Fréttablaðið


Fréttablaðið - 19.03.2012, Qupperneq 4

Fréttablaðið - 19.03.2012, Qupperneq 4
19. mars 2012 MÁNUDAGUR4 ÓSLÓ, AP Ástæðan fyrir því að Hercules-flutningavél norska hersins brotlenti í Svíþjóð með fimm manns um borð er líklega sú að flugmennirnir ákváðu að fljúga vélinni sjálfir í lágflugi í stað þess að nota sjálfstýringuna. Þetta sagði Trond Solna, sem hefur yfirumsjón með flutninga- vélum norska hersins, í viðtali við norska dagblaðið Aftenposten. Flugvélin hrapaði í Kebne- kaise-fjalli í norðurhluta Svíþjóð- ar á fimmtudaginn og fórust allir um borð. Að sögn Solna sögðust flugmennirnir ætla að fljúga vélinni sjálfir ef veðrið yrði hagstætt. - fb Flugslysið í Svíþjóð fyrir helgi: Notuðu ekki sjálfstýringu KEBNEKAISE Kebnekaise-fjallið þar sem Hercules-vélin brotlenti. MYND/AP Rúðubrot í Listasafninu Rúða var brotin í Listasafni Reykja- víkur við Tryggvagötu aðfaranótt sunnudags. Einnig var brotist inn í íbúð við Álfhólsveg en ekki er vitað hverju var stolið. LÖGREGLUFRÉTTIR GENGIÐ 16.03.2012 GJALDMIÐLAR KAUP SALA HEIMILD: Seðlabanki Íslands 228,468 GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR 127,14 127,74 199,94 200,92 165,92 166,84 22,312 22,442 21,944 22,074 18,667 18,777 1,5176 1,5264 194,57 195,73 Bandaríkjadalur Sterlingspund Evra Dönsk króna Norsk króna Sænsk króna Japanskt jen SDR AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Einar Davíðsson einar.davidsson@365.is, Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Steingrímsson hlynurs@365.is, Laila Awad laila@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is ALLT SÍMI 512-5402: Jóna Hafsteinsdóttir jmh@365.is, Snorri Snorrason snorris@365.is SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5016: Benedikt Jónsson benediktj@365.is, Sigríður Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is, Ívar Hansen ivarorn@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Sigurlaug Aðalsteinsdóttir sigurlaug@365.is, Arna Kristinsdóttir arnarut@365.is, Guðný Gunnlaugsdóttir gunny@365.is, Sigrún Guðmundsdóttir sigrunh@365.is KYNNINGARSTJÓRI: Einar Skúlason einar.skulason@365.is Fundir og ráðstefnur Veislusalurinn er vel tækjum búinn og er því tilvalinn fyrir hvers kyns ráðstefnur og fundi, stóra sem smáa. Í salnum er meðal annars hágæða hljóðkerfi, skjávarpi, flettitafla og púlt. Starfsfólk okkar veitir þér ráðgjöf varðandi veitingar og annað sem huga þarf að. GLÆSILEGUR VEISLUSALUR! Náttúruparadís í hjarta borgarinnar www.nautholl.is www.facebook.com/nautholl nautholl@nautholl.is sími 599 6660 Þau mistök urðu við vinnslu fréttar um frumvarp innanríkisráðherra um forvirkar rannsóknarheimildir að birt var mynd af Árna Pétri Jónssyni forstjóra 10/11. Þarna átti að vera mynd af Snorra Magnússyni formanni Landssambands lögreglumanna. Árni Pétur og Snorri eru beðnir velvirð- ingar á mistökunum. LEIÐRÉTT ÞJÓNUSTA Farfuglaheimili með herbergjum fyrir 250 gesti verð- ur innréttað gegnt Hlemmtorgi ef áform eigenda hússins ganga eftir. Áður hafa verið áform um rekstur gististaðar á Laugavegi 105. Á árinu 2001 reyndu Nátt- úrugripasafn Íslands og full- trúar fleiri eigenda í húsfélag- inu á Laugavegi 105 að koma í veg fyrir að leyfi fyrir slíkum rekstri á annarri hæð hússins yrðu gefin. Meðal þeirra raka sem sett voru fram af hálfu Náttúru- gripasafnsins var að umgang- ur gesta gistaheimilisins í sam- eiginlegum stigagangi gæti sett marga af dýrgripum þjóðarinnar í hættu. Kærunefnd fjöleignar- húsamála sagði eiganda annarr- ar hæðar hins vegar heimilt að breyta húsnæðinu án samþykkis meðeigendanna. Náttúrugripa- safnið er flutt úr húsinu. Í ljósi þessa segist skipulags- fulltrúi nú ekki gera athuga- semdir við að eigandi hús- næðisins láti vinna tillögu um breytinguna sem síðan fari í grenndarkynningu. - gar Má reka gistihús í fjöleignarhúsi á Laugavegi 105 án samþykkis meðeigenda: Farfuglaheimili fyrir 250 manns við Hlemm LAUGAVEGUR 105 Hér gætu allt að 250 manns hallað höfði ef áform eiganda hluta hússins verða að veruleika. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN BRUSSEL, AP Fórnarlamba rútus- lyss í Sviss þar sem 28 manns fórust, þar á meðal 22 skóla- börn, var minnst í Belgíu á föstudag. Flaggað var í hálfa stöng, kirkjubjöllur hringdu og lestir og verksmiðjur voru stöðvaðar til að minnast hinna látnu. Yfirvöld í Sviss rannsaka nú hvort hönnun jarðganganna þar sem slysið varð hafi átt þátt í harmleiknum. Jóhanna Sigurðardóttir for- sætisráðherra hefur sent for- sætisráðherra Belgíu, Elio Di Rupo, samúðarkveðjur til belg- ísku þjóðarinnar, fjölskyldna og aðstandenda þeirra sem fórust í rútuslysinu. - fb Þjóðarsorg vegna rútuslyss: Fórnarlamba minnst í Belgíu VEÐURSPÁ Alicante Basel Berlín Billund Frankfurt Friedrichshafen Gautaborg Kaupmannahöfn Las Palmas London Mallorca New York Orlando Ósló París San Francisco Stokkhólmur HEIMURINN Vindhraði er í m/s. Hitastig eru í °C. Gildistími korta er um hádegi. 15° 12° 9° 6° 12° 4° 7° 7° 21° 12° 15° 18° 28° 6° 11° 13° 7° Á MORGUN 3-8 m/s. MIÐVIKUDAGUR 8-13 m/s. 10 12 8 3 3 3 2 2 5 6 3 6 3 1 7 5 6 6 9 8 15 8 0 2 3 4 4 4 6 8 8 4 SUÐLÆGAR ÁTTIR verða ríkjandi á landinu næstu daga. Stíf suð- vestanátt með slydduéljum sunn- an og vestanlands í dag en hægari vindur og rigning eða slydda annars staðar. Dregur úr úrkomu á morgun og léttir til norð- austanlands. Elísabet Margeirsdóttir veður- fréttamaður BEIRÚT, AP Öflug bílsprengja sprakk skammt frá öryggisbygg- ingu sýrlensku ríkisstjórnarinnar í borginni Aleppo í gær. Yfirvöld í Sýrlandi segja að hryðjuverka- menn hafi staðið á bak við spreng- inguna. Bættu þau við að einn lögreglumaður og einn almennur borgari hafi farist í sprengingunni og þrjátíu til viðbótar hafi særst. Þetta var önnur árásin í landinu á tveimur dögum. Á laugardag fórust 27 manns í þremur sjálfs- morðssprengjuárásum í höfuð- borginni Damaskus. Stjórnvöld segja að árásirnar tengist uppreisninni gegn forset- anum Bashar al-Assad sem hefur staðið yfir í eitt ár. Sýrlenska þjóðarráðið, samtök stjórnarand- stæðinga, hafa á móti sakað yfir- völd um að standa á bak við sumar sprengingarnar til að vekja ótta hjá almenningi og sýna fram á að uppreisnarsinnarnir séu hryðju- verkamenn. Margar sjálfsmorðsárásir hafa verið gerðar í Aleppo og Damas- kus, tveimur stærstu borgum Sýr- lands, frá því í desember. Mikill stuðningur er við Assad í báðum borgunum. Enginn hefur enn lýst ábyrgð á árásunum um helgina á hendur sér. Sameinuðu þjóðirnar telja að yfir átta þúsund manns hafi látist í átökunum á þessu eina ári. Bandarísk yfirvöld telja að Íran- ar séu að aðstoða sýrlensk stjórn- völd með því að sjá þeim fyrir vopnum í baráttunni við stjórn- arandstæðinga. Írakar hafa viðr- að áhyggjur sínar við sendiherra Írans í Bagdad vegna málsins. Lítið eftirlit er með lofthelginni yfir Írak og því er auðvelt að flytja vopn frá Íran yfir til Sýrlands. freyr@frettabladid.is Fjórar mannskæðar árásir í Sýrlandi Hátt í þrjátíu manns fórust í fjórum sprengjuárásum í Sýrlandi um helgina. Sameinuðu þjóðirnar telja að um átta þúsund manns hafi látist í átökum í landinu síðan uppreisn gegn forsetanum Bashar al-Assad hófst fyrir ári. SYRGIR FÖÐUR SINN Sýrlenskur drengur stendur við kistu föður síns sem fórst í sprengjuárás í höfuðborginni Damaskus á laugardaginn. MYND/AFP SVÍÞJÓÐ Um 40 femínistar efndu til mótmæla á torgi í Malmö í vikunni sem leið og sýndu á sér loðna handarkrikana. Femínistarnir lýstu þannig yfir stuðningi við konu sem hafði verið niðurlægð eftir beina útsendingu frá undan- keppni Evrópusöngvakeppninnar í Svíþjóð. Í myndskeiði af kon- unni sást hún lyfta örmum sínum í fögnuði. Handarkrikar konunn- ar voru loðnir og var hún í kjöl- farið sögð viðbjóðsleg og kölluð femínista hóra. Einn mótmælendanna, Emma Lundberg, setti mynd af loðnum handarkrika sínum á Facebook á dögunum, að eigin sögn mest í gríni. Henni var hótað lífláti auk þess sem hún var kölluð hóra og sökuð um að þrífa sig ekki. - ibs Umræður eftir söngvakeppni: Heitt í hamsi vegna hára í handarkrika

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.