Fréttablaðið - 20.02.2012, Síða 18
Moment eða augnablik er heiti
þessa stóls. Hönnuður stólsins er
Khodi Feiz. Á stólnum er áfast lítið
borð sem hægt er að beina í tvær áttir.
„Þetta fór frekar rólega af stað
en á þriðja degi varð allt vit-
laust. Skyndilega vorum við um-
kringdar innkaupastjórum frá
virtum hönnunar verslunum og
blaða mönnum sem áttu ekki orð
fyrir hrifningu. Einn sagði Tulipop
vera svar Íslendinga við Múmín-
álfunum. Annar keypti alla línuna
eins og hún leggur sig með þeim
orðum að hann festi eiginlega aldrei
kaup á neinu á sýningunni sjálfri.
Honum fannst hún svo flott að
hann hreinlega stóðst ekki mátið,“
segir hönnuðurinn Signý Kolbeins-
dóttir og annar eigandi íslenska
hönnunar fyrirtækisins Tulipop.
Þar á Signý við þær glimrandi
góðu viðtökur sem fyrirtækið hlaut
á sýningunni Ambiente í Frank-
furt á dögunum. Ambiente er ein
stærsta og virtasta sýning heims
á sviði gjafavöru, hús búnaðar
og borðbúnaðar og er sótt af um
145 þúsund verslanaeigendum
og dreifingar aðilum hvaðanæva
úr heiminum á ári hverju. Tuli-
pop var eina íslenska fyrirtækið
á sýningunni og náðu forsvars-
menn þess að landa mikilvægum
samningum við virtar hönnunar-
verslanir á meginlandi Evrópu, þar
á meðal við Klevering í Hollandi og
Pylones á Ítalíu.
Að sögn Helgu Árnadóttur fram-
kvæmdastjóra Tulipop á hug-
myndafræði merkisins ekki síst
þátt í þeim góðu viðtökum sem
línan hlaut ytra en hún inniheldur
meðal annars matarstell, diska-
mottur, lampa, minnisbækur og
tækifæriskort fyrir börn og full-
orðna. „Við kynntum Tulipop sem
heilan ævintýraheim með þrettán
fígúrum sem hver og ein á sína
sögu. Fólk kolféll fyrir þessari
fantasíu.“
Stefan Nilson, einn helsti tísku-
frömuður Svía, hefur í kjölfarið
birt myndir og jákvæða um fjöllun
um Tulipop á vefsíðunni trend-
gruppen.se og útsendarar frá hinu
virta bandaríska tímariti Gift Shop
hafa sett diska frá Tulipop á lista
yfir „skyldukaup“ fyrir vorið.
Þær Signý og Helga eiga nú í
frekari samningaviðræðum við
erlenda aðila sem hafa áhuga á
að koma vörum Tulipop á fram-
færi. „Við verðum örugglega að
fara í gegnum öll tilboðin á næstu
vikum,“ segir Helga og bætir við
að Ambiente muni klárlega opna
fyrirtækinu margar nýjar dyr
í Evrópu en vörur Tulipop eru
nú seldar í verslunum í Banda-
ríkjunum, Þýskalandi, Svíþjóð og
á Írlandi auk Íslands.
roald@frettabladid.is
Tulipop vel tekið á
Ambiente í Frankfurt
Viðtökur fóru fram úr björtustu vonum þegar hönnunarfyrirtækið Tulipop kynnti vörur sínar á sýningunni
Ambiente í Frankfurt á dögunum. Stórir dreifingaraðilar vilja koma vörum Tulipop á framfæri í Evrópu.
Fjöldi litríkra fígúra býr í töfraheimi
Tulipop, Bubble, Maddý, Skully og fleiri.
KONJAK er ný grenningarvara fyrir fullorðna í
ofþyngd. KONJAK inniheldur náttúrulegar trefjar,
(glucomannan) sem eru unnar úr konjak plöntunni
sem vex í Asíu.
Þegar KONJAK er notað samhliða léttu mataræði
má auka þyngdartap um allt að 60%. Það þýðir að
fyrir hvert kíló sem þú missir af eigin rammleik getur
þú með hjálp KONJAK misst allt að 1,6 kg.
Glucomannan eru fyrsta náttúrulega efnið sem
sérfræðingar Matvælaöryggisstofnunar Evrópu hafa
viðurkennt að raunverulega hjálpi við þyngdartap.
Glucomannan eru vatnsuppleysanlegar trefjar sem
eru þeim eiginleikum búnar að þær geta dregið til
sín 2-300 falda þyngd sína af vatni. Þegar töflurnar
leysast upp í maga myndast því massi sem fyllir upp
í magann og flýtir fyrir seddu tilfinningu.
Frekari upplýsingar
VIÐUR-
KENNT
AF EFSA
Sýningarbás Tulipop var í höll ellefu á
svokölluðu Young & Trendy-svæði sem
mjög eftirsótt er að komast á, að
sögn þeirra Signýjar og Helgu. „Eftir
að við sendum út prufur buðu for-
svarsmenn Ambiente okkur sér-
staklega bás á svæðinu.“ Meðal
annarra fyrirtækja sem sýndu
í höll ellefu voru Normann
Copenhagen og Pylones.