Fréttablaðið - 20.02.2012, Page 14
14 20. febrúar 2012 MÁNUDAGUR
Frumvarp um breytt fisk-veiðistjórnunarkerfi verður
lagt fyrir Alþingi í febrúar
ef allt gengur eftir. Vaxandi
samstaða er meðal stjórnar-
flokkanna um útfærslur og nú er
unnið að lokafrágangi málsins,
áður en látið verður til skarar
skríða. Ofangreind orð eru úr
ræðu Jóhönnu Sigurðardóttir á
síðasta flokksstjórnarfundi Sam-
fylkingarinnar.
Tíminn á þrotum
Fögnuður minn er þó blendinn eftir
fundinn. En á hann mætti ég hald-
inn efablandinni eftir væntingu.
Boðað hafði verið að Ólína Þor-
varðardóttir og Steingrímur J.
Sigfússon myndu fræða okkur um
fyrirhugaðar breytingar á stjórn
fiskveiða, eins af stærstu málefn-
um stjórnarsamstarfsins. Heim fór
ég heldur daufur í dálkinn. Orð for-
mannsins um útfærslur og lokafrá-
gang skiluðu sér alla vega ekki í
skiljan legum útskýringum á því
hvenær og hvernig forgangi núver-
andi kvótahafa muni ljúka. Þó eru
þrjú ár liðin og tími ríkisstjórnar-
innar til að standa við fyrirheitin
í þessu máli á þrotum. Hafa ber
í huga að ekki er gert ráð fyrir
flokks stjórnar fundi á næstunni
og varla ætla stjórnarflokkarnir
að leggja frumvarp fyrir Alþingi
sem brýtur í bága við stefnu
þeirra og stjórnarsáttmála ríkis-
stjórnarinnar. Ég tel eftir þennan
fund að innihald væntanlegs frum-
varps verði í grundvallar atriðum
líkt því sem Jón Bjarnason lagði
fram á síðasta þingi.
Að lifa ríkisstjórnina af
Til að halda fengnum hlut hafa
ráðamenn í sjávarútvegi móast
við og reynt að hægja á og trufla
alla viðleitni stjórnarflokkanna til
að finna sáttaflöt milli almennra
hagsmuna og þeirra sérhags-
muna sem útgerðamenn vilja við-
halda. Stefnan var sú að lifa ríkis-
stjórnina af þar til valda kæmu
vinsamlegri stjórnvöld. Fyrsta og
mikilvægasta átakið var fólgið í
því að skjóta í kaf fyrningar leiðina
sem er einföld og skynsamleg,
breytir í raun engu um stjórn fisk-
veiða. Aðferð sem leysir þó eigna-
haldsvandann, tryggir þjóðinni
fullt verð fyrir nýtingarréttinn og
jafnræði í greininni.
Hafi menn almannahagsmuni
fyrst og fremst í huga og að raska
sem minnst högum sjávar út vegsins
er fyrningarleiðin augljóslega best.
„Það fara allir á hausinn“ var inni-
hald slagorðanna sem glumdu í
eyrum landsmanna, þó að með
þeirri leið verðleggi út gerðirnar
veiðiréttinn sjálfar á frjálsum
markaði. Ráða mönnum í útgerð
tókst þetta ætlunarverk í bili a.m.k.
vegna ósamstöðu og veikleika í
báðum stjórnar flokkunum. Í VG
er rótgróin andúð á markaðslausn-
um og stjórnlyndi á háu stigi eins
og mörkuð stefna þeirra í sjávarút-
vegsmálum ber skýrt merki um. Í
báðum flokkum eru þingmenn sem
hafa í raun drattast með í stefnu
flokkanna en vilja sem minnst
hrófla við hagsmunaöflum í sínum
kjördæmum. Næsti kafli sögunnar
varð svokölluð samningaleið.
Samningaleiðin
Hugtakið samningaleið varð til í
tengslum við störf þeirrar nefndar
sem Guðbjartur Hannesson stýrði
og vísar til þeirrar hugmyndar
að breyta nýtingarrétti á veiði-
heimildum í svokallaða nýtingar-
samninga til afmarkaðs tíma.
Óljósar niðurstöður þess starfs sem
sú nefnd vann hafa verið túlkaðar
á ýmsa vegu en frumvarp Jóns
Bjarnasonar byggði á því að gera
slíka nýtingarsamninga við þá sem
nú hafa umráð yfir veiðirétti.
En ef það frumvarp hefði orðið
að lögum væri sjávarútvegurinn í
meiri viðjum en þörf er á til að ná
fram markmiðum um þjóðareign
á auðlindinni. Viðjum sem heftu
verulega þrótt hans og framgang.
Miðstýrðar ákvarðanir, ógagnsæ
stjórnsýsla og óviðunandi að-
gangur nýrra aðila að greininni
hefði orðið hlutskipti hennar. Þetta
og að ekki var með traustum hætti
gengið frá því hvernig og hvenær
forgangi núverandi kvótahafa til
úthlutunar veiðiréttar skyldi ljúka
voru alvarlegir gallar á frum-
varpinu. Því miður bera tilvitnuð
orð formannsins í upphafi þessar-
ar greinar og það sem kom fram á
fundinum vott um að vaxandi sam-
staða sé um slíka leið.
Ríkisstjórnin eyði óvissunni!
Þrátt fyrir harða andstöðu við
fyrningarleiðina og ekki síður við
frumvarp Jóns Bjarnasonar hafa
orðið þau veðrabrigði í afstöðu
útvegsmanna að nú heimta þeir að
óvissunni verði aflétt. Þeir vilja
að ríkisstjórnin sem þeir ætluðu
að bíða af sér leysi þetta mikla
deilumál. Ástæða sinnaskiptanna
er augljós. Ef það auðlindaákvæði
sem stjórnlagaráð leggur til að
sett verði í stjórnarskrána verður
að veruleika er úti um allan for-
gang núverandi veiðiréttarhafa.
Tækifærið til sátta er þess
vegna núna og best fyrir alla
að það verði nýtt. Það yrði hins
vegar óþarfur áfangi en ekki
endir á langri deilu að fara þá
leið sem lagt var upp með í frum-
varpi Jóns Bjarnasonar. Ég tel vel
hægt að ná markmiðum stjórnar-
flokkanna í sjávarútvegsmálum
betur og á hagkvæmari hátt fyrir
bæði þjóðina og sjávarútveginn en
mögulegt er með þeirri leið sem
nú er til umræðu. Meira um það í
næstu grein.
Nýtingarsamningar
Sjávarútvegsmál
Jóhann
Ársælsson
fv. alþingismaður
Fyrri grein
Í báðum flokkum eru þingmenn
sem hafa í raun drattast með í stefnu
flokkanna en vilja sem minnst hrófla við
hagsmunaöflum í sínum kjördæmum.
Nicotinell er samstarfsaðili
Krabbameinsfélagsins
Lesa skal vandlega leiðbeiningar á umbúðum og fylgiseðli.
Nicotinell lyfjatyggigúmmí inniheldur 2 mg eða 4 mg nikótín (nikótínpólacrillín). Nicotinell lyfjatyggigúmmí er notað til að draga úr nikótínþörf og fráhvarfseinkennum nikótíns hjá einstaklingum sem eru háðir
nikótíni. Þannig getur það auðveldað reykingafólki sem vill hætta að reykja að hætta eða að draga úr reykingum. Ekki má nota fleiri en 25 stk. 2 mg lyfjatyggigúmmí eða meira en 15 stk. 4 mg lyfjatyggigúmmí
á sólarhring. Ef þú ert með ofnæmi fyrir nikótíni eða einhverju öðrum innihaldsefnum eða reykir ekki má ekki nota Nicotinell lyfjatyggigúmmí. Ráðfærðu þig við lækninn eða lyfjafræðing ef þú hefur nýlega fengið
hjartabilun eða hjartastopp - ert með hjartasjúkdóma, of háan blóðþrýsting, sykursýki, ofvirkan skjaldkirtil, ofvirkar nýrnahettur, alvarlega skerta nýrna- og/eða lifrarstarfsemi eða magasár. Ef þú ert barnshafandi
eða með barn á brjósti máttu einungis nota lyfið í samráði við lækni. Lyfið er ekki ætlað börnum yngri en 18 ára nema í samráði við lækni. Geymið þar sem börn hvorki ná til né sjá.
Markaðsleyfishafi: Novartis Healthcare. Umboð á Íslandi: Artasan ehf., Suðurhraun 12a, 210 Garðabæ.