Fréttablaðið - 19.03.2012, Side 14

Fréttablaðið - 19.03.2012, Side 14
19. mars 2012 MÁNUDAGUR14 Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli og útfarir má senda á netfangið timamot@frettabladid.is. Auglýsingar á að senda á auglysingar@frettabladid.is eða hringja í síma 512 5000. timamot@frettabladid.is Okkar ástkæri Kristján Helgi Guðmundsson bóndi, Minna-Núpi, verður jarðsunginn frá Stóra-Núpskirkju föstudaginn 23. mars kl. 14.30. Ámundi Kristjánsson Herdís Kristjánsdóttir Guðbjörg Ámundadóttir Snorri og fjölskylda Erla og fjölskylda Guðrún og fjölskylda. „Það er mikil aðgreining þarna eins og á kynjum en samt sem áður er það sjálfur emírinn sem stendur á bak við verðlaunin ásamt UNESCO og veitir þau,“ segir Dóra S. Bjarnason, pró- fessor við Menntavísindasvið Háskóla Íslands, sem var viðstödd afhendingu heimsverðlauna UNESCO í Kúvæt 29. febrúar síðastliðinn. Verðlaunin nefn- ast UNESCO/Amir Jaber Al-Ahmad Al-Jaber Al Sabah price og tilgangur þeirra er að verðlauna einstaklinga eða verkefni sem skara fram úr í kennslu nemenda með þroskahömlun í skóla án aðgreiningar. „Þarna var samankomið fólk úr efstu þrepum samfélagsins eins og emír-fjölskyldan og hershöfðingj- ar og þessi verðlaun gera fólki sem sinna kennslu og rannsóknum á þessu sviði hátt undir höfði sem er merki- legt,“ segir Dóra en henni var boðið að sitja í sérstakri dómnefnd verð- launanna. „Samstarfið var yndislegt og við vorum fullkomlega sammála,“ segir hún. Auk Dóru voru prófess- or frá Asíu, háskólakennari frá Suð- ur-Afríku, læknir og prófessor frá Bandaríkjunum og háskólakennari frá Kúvæt með sæti í dómnefndinni. „Talsvert af verkefnum voru send inn alls staðar að úr heiminum og við ákváðum að verðlauna prófessor Douglas Biklen frá Syracuse háskóla í Bandaríkjunum fyrir ævistarf sitt. Hann hefur helgað líf sitt rannsóknum á aðstæðum fólks með fötlun, unnið ötullega að réttindum fatlaðs fólks, komið fram í fjölmiðlum og staðið fyrir kvikmyndagerð meðal annars um fólk með einhverfu,“ segir Dóra um sigurvegarann. Hún segir ferðina í heild hafa verið mjög áhugaverða og fékk að skoða sérskóla fyrir börn með einhverfu sem var vel búinn tækjum og tólum. Þar hélt hún erindi meðal annars fyrir kennara, forelda, prinsa og prinsessur, ásamt sendiherrum UNESCO en Dóra telur að það eigi ekki að aðgreina börn í skólum og nefnir að rannsóknir sýni að börn njóti sín og læri best í almennum skólum sem sinni ólíkum nemendum. „Kúvæt er allt annar menningar- heimur og maður tekur honum eins og hann er,“ segir hún svo um dvöl sína sem gekk snurðulaust fyrir sig. „Maður verður fyrst og fremst að vera klæddur sómasamlega, föt upp í háls og ekki sýna meira hold en þarf. Regl- urnar þarna eru þó ekki eins stífar og annars staðar. Þarna eru konur í búrk- um, aðrar með slæður og sumar jafn- vel slæðulausar,“ segir Dóra og bætir við að það sé mjög sterkt í menningu þeirra að gera vel við gesti sína. „Ég hef aldrei upplifað aðra eins gestrisni á ævi minni,“ segir hún að lokum. - msj Dóra S. BjarnaSon: Á meðal prinsa og prinsessa í Kúvæt Vorum fullkomlega sammála Verðlaunaafhendingin Hatturinn hennar Dóru vakti mikla lukku en hún stendur á milli emírsins og Biklens. Bruce Willis leikari er 57 ára í dag. „Það eru allir um það bil 25 ára í hjarta sínu. Alveg sama hve gamlir þeir eru.“ Merkisatburðir 19. mars 1279 Mongólskur sigur í orrustunni um Yamen bindur enda á Song-veldið í Kína. 1870 jón ólafsson ritstjóri birtir kvæðið „Íslendingabrag“ í blaði sínu Baldri. Kvæðið er mjög meinyrt í garð Dana og hlýtur jón síðar dóm fyrir birtingu þess. 1908 Bríet Bjarnhéðinsdóttir flytur sitt fyrsta mál í bæjarstjórn reykjavíkur. Er það tillaga um sundkennslu fyrir stúlkur. Tillagan er samþykkt. 1915 Plánetan Plútó er ljósmynduð í fyrsta sinn. 1922 Leikfélag reykjavíkur heldur upp á 300 ára fæðingar- afmæli leikskáldsins Molières með hátíðarsýningu á verki hans Ímyndunarveikinni. 1962 Fyrsta plata Bobs Dylan, Bob Dylan, kemur út. Hún selst í 5.000 eintökum fyrsta árið. 1971 Tollstöðvarhúsið í reykjavík tekið í notkun. 1982 Falklandseyjastríðið hefst með því að argentínumenn taka eyjuna Suður-Georgíu. „Með þessu gerum við unglingum kleift að stunda hesta- mennsku, án þess að leggja út í allan startpakkann sem fylgir íþróttinni,” segir Jón Finnur Hansson, framkvæmda- stjóri Hestamannafélagsins Fáks, um þá nýjung félagsins að bjóða unglingum sérstaka aðstöðu og þjónustu. „Við útvegum hestana, reiðtygin, hesthús, fóður og leiðbeinanda.” Það er Sigurlaug Anna Auðunsdóttir sem verður yfirleið- beinandi og stuðningsaðili verkefnisins, en hún hefur rekið reiðskóla um árabil og því vön að miðla af reynslu sinni. Hún verður á staðnum frá klukkan 16.30 til 18.30 á virkum dögum og 13 til 15 á laugardögum. Hún mun leiðbeina ung- lingunum með allt það sem að hestamennskunni snýr, frá því að hirða hrossin til útreiðanna sjálfra. „Með þessu fá unglingarnir að máta sig við þann lífsstíl að vera hestamaður. Ég geri ráð fyrir að margir foreldrar verði ánægðir með þetta, því margir þeirra vilja gjarnan leyfa börnum sínum að stunda hestamennsku en vera fyrst vera vissir um að þetta sé lífsstíll sem krakkarnir þeirra munu halda sig við,” segir Jón Finnur. Plássið var tekið í notkun í síðustu viku en enn eru nokkur pláss laus fyrir áhugasama hestaunnendur á aldursbilinu 13 til 16 ára. - hhs Máta sig við hestamennsku unglingahópur hjá fáki Unglingum á aldrinum 13 til 16 ára gefst nú tækifæri til að stunda hestamennsku, án þess að þurfa að leggja út í mikinn kostnað. MYnD/FáKUr Þennan dag árið 1831 var Edward Smith fyrsti maðurinn í sögu Bandaríkjanna til að ræna banka. Smith var enskur innflytjandi sem vantaði skjótunn- inn gróða. Bankinn sem varð fyrir valinu hét The City Bank og var við Wall Street en forsvarsmenn bankans söknuðu eðlilega mjög 245.000 dollaranna sem Smith hafði á brott með sér. ræninginn lék þó ekki lausum hala lengi og var handsamaður af lögreglunni stuttu eftir ránið. Stærstum hluta peninganna var því skilað aftur í fjár- hirslur bankans en Smith fékk að dúsa í fimm ár við erfiðisvinnu í Sing Sing-fangelsinu fyrir vikið. Smith tilheyrir því stærstum hluta ræningja sem fetað hafa í fótspor hans en einungis einn af hverjum sex bankaræningjum kemst undan án þess að mál hans sé upplýst. óhætt er að segja að Smith hafi opnað flóðgáttir en síðan honum mistókst hafa margir menn, stórir og smáir, reynt fyrir sér í bankaránum. Engar opinberar tölur eru til um fjölda bankarána í heiminum en til viðmiðunar er talið að á hverju ári séu gerð um þrjú þúsund bankarán í Los angeles-borg einni saman. Þetta gerðist: 19. MarS 1831 Fyrsti bankaræninginn fer á kreik Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma, Sigurborg Ólafsdóttir lést á Hjúkrunarheimilinu Skjóli 13. mars síðastliðinn. Útförin fer fram frá Áskirkju miðvikudaginn 21. mars kl. 13.00. Hansína J. Traustadóttir Hjördís G. Traustadóttir Hafsteinn Ingvarsson Ágústína Hlíf Traustadóttir Kristófer Guðmundsson og fjölskyldur.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.