Fréttablaðið - 19.03.2012, Síða 2

Fréttablaðið - 19.03.2012, Síða 2
19. mars 2012 MÁNUDAGUR2 FRÉTTASKÝRING Hvernig hefur þróunin verið á verði á nauðsynjavörum, samanborið við laun, frá því fyrir hrun? Verð á drykk og matvöru hefur hækkað langt umfram launavísi- tölu frá ársbyrjun 2008. Hækkun á eldsneytisverði hefur verið enn skarpari. Samkvæmt tölum Hagstofu Íslands hækkaði verð á 95 oktana bensíni um 87 prósent frá því í árs- byrjun 2008 og þar til í febrúar á þessu ári. Verðið hefur þó hækkað töluvert í þessum mánuði þar sem bensínlítrinn kostar nú víðast hvar 262 krónur og dísilolía 263 krónur. Á sama tíma hækkaði verð á mat og drykkjarvörum um 48,3 pró- sent. Hins vegar hækkuðu laun að meðaltali aðeins um 26,4 prósent á þessu tímabili. Kaupmáttur launa hefur á sama tíma lækkað um átta prósent, en þegar verst lét, á vormánuðum árs- ins 2010, hafði kaupmáttur lækkað um rúm 13 prósent. Ólafur Darri Andrason, hagfræð- ingur Alþýðusambands Íslands, sagði í samtali við Fréttablaðið að þessar tölur kæmu ekki mikið á óvart, en mesta hættan stafaði nú af verðbólgu og hækkandi verð- bólguvæntingum. „Frá því að nýir kjarasamning- ar náðust í fyrra hefur kaupmáttur farið vaxandi og við höfum verið að ná til baka hluta af þeirri kaupmátt- arskerðingu sem við urðum fyrir í kjölfar hrunsins. Ég hef hins vegar áhyggjur af þróuninni ef að þetta heldur svona áfram. Ef krónan verður áfram veik og ekkert fer af stað í hagkerfinu, þá gætum við staðið frammi fyrir erfiðri stöðu þegar kemur að endurskoðun kjara- samninga um næstu áramót.“ Ólafur Darri vísar þar til ákvæða í kjarasamningum þar sem aðilar vinnumarkaðarins geta sagt samningum lausum ef þróun mála í efnahagslífinu, meðal annars varð- andi verðbólgu, er ekki í samræmi við yfirlýst markmið. Ólafur segir vaxandi verðbólgu- væntingar valda áhyggjum. „Ef verðbólguvæntingar aukast er hætt við því að fyrirtæki velti mögulegum og ómögulegum hækk- unartilefnum í verðlagið og við það hækkar verðbólgan frekar.“ thorgils@frettabladid.is SPURNING DAGSINS Sölulína: Bakki með 3 kjúklingaspjótum og 3 sushi-bitum Hrikalega gómsæt Tandoori-spjót með yfir 10 heilsukryddum, 3 stk. indverskt laxa-nigiri, lungamjúkir laxabitar með indversktkrydduðum hrísgrjónum, raita-sósa, sojasósa, wasabi og engifer fylgir frítt með. Brjálæðislega góður TAKE AWAY bakki stútfullur af næringu. HÓPKAUP.IS Í DAG í krafti fjöldans hópkaup.is 850 kr. 1.699 kr. Verð 50% Afsláttur 849 kr. Afsláttur í kr. GILDIR 24 TÍMA 200 150 100 08 09 10 11 12 ■ Matur og drykkjavörur ■ Launavísitala ■ Bensín 95 okt Þróun verðs síðan 2008 Nauðsynjar hækka mun meira en laun Verð á mat og drykk hafði í síðasta mánuði hækkað um 48 prósent frá því í árs- byrjun 2008. Verð á bensínlítra hefur verið enn skarpari en lítrinn hefur hækk- að um 87 prósent. Á sama tíma hefur launavísitala hækkað um rúm 26 prósent. DÝR DROPINN Verð á bensíni hefur rokið upp síðustu misseri og kostar bensínlítrinn víðast hvar um 262 krónur og dísillítrinn um 263 krónur. DÝR DROPINN Verð á bensíni hefur rokið upp síðustu misseri og kostar bensínlítrinn víðast hvar um 262 krónur og dísillítrinn um 263 krónur. STJÓRNMÁL Kristján Þór Júlíusson þingmaður var kjörinn 2. vara- formaður Sjálfstæðisflokksins á flokksráðsfundi flokksins á laugar- dag. Um er að ræða nýtt emb- ætti í flokknum sem samþykkt var að búa til á landsfundi hans í haust. Kristján Þór hlaut 167 atkvæði í ann- arri umferð varaformann- skjörsins gegn 117 atkvæðum Geirs Jóns Þórissonar, fyrrum yfirlögregluþjóns. Þar sem enginn fékk meirihluta atkvæða í fyrri umferð kjörsins var kosið á ný milli efstu manna. Auk Kristjáns og Geirs gáfu kost á sér Aldís Hafsteinsdóttir, bæjar- stjóri í Hveragerði, og Jens Garð- ar Helgason, forseti bæjarráðs Fjarðabyggðar. Í fyrri umferðinni hlaut Kristján Þór 132 atkvæði, Geir Jón 67 atkvæði, Jens Garðar 63 atkvæði og Aldís 42. - mþl Sjálfstæðismenn kjósa: Kristján Þór 2. varaformaður KRISTJÁN ÞÓR JÚLÍUSSON MINSK, AP Tveir menn sem voru dæmdir fyrir að hafa staðið á bak við sprengjuárás á neðanjarðar- lestarstöð í Hvíta-Rússlandi hafa verið teknir af lífi. Mannréttindasamtök fordæmdu líflát mannanna. Þeir voru skotn- ir í hnakkann fyrir verknaðinn en Hvíta-Rússland er eina Evrópu- ríkið sem framkvæmir dauðarefs- ingar. Mennirnir voru fundnir sekir um að hafa deytt 15 manns og slasað 300 í sprengjutilræði í Minsk fyrir rúmu ári. - fb Dauðadómur vegna árásar: Tveir menn teknir af lífi SLYS Tveimur belgískum ferða- mönnum var bjargað ofan af Vatnajökli í fyrrinótt. Á jökl- inum var hvassviðri og mikill kuldi og voru mennirnir orðnir vel kaldir þegar þeir fundust en tjald þeirra hafði rifnað. Stjórnstöð Landhelgisgæslunn- ar barst neyðarboð á tíunda tím- anum á laugardagskvöld. Höfðu mennirnir þá ræst neyðarsendi ofarlega í Skálafellsjökli, aust- arlega á Vatnajökli. Þyrla Land- helgisgæslunnar var í kjölfar- ið send á loft frá Reykjavík auk þess sem björgunarsveit frá Hornafirði fór af stað á tveimur bílum og með fjóra vélsleða. Þyrla Landhelgisgæslunnar fann mennina með aðstoð nætur- sjónauka og voru þeir hífðir upp í þyrluna. Þyrlan skilaði þeim svo til Hafnar í Hornafirði þar sem lögreglan tók við þeim. Björgunarsveitarmenn úr Björgunarfélagi Hornafjarðar fóru síðan í gær upp á Skálafells- jökul og náðu í búnað belgísku ferðalanganna. - mþl Tveir belgískir ferðamenn komust í hann krappan á Vatnajökli á laugardagskvöld: Tveimur bjargað af Vatnajökli FRÁ VATNAJÖKLI Björgunarsveitarmenn frá Höfn fóru upp á Skálafellsjökul í gær og náðu í búnað Belganna sem lentu í háska. FRAKKLAND Skylt verður að vera með öndunarmæla, sem mæla áfengismagn í blóði ökumanna, í öllum vélknúnum ökutækjum samkvæmt nýjum lögum sem samþykkt hafa verið í Frakklandi. Lögin taka gildi frá og með 1. júlí næstkomandi og ná bæði yfir bíla og bifhjól. Markmið laganna er að tryggja að allir ökumenn viti hversu mikið áfengi er í blóði þeirra áður en þeir taka þá ákvörðun að aka af stað. Þetta á einnig við um ökutæki sem koma erlendis frá og verða mælar seldir við landmæri Frakklands. Eina undantekningin eru hjól sem eru með mjög lítilli vél eða undir 50 kúbikum. Hrina alvarlegra umferðarslysa í Frakklandi, þar á meðal bana- slysa, sem rekja má til ölvunar í upphafi árs 2011 varð hvatinn að því að stjórnvöld gripu til þessara aðgerða. Þá var einnig ákveðið að setja upp fleiri hraðamyndavélar á vegum landsins. Ný löggjöf í Frakklandi sem á að fækka bílslysum tekur gildi í júlí: Skylt að hafa mæla í ökutækjum ÁFENGISMÆLIR Samkvæmt nýjum lögum í Frakklandi er skylt að hafa vínandamæla í ökutækjum. MYND/NORDIC PHOTOS/GETTY BJÖRGUN Björgunarsveitir Slysa- varnafélagsins Landsbjargar frá Akureyri, Húsavík og Eyjafjarð- arsvæðinu voru kallaðar út seinni partinn í gær til að sækja slasað- an vélsleðamann á Flateyjardal. Samkvæmt upplýsingum frá svæðisstjórn Landsbjargar gekk björgunin vel. Hlúð var að mann- inum á slysstað og hann svo flutt- ur á Sjúkrahúsið á Akureyri með þyrlu. Hann var með meðvitund þegar björgunarsveitir fundu hann. Ástand hans var stöðugt og líðan eftir atvikum góð. Ekki er vitað hver tildrög slyssins voru. - sv Þyrla sótti slasaðan mann: Vélsleðaslys á Flateyjardal LANDBÚNAÐUR Nautakjötssala í febrúar er fjórðungi meiri, 23,7 prósentum, en í febrúar í fyrra að því er fram kemur á vef Landssam- bands kúabænda. Þar er vísað til nýrrar samantektar Bændasam- takanna á framleiðslu og sölutölum. Þá var ársfjórðungssala á nauta- kjöti nærri fimmtungi, eða 18,1 prósenti meiri en ári fyrr. „Þá er nú árssalan, þ.e. salan sl. 12 mánuði, nú í fyrsta skipti komin yfir 4.000 tonn en heildarsalan er nú 4.019 tonn sem er aukning um 4,6 prósent,“ segir á vefnum. - óká Fjórðungsaukning í febrúar: Nautakjöt selst betur en áður „Alfreð, ertu algjör nammi- grís? „Nei, ég er bara súkkulaðikarl.“ Alfreð Chiarolanzio er eigandi nammi- búðarinnar Nammibarinn á Laugavegi. STJÓRNMÁL Dögun – samtök um réttlæti, sanngirni og lýðræði er nafn nýrra stjórnmálasamtaka. Þetta var ákveðið á öðrum stofn- fundi samtakanna sem fram fór í gær. Um hundrað manns sátu fundinn. Helga Þórðardóttir, Lýður Árna- son, Þórður Björn Sigurðsson, Finnbogi Vikar og Gísli Tryggva- son voru kjörin í framkvæmda- ráð. Í úrskurðarnefnd voru kjörin Margrét Rósa Sigurðardóttir, Frið- rik Þór Guðmundsson og Jón Þór Ólafsson. Aðgerðir í þágu heimila, siðvæð- ing í stjórnkerfi, ný stjórnarskrá, uppstokkun á fiskveiði stjórnunar- kerfinu, uppgjör við hrunið og að niðurstaða viðræðna við ESB fari í þjóðaratkvæðagreiðslu eru meðal forgangsmála. - fb Stofnfundur haldinn í gær: Ný samtök nefnast Dögun Á STOFNFUNDI Um eitt hundrað manns sátu stofnfundinn í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.