Fréttablaðið - 19.03.2012, Page 16

Fréttablaðið - 19.03.2012, Page 16
FÓLK|HEIMILI Hlín keypti íbúð við Bergstaða-stræti árið 2000. Aðeins einn eig-andi hafði búið þar áður, Krist- inn Reyr, rithöfundur og listmálari, sem flutti inn 9. maí 1960 samkvæmt því sem stendur á útskornu skilti sem hangir ofan við svalahurð. „Ég geri ráð fyrir að Kristinn hafi keypt elda- vélina nýja, enda var íbúðin innréttuð fyrir hann. Ég hef búið hér í tólf ár og nota eldavélina í alla eldamennsku og bakstur,“ segir Hlín. SNIÐIN FYRIR INNRÉTTINGUNA „Ég þarf ekkert á öðru tæki að halda. Það eru fjórar hellur úr gormum sem hitna fljótt og vel, líkt og nútíma gas- hellur. Það eru einungis þrjár stillingar, lítill hiti, meðalhiti og mikill hiti svo þetta er vissulega einfalt og þægilegt. Ofninn er ekki búinn nýjustu tækni eins og blæstri eða grilli en engu að síður kemur allt vel bakað og fínt úr honum. Ég elda oft fisk í ofni og sömuleiðis er ég stundum með lambalæri. Það er undir- og yfirhiti og það dugar,“ segir Hlín enn fremur. Hún fullyrðir að eldavélin hafi ekki mikið verið notuð fyrir sína daga. „Mér sýndist ofninn sem nýr. Kristinn hefur örugglega soðið ýsu og kartöflur en tæplega hefur hann bakað eða steikt í ofni. Sjálf hef ég gaman af að elda og bjóða gestum í mat. Ég er hins vegar fyrir einfalda matreiðslu. Eldavélin er 50 sentimetra breið og sniðin inn í inn- réttinguna,“ segir Hlín og viðurkennir að hún hafi skoðað nýjar eldavélar en hættir jafnan við að skipta út þeirri gömlu, enda er hún í fullkomnu lagi. RAFHA-SÝNING Í HAFNARFIRÐI Rafha-eldavélar eru framleiddar hér á landi og komu fyrst á markað árið 1937. Innflutningshöft og -bönn hvöttu menn til að hefja framleiðslu á heimilis- tækjum. Í Byggðasafni Hafnarfjarðar er Rafha-sýning þar sem skoða má fyrstu eldavélar sem framleiddar voru hér- lendis, ísskápa og ryksugur. Þar utan er mikill fróðleikur um sögu þessa fyrirtækisins sem hætti starfsemi árið 1990. Byggðasafnið er opið um helgar og það er frítt inn. Rafha-eldavélar hafa enst ótrúlega vel og eru enn í notkun, eins og sjá má á heimili Hlínar þar sem hið upp- runalega umhverfi fær að njóta sín. Hlín er þessa dagana að fást við eigin skrif, eins og hún orðar það auk þess að kenna ritlist hjá Háskóla Íslands. Þá er hún með námskeið hjá Endurmennt- un HÍ sem nefnist Töfrar raddarinnar. Þess má geta að Hlín er ein af fjórum íslenskum kvenskáldum sem urðu þess heiðurs aðnjótandi að leikrit eftir þær voru valin á stóra alþjóðlega ráðstefnu sem haldin verður í Stokk- hólmi í sumar. Þar verða kynnt leikrit eftir eitt hundrað konur hvaðanæva úr heiminum. ■ elin NOTAR ENN RAFHA ELDAVÉL FRÁ 1960 EKKERT BRUÐL Hlín Agnarsdóttir, rithöfundur og leikstjóri, telur enga ástæðu til þess að henda gömlu Rafha-eldavélinni á meðan hún er enn heil og nothæf. Eldavélin er frá árinu 1960. GERIR SITT GAGN Hlín Agnarsdóttir rit- höfundur er ánægð með Rafha-eldavélina þótt hún sé orðin 52 ára. „Hún er í fullkomnu lagi þótt hún sé án nútíma tækni,“ segir hún. MYND/VALLI BÝR Í GÖMLU HÚSI Rósa Guðbjartsdóttir á heima í 80 ára gömlu húsi og er stöðugt að gera endurbætur. ■ ÆTLAR AÐ VERA DUGLEG Í GARÐINUM Rósa Guðbjartsdóttir hefur verið með skemmtileg matar- innslög á Stöð 2 sem tekin eru á heim- ili hennar. Rósa er fjölskyldumann- eskja og það var því ekki úr vegi að spyrja hana smávegis um heimilið. Stendur þú í einhverjum fram- kvæmdum þessa dagana á heim- ilinu? „Já, reyndar. Við erum að færa unglinginn á heimilinu í nýtt herbergi í kjallaranum. Við búum í 80 ára gömlu húsi og erum sífellt að gera endurbætur svo það henti fjölskyldunni betur. Sonurinn er að verða sautján ára og fær að vera prívat. Hvað stendur til næst? „Ég ætla að breyta gamla herberginu hans í drauma-heimaskrifstofu fyrir mig.“ Eruð þið dugleg að breyta og bæta? „Við höfum búið í þessu húsi í sautj- án ár og höfum verið að gera það smátt og smátt upp. Annars hlakka ég til vorsins, enda hef ég ákveðið að vera dugleg í garðinum í sumar og skipuleggja hann upp á nýtt.“ Er einhver hlutur sem þig langar sér- staklega mikið í þessa dagana? „Ég þarf að kaupa nýja brauðrist. Annars er ég dugleg að kaupa ýmsa hluti fyrir eldhúsið.“ Áttu bleikan hníf? „Ég keypti mér ljósbleikan, bleikan og bláan hníf í september og var með í þáttum mínum á Stöð 2. Ég hef notað þessa japönsku hnífa mjög mikið.“ HEIMA VIÐ | RÓSA GUÐBJARTSDÓTTIR, BÆJARFULLTRÚI Í HAFNARFIRÐI ÆTLAR AÐ ÚTBÚA DRAUMA- HEIMASKRIFSTOFUNA Biðukolla rúmföt Stærð 140x200

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.