Fréttablaðið - 20.02.2012, Qupperneq 40
Sænski hönnuðurinn Thomas Bernstrand fékk fína hugmynd þegar hann
var staddur í París fyrir einhverjum misserum. Hann heillaðist af hug-
myndinni í almenningsgörðum borgarinnar þar sem fólk gat
fengið frístandandi stóla sem tilheyrðu garðinum og fært
þá þangað sem því hentaði. Hann hins vegar vorkenndi
aumingja starfsfólki garðsins sem safna þurfti saman
stólunum til að slá grasið. Þá datt honum í hug að hægt
væri að hanna garðstóla með þeim eiginleikum að fólki þætti
fýsilegt að skila þeim á sinn stað.
Úr varð stóllinn Share sem Bernstrand hannaði fyrir fyrir-
tækið Nola. Stólarnir er þannig útbúnir að þeim er hægt að
raða saman líkt og innkaupakerrum og tengja saman með
keðjum líkum þeim sem notaðar eru í stórmörkuðum.
Þannig þarf að setja pening í rauf til að fá stólinn en þann
pening fær fólk til baka þegar það skilar stólnum á sinn stað.
Sniðugir garðstólar
GARÐSTÓLAR FRÁ NOLA RAÐAST UPP EINS OG INNKAUPAKERRUR.
Fyrirtækið FieldCandy framleiðir
tjöld sem eru til þess gerð að
vekja athygli.
Tjöld eru í flestum tilvikum
fremur einsleit, enda eru þau
fremur hönnuð með hagkvæmni
en útlit í huga. Fyrirtækið Field-
Candy í Bandaríkjunum hefur hins
vegar tekið annan pól í hæðina.
Það fékk til liðs við sig átján
hönnuði, listamenn, ljósmyndara
og grafíska hönnuði til að búa til
mynstur á tjöldin þeirra og eru
mörg hver afar sérstæð. Þessar
myndir voru síðan prentaðar á
tjaldhimin sem þekur venjulegt
tveggja manna tjald.
Á vefsíðu fyrirtækisins er að finna
yfir fjörutíu mynstur eftir átján
listamenn og er úrvalið mikið.
Fólk getur valið sér tjald sem lítur
út eins og gras, nammi, ostastykki,
múrsteinar og allt þar á milli.
www.fieldcandy.com
Skrautlegt í
útileguna
Hönnunarstúdíóið Ding3000
frá Hanover í Þýskalandi
hannaði þeytarann fyrir
danska merkið Normann
Copenhagen. Þeytarinn
er bæði fallegur á að líta
og afar hagnýtur. Hann er
búinn til úr sveigjanlegum
nælon þráðum sem festir
eru saman með málmhring.
Þennan hring er síðan hægt
að færa til þannig að þeyt-
arinn leggst saman og verð-
ur afar fyrirferðarlítill. Þá má
hengja hann upp á sama
málmhring.
Þeytari sem lítið fer fyrir
DING3000 KYNNTI SKEMMTILEGA HÖNNUN Á ÞEYTARA NÝLEGA.
Vefverslunin Reykjavikcorner-
store.com býður úrval af íslenskri
hönnun. Á vefnum er að finna vörur
fyrir heimilið, föt, skartgripi og spil
svo eitthvað sé nefnt. Hægt er að
fylgjast með versluninni á facebook,
twitter og tumblr eða fá fréttabréf
verslunarinnar sent reglulega.
Meðal vara á síðunni má nefna
Notknot púða frá Umemi og
Krummaherðatré Ingibjargar
Hönnu.
Hönnun í verslun-
inni á horninu
VÍÐA MÁ LEITA FANGA EFTIR FAL-
LEGUM MUNUM Á HEIMILIÐ OG ER
NETIÐ ÞAR ENGIN UNDANTEKNING.
Notknot frá Umemi
PUBQUIZ Á CAFÉ ROSENBERG Á HVERJU MÁNUDAGSKVÖLDI KL.21FRÍTT INN & ALLIR VELKOMNIRVOTIR & VEGLEGIR VINNINGAR
LÉTTÖL