Fréttablaðið


Fréttablaðið - 19.03.2012, Qupperneq 15

Fréttablaðið - 19.03.2012, Qupperneq 15
SÝNING Sýningin er opin 22. og 23. mars frá klukkan 9 til 20, 24. mars frá 10 til 17 og 25. mars frá 12 til 17. Eftir það er opið alla virka daga frá 9 til 18 og um helgar frá 12 til 17. Við Pekka kynntumst fyrir 18 árum í Myndlista og handíðaskólanum. Hann er sérvitur og jarðbundinn meðan ég er meira á flugi svo við smell- um vel saman,“ segir Kristín sem er að leggja lokahönd á hluti þeirra Pekka fyrir sýningu á Skörinni hjá Handverki og hönnun á HönnunarMars. Sýningin verð- ur opnuð á fimmtudag klukkan 18. „Þetta eru nýir hlutir en við erum búin að vinna að sýningunni síðastliðið ár. Pekka er búsettur í Finnlandi og vann hlutina sína þar, fimm borð og hillur. Ég vann mína hluti í samhengi við hans. Ég fékk svo hans hluti núna senda hingað til að ganga frá þeim, set þá saman, vel liti og mála í samtali við litina á mínum.“ Kristín sýnir skálar, drykkjarílát og grátskálar til að safna í tárum. Munirnir eru mitt á milli þess að vera skúlptúrar og nytjahlutir en Kristín dansar oft á þeirri línu í hönnun sinni. Þá sýnir hún hlut sem hún kallar Skessuhorn. „Ég heyrði að í gamla daga hafi konur notað stór- gripahorn til að geta kastað af sér vatni standandi. Ég vann horn í postulín og sýndi í Tókýó síðasta haust,“ útskýrir hún og segir Japana hafa rekið upp stór augu. „Ég hafði lúmskt gaman af því að sjá hvað þeir fóru hjá sér þegar ég útskýrði til hvers það er ætlað,“ segir hún og hlær. Sýningin stendur til 18. apríl. ÍSLENSK OG FINNSK HÖNNUN Á SKÖRINA HANDLEIKIÐ Hönnuðirnir Kristín Sigfríður Garðarsdóttir og Pekka Tapio Pyykonen sýna postulínsmuni og viðarhúsgögn á Skörinni á HönnunarMars. BEÐIÐ EFTIR IPAD 3 Nú styttist í þriðju útgáfu iPad spjaldtölvunnar en sú fyrsta kom út árið 2010. Tölvan hefur selst í 55 milljónum eintaka í heiminum frá því að hún kom á markað. Nýjasta útgáfan ku vera töluvert full- komnari en þær fyrri. NÝI IPADINN KEMUR 23. MARS. FRÁGANGUR Kristín leggur loka- hönd á postulíns- muni og húsgögn sem þau Pekka sýna á Skörinni. MYND/GVA SÉRFRÆÐINGAR Í RAFGEYMUM Fermingartilboð Gerið GÆÐA- og verðsamanburð 12 má naða vaxtal ausar greiðs lur Stærð Verð Tilboð 120x200 84.900 kr. 79.900 kr. VALHÖLLNý hönnun 5 svæðaskipt gormakerfi, gæðabólstrun, stál kantstyrkingar Verð með íslenskum botni og fótum 10.000 kr . vöruútte kt fylgir öllum fermingar rúmum

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.