Fréttablaðið - 19.03.2012, Page 17

Fréttablaðið - 19.03.2012, Page 17
Kynningarblað Öryggismyndavélar, öryggisráðgjöf, neyðarþjónustur, vöktunar- og hússtjórnunarkerfi og góð ráð. ÖRYGGISÞJÓNUSTUR MÁNUDAGUR 19. MARS 2012 &KERFI Vörn öryggiskerfi sérhæfir sig í sölu á öryggismynda-vélalausnum fyrir fyrir- tæki, heimili og sumarbústaði. Fyrirtækið kappkostar við að bjóða helstu tækninýjungar á því sviði á hagstæðu verði og heildarpakka sniðna að þörfum hvers og eins. „Við erum lítið fyrirtæki sem hefur verið í stöðugum vexti frá stofnun árið 2007. Lítil yfirbygg- ing og hagstæðir samningar hafa frá byrjun tryggt viðskiptavinum okkar hágæða vöru á sanngjörnu verði og hefur sú stefna borið góðan árangur þar sem nú eru yfir 500 fyrirtæki stór og smá í viðskipt- um við Vörn.“ Þannig lýsir eigandinn og stofn- andinn, Jón Hermannsson, stefnu Varnar. Að hans sögn má skipta starfseminni niður í þrjú svið eftir þörfum viðskiptavina, það er að segja heimili, sumarbústaði og fyrirtæki sem eru stærsti hópurinn. Fyrirtækjalausnir „Við bjóðum fyrirtækjum upp á fjórar ólíkar gerðir heildarpakka sem byggja á fullkomnu mynda- vélakerfi. Allt er innifalið í pakkan- um, þar á meðal myndavélar með innfrarauðum geisla, tölva, harður diskur og skjár sem er sérhannaður fyrir eftirlitsmyndavélar. Svo eru myndavélarnar búnar hreyfiskynj- ara sem geta sent boð ef hreyfing- ar verður vart á óæskilegum tíma, til dæmis utan opnunartíma, og geta þannig nýst sem öryggiskerfi. Helsti mismunurinn á milli pakka felst síðan í fjölda myndavéla þar sem velja má milli 4, 8, 16 og 32 véla. Vörn er afar stolt af frábæru starfsfólki sem sjá um uppsetningar og tækni vinnu.“ Jón seg i r þessa heildar pakka hafa nýst f yrir- tækjum vel gegnum tíðina. „Til að mynda stórum fyrirtækjum sem eru með dreifð- an rekstur úti um allt land. Þá eru þau með myndavélar á hverjum stað og geta þannig fylgst með þeim öllum úr einni „móðurstöð“,“ bendir hann á. Ýmis fylgibúnað- ur býðst og nefnir Jón snúningsvélar í því samhengi. „Þær eru búnar still- anlegum ljósabúnaði, geta snúið hvert sem er og „súmað“ inn á hluti í mikilli fjarlægð,“ útskýrir hann og segir slíkar vélar hafa nýst vel í matvælaiðnaðinum. „Þar hafa þær verið notaðar til dæmis við gæða- eftirlit í fiskvinnslum. Þannig geta forsvarsmenn fyrirtækja komið auga á mistök í ferlinu.“ Heimahús og sumarbústaðir Jón segir Vörn bjóða svipaða pakka fyrir heimahús. „Þetta eru kerfi sem eru einföld í uppsetningu þar sem velja má milli 4, 8 og 16 myndavéla. Vélarnar eru búnar hreyfisk ynjara sem geta sent sms- skeyti eða tölvu- póst til viðkomandi vegna óæskilegrar hreyfingar og send- ir mms mynd af atburð- inum en kerfið geymir upptökur í einn og hálfan mánuð,“ lýsir hann. Vörn er líka með sérsniðna pakka fyrir sumarbústaði. „Þetta er tveggja véla pakki og lítil tölva sem hægt er að tengj- ast heiman frá sér. Þær eru búnar hreyfi- skynjara sem senda tölvupóst og sms-skeyti ef óæskileg hreyfing greinist í grennd við bústaðinn,“ segir Jón og hvetur sem flesta að kynna sér betur Vörn. Upplýsingar megi nálgast á heimasíðunni vorn.is. Þær séu líka veittar í síma 561 5600 og 896 4630. Fullkominn eftirlitsbúnaður Vörn öryggiskerfi selur fullkomnar öryggismyndavélalausnir sem eru sérsniðnar að ólíkum þörfum hvers og eins. Fyrirtækið þjónustar íbúða- og sumarbústaðaeigendur og fjölda fyrirtækja sem hafa nýtt sér vörur þess með góðum árangri. Lítil yfirbygging og hagstæðir samningar hafa frá byrjun tryggt viðskiptavinum okkar hágæða vöru á sanngjörnu verði og hefur sú stefna borið góðan árangur þar sem nú eru yfir 500 fyrirtæki stór og smá í viðskiptum við Vörn,“ segir Jónas Hermannsson hjá Vörn. MYND/ANTON vorn@vorn.is | www.vorn.is | Sími 562-6559

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.