Fréttablaðið - 20.02.2012, Page 13

Fréttablaðið - 20.02.2012, Page 13
MÁNUDAGUR 20. febrúar 2012 Ég ímynda mér að heim til mín komi maður til þess að gera við þvottavélina hjá mér. Þetta er viðkunnanlegur maður og það er gaman að spjalla við hann. Hann klárar verkið með glæsibrag og sýnir mér hvernig þvottavélin virkar sem ný. Og ég segi: Þetta er alveg frábært hjá þér og svo var líka svo gaman að spjalla við þig. Veistu, ég er svo ánægður með þessa heimsókn þína að ég er hreinlega að hugsa um að borga þér fyrir verkið … Tæknin hefur gert okkur kleift að ná með erindi okkar til miklu fleira fólks en forfeður okkar og formæður vissu að væri til. Það má jafnvel tala um nýja tegund af mannkyni – hinn sítengda mann; við erum með heims torgin í kjöltunni þar sem við sitjum í sófanum heima og getum nánast náð sambandi við þann sem okkur sýnist, séð það sem okkur sýnist, hlustað á alla tónlist í heimi ef okkur langar. Það þarf ekki að hafa mörg orð um tækifærin sem skapandi fólki gefast við þær aðstæður að ná til heimsins með erindi sín. En sá böggull fylgir skammrifi að æ fleiri listamenn eru í þeirri stöðu að eiga það undir geðþótta og velþóknun neyt- endanna hvort þeir fái greidda peninga fyrir sköpunarverk sín. Á móti má vissulega segja að peningar séu ofmetnir og til þess fallnir að afvegaleiða fólk og að sönn list verði aldrei mæld á svo ómerkilegan mælikvarða sem peningar eru og að þegar lista- verkið sé svipt vörueðli sínu sé það loksins frjálst í heiminum. Gott og vel. Á listamönnum dynja að minnsta kosti sífelldar kröfur um að gefa eftir réttinn til að fá arð af vinnu sinni. Þessar kröfur eru settar fram í nafni réttlætisins og lýðræðisins og tjáningarfrelsisins en einkum þó framtíðarinnar. Það er erfitt hlutskipti að vera andvígur fram- tíðinni. Hún er eitthvað svo óhjá- kvæmileg. En hvað sem henni líður, og réttlætinu og lýðræðinu og hinu illa eðli vörunnar, þá stendur listamaðurinn nú á götuhornum heimsins og fremur sínar kúnstir með hattkúf fyrir framan sig í þeirri von að vegfarendur hrífist svo að þeir láti smámynt af hendi rakna. Í þeirri stöðu felst auð- vitað ákveðið frelsi en á einhverju verður fólk að lifa, meira að segja listamenn. Og það liggur misvel fyrir fólki að gera sig viðkunnan- legt á torgum – og raunar liggur það alveg sérstaklega misvel fyrir listamönnum að vera viðkunnan- legir. Því að þegar það er alveg undir viðtakandanum komið hvort hann kýs að greiða lista manninum fyrir þá sköpun sem hann hefur þegið af honum þá segir það sig eiginlega sjálft að það þurfa að kvikna jákvæðar kenndir hjá við- takandanum í garð lista mannsins: það er ekki nóg að við takandinn hrífist af lista verkinu eða að lista- verkið breyti hugsun hans – við- takandinn þarf að hugsa á þann hátt til sjálfs lista mannsins að honum finnist taka því að borga honum, hann þarf hreinlega að muna eftir því: þá þarf hann annað hvort að kunna alveg sér- staklega vel við listamanninn af einhverjum ástæðum og hugsa út í að hann þurfi nú að lifa eins og aðrir – eða: hann þarf að vor- kenna listamanninum, sjá aumur á honum og henda til hans smá- mynt svo sem eins og í gustuka- skyni. Og listamaðurinn – hvort sem hann er meðvitaður um það eður ei – hyllist til þess að gera sig viðkunnanlegan, fer smám saman nánast að smjaðra fyrir við- takanda sínum. Nema hann hafi framfæri sitt af öðru. Og nú glymur rithöfundum þessi klukka: þið eruð næst. Þegar kannanir leiða í ljós að læsi sívaxandi hóps drengja er ábóta- vant rjúka skólar upp til handa og fóta til að finna lausnina. Engum virðist detta í hug að ef til vill sé ástæða til að laga sjálfa lestrar- kennsluna. Gagnvart vanda hafa Íslendingar ævinlega eina lausn: að byggja hús. Og sé það ekki hægt þá er bara eftir hin lausnin: að kaupa græju. Til að vinna bug á útbreiddu ólæsi drengja er þannig leitað tæknilegra lausna, þeim eru gefnar lesvélar og liggja í loftinu ósagðar væntingar um að vélarnar muni þá lesa fyrir krakkana. Það eru hins vegar ekki til peningar fyrir bókum á skólabókasöfnin. Og nú er sagt við ri thöfundana: þið eruð næst. Játið ykkur sigruð. Setjið sögurnar ykkar og ljóðin bara á netið og leyfið öllum að hlaða niður að vild og greiða að vild. Maður er alltaf að heyra í fólki sem nennir ekki að lesa bækur og segist vera framtíðin – gerir eigin leti við bóklestur að almennri reglu og eiginlega kröfu. Samt er það svo að fyrir hver jól hér á landi seljast stór upplög af alls konar bókum sem fólk gefur hvert öðru samkvæmt þessum fallega sið: Mér finnst þú vera svona manneskja sem les bækur eftir Vigdísi Grímsdóttur; mér finnst þú eiga skilið að fá ljóð eftir Þorstein frá Hamri – og svo framvegis. Og sérhver bók hefur áru. Árið um kring gefum við út alls konar bækur í stórum upp- lögum, skáldsögur, matreiðslu- bækur, hryllingssögur, meira að segja smásagnasöfn. Og fólk kaupir þessar bækur í stórum stíl, handa sér og öðrum, það ræðir þær fram og aftur, býsnast yfir dómum um þær, hugsar um þær. Hví skyldu höfundar hraða sér á vit þeirrar framtíðar þar sem þeir njóta ekki afrakstursins af sköpun sinni heldur bara tækja- framleiðendur? Bókin er afurð markaðssam- félagsins, í eðli sínu vara sem gerð er úr orðum og pappír og á fyrir sér lengri framtíð en hug- sjónamenn um bókleysi dreym- ir um. En „bókfellið velkist og stafirnir fyrnast og fúna“. Rétt eins og tónlistin lifði af dauða kassettutækisins þá mun sagna- listin líka lifa af dauða ipadsins. Sagnalistin mun meira að segja lifa bókina og allan þann iðnað sem henni fylgir. Listin mun lifa með manninum þann afmarkaða tíma sem hann hefur mælt sér á þessari jörð. Það er grunnþörf að skapa og njóta listar – sagnalistar, tónlistar, myndlistar, verka sem maðurinn smíðar með höndum sínum og huga. Kannski tekst mönnunum að koma sér niður á þjóðskipu- lag sem snýst ekki um peninga og samkeppni heldur frelsi og jöfnuð og sátt við Móður Jörð – einhvern tímann – þarna úti í framtíðinni – og þá fremjum við list allan daginn handa hvert öðru og okkur sjálfum og guðdóminum; en þangað til það gerist er ekki nema sanngjarnt að listamenn fái greitt fyrir framlag sitt til tilverunnar. Guðmundur Andri Thorsson rithöfundur Í DAG Flestir þeir sem þurft hafa að afla sér þekkingar á netinu rekast fljótlega á veggi þar sem þarf að greiða fyrir aðgang að rannsóknum. Þetta á jafnt við um blaðamenn sem miðla upp- lýsingum til fólks, vísindamenn sem þurfa að vita hvað er nýjast á fræðasviðinu og hinn almenna borgara sem vill komast að því hvort til sé lækning við tiltekinni tegund krabbameins. Upphæð- in er oft nokkur þúsund krónur fyrir staka grein en bókasöfn, há- skólar og ýmsar aðrar opinberar stofnanir þurfa líka að greiða háar upphæðir fyrir aðgang að vísindagreinum en þeir fjármunir koma oftar en ekki úr vasa skatt- greiðenda. Það sem er sérstakt við þetta kerfi er að höfundar vísinda- greina fá ekki greitt fyrir skrifin né þegar seldur er að þeim aðgangur. Vísindamenn fá hins vegar greitt fyrir vinnu sína frá opinberum samkeppnissjóðum og háskólum, og greinaskrifin eru hluti af því að miðla þekkingu til annarra fræðimanna og al- mennings. Þannig greiðir hið opinbera beint eða óbeint laun margra þeirra sem skrifa greinarnar en greiðir síðan aftur fyrir aðgang að þeim. Þeir einu sem hagnast eru milliliðirnir, stórfyrirtæki á sviði akademískrar útgáfu, sem höndla með textann. Þeir sem tapa eru almenningur, sem þarf að greiða tvisvar fyrir vöruna, og vísindamenn sem fá mun minni dreifingu á útgefnu efni sínu en tilefni eru til. Fræðimenn hafa aðallega tvær leiðir til þess að greinar þeirra birtist í opnum aðgangi: að gefa út í tímariti sem er opið og gjald- frjálst eða senda greinina í opið varðveislusafn jafnframt því sem hún birtist í hefðbundnu tíma- riti. Flestar útgáfur fræðitíma- rita heimila höfundum að birta greinar sínar samhliða í gagna- grunnum en blikur eru á lofti því milliliðirnir vilja halda í sinn hlut og gamla kerfið. Nú þurfa háskólamenn, sam- keppnissjóðir og almenningur á Íslandi að taka höndum saman um að gera birtingar í opnum aðgangi að reglu. Hér má nefna að starfsmenn Háskólans á Bifröst hafa samþykkt að birta fræði- greinar sínar í opnum aðgangi, og er skólinn fyrstur íslenskra háskóla til þess, en margir af stærstu háskólum heims hafa farið þessa leið á undanförnum árum. Rannís hefur sýnt vilja en hefur þó enn ekki sett stefnu um opinn aðgang að niðurstöðum úr rannsóknum sem stofnunin hefur styrkt með almannafé. Slík stefna er í gildi annars staðar á Norður- löndum, t.d. hjá Vetenskapsrådet í Svíþjóð. Mun Rannís setja slíka stefnu á næstunni? Af hverju hefur það dregist? Opinn aðgangur er hagur almennings og fræðimanna Netið Njörður Sigurjónsson lektor við Háskólann á Bifröst Nú þurfa há- skólamenn, sam- keppnissjóðir og almenn- ingur á Íslandi að taka höndum saman um að gera birtingar í opnum aðgangi að reglu. Sími: 561 1433 Austurströnd 14 Hringbraut 35 Fálkagötu 18 Lönguhlíð góðar ástæður til að heimsækja ...okkur 3 mánudaga-föstudaga...........7.30 -17.30 laugardaga.........................8.00 -16.00 KONUDAGUR....................8.00 -18.00 BOLLUDAGUR....................7.30 -18.30 B O LLU R Á B O LLU D A G IN N U R Á UU D U D U D G A G A G A G INININ NNN B R A U Ð O G R Ú N STY K K I A LLA D A G A B R A U Ð O G R Ú N S A L A L A LLALALA DDD G A G A G A G AAA B O LLU O B O B O B O LLLLLLUUUU STY K K I K A K A Á R SIN S 2 0 1 2 Á K O N U D A G IN N PREN TU N .IS Þið eruð næst

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.