁNUDAGUR 30. JANÚAR 20124
Okkar sérstaða felst meðal annars í að vera með fyrsta f lokks fundarsali
í hjarta borgarinnar,“ segir Eva
Jósteinsdóttir, framkvæmda-
stjóri rekstarsviðs CenterHotels,
um fundar- og veislusalina í
Center Hotel Plaza við Aðal-
stræti. Þar getur hún tekið á
móti allt að 200 manns í kok-
teilpartí og 120-130 manns í
sæti. „Þetta getur verið einn stór
salur eða þrír minni, eftir því
sem hentar, því við getum skipt
stóra salnum upp. Við höfum
fengið mjög jákvæð viðbrögð
við þessari aðstöðu frá því við
opnuðum hana. Þeir sem hafa
leigt salina bóka þá gjarnan hjá
okkur aftur.“
CenterHotel in f imm er u
Plaza, Þingholt, Skjaldbreið,
Klöpp og Arnarhvoll. Eva segir
um minni fundarsali að ræða,
bæði á Klöpp og Þingholti, og
auk þess skemmtilegan morgun-
verðarsal sem nýtist sem fund-
arsalur hálfan daginn á Skjald-
breið, Laugavegi 16. Telur hún
ráðstefnufólk njóta þess að vera
í miðbænum og geta skroppið út
á strætið í fundarhléum? „Já, og
það er mjög þægilegt fyrir fyr-
irtæki og stofnanir sem eru hér
miðsvæðis, eins og til að mynda
ráðuneytin, að halda fundi hér
og geta stokkið svo að segja úr
næsta húsi. Að sama skapi er
það hentugt fyrir hópa utan af
landi sem koma í höfuðstaðinn,
kannski með árshátíðir sínar
eða stefnumótunarfundi, að
geta fengið gistingu og fundar-
eða veisluaðstöðu undir sama
þaki. Þegar fundurinn er búinn
er svo þægilegt að þurfa ekk-
ert að panta rútu því þá er allt
innan seilingar, bæði veitingar
og gisting.“
Spurð hvort panta þurfi sal-
ina með löng um f y rir vara
svarar Eva: „Það er mjög mis-
jafnt. Sumar dagsetningar eru
þéttbókaðri en aðrar, til dæmis
fermingarveisludagar. Fundar-
salirnir okkar hafa verið vinsæl-
ir, það segir sína sögu því orð-
sporið er bestu meðmælin.“
Þeir sem hafa leigt salina
bóka þá hjá okkur aftur
CenterHotels er fjölskyldurekin hótelkeðja sem samanstendur af fimm fyrsta flokks hótelum í miðborg Reykjavíkur. Stærst
er CenterHotel Plaza við Aðalstræti. Þar er nýleg fundar- og veisluaðstaða í gamla prentsal Morgunblaðsins í Aðalstræti 6,
sem nú er hluti af CenterHotel Plaza. Salurinn nýtur mikilla vinsælda meðal fyrirtækja í miðbænum og hópa utan af landi.
Eva Jósteinsdóttir í hinum glæstu
salarkynnum CenterHotel Plaza við Aðal-
stræti í Reykjavík.
MYND/ANTON
SKEMMTILEGRI FUNDIR
RÁÐSTEFNU- OG
VEISLUAÐSTAÐA
Salir CenterHotels henta vel fyrir fjölbreytta
viðburði hvort sem um er að ræða litla fundi,
stórar ráðstefnur, fermingarveislur, brúðkaup,
árshátíðir eða önnur einkasamkvæmi.
Gamli prentsalur Morgunblaðsins í Aðalstræti 6
er nú orðinn bjartur og stílhreinn fundarsalur
á CenterHotel Plaza.
SKANNAÐU KÓÐANN
www.centerhotels.is/fundir
Ráðstefnudeild | S. 595 8585 | fundir@centerhotels.is | www.centerhotels.is
Á CENTERHOTEL PLAZA
Fundauppsetning á 1/3 úr Plaza
salnum, hægt er að panta 1/3, 2/3 eða
allan salinn í einu.
Oft skapast skemmtileg stemning
í Plaza lobbýinu þar sem gestir og
gangandi geta tyllt sér niður.
Eitt af nýju herbergjunum á Plaza í
gömlu „Moggahöllinni“ með útsýni
yfir Ingólfstorg.
Salurinn opnast út í huggulegan garð,
Eldgjá, þar sem eldlistaverk eftir Pál á
Húsafelli fá að njóta sín.