Fréttablaðið - 19.03.2012, Qupperneq 17
Kynningarblað Öryggismyndavélar, öryggisráðgjöf,
neyðarþjónustur, vöktunar- og hússtjórnunarkerfi og góð ráð.
ÖRYGGISÞJÓNUSTUR
MÁNUDAGUR 19. MARS 2012
&KERFI
Vörn öryggiskerfi sérhæfir sig í sölu á öryggismynda-vélalausnum fyrir fyrir-
tæki, heimili og sumarbústaði.
Fyrirtækið kappkostar við að bjóða
helstu tækninýjungar á því sviði á
hagstæðu verði og heildarpakka
sniðna að þörfum hvers og eins.
„Við erum lítið fyrirtæki sem
hefur verið í stöðugum vexti frá
stofnun árið 2007. Lítil yfirbygg-
ing og hagstæðir samningar hafa
frá byrjun tryggt viðskiptavinum
okkar hágæða vöru á sanngjörnu
verði og hefur sú stefna borið
góðan árangur þar sem nú eru yfir
500 fyrirtæki stór og smá í viðskipt-
um við Vörn.“
Þannig lýsir eigandinn og stofn-
andinn, Jón Hermannsson, stefnu
Varnar. Að hans sögn má skipta
starfseminni niður í þrjú svið eftir
þörfum viðskiptavina, það er að
segja heimili, sumarbústaði og
fyrirtæki sem eru stærsti hópurinn.
Fyrirtækjalausnir
„Við bjóðum fyrirtækjum upp á
fjórar ólíkar gerðir heildarpakka
sem byggja á fullkomnu mynda-
vélakerfi. Allt er innifalið í pakkan-
um, þar á meðal myndavélar með
innfrarauðum geisla, tölva, harður
diskur og skjár sem er sérhannaður
fyrir eftirlitsmyndavélar. Svo eru
myndavélarnar búnar hreyfiskynj-
ara sem geta sent boð ef hreyfing-
ar verður vart á óæskilegum tíma,
til dæmis utan opnunartíma, og
geta þannig nýst sem öryggiskerfi.
Helsti mismunurinn á
milli pakka felst síðan
í fjölda myndavéla þar
sem velja má milli 4, 8,
16 og 32 véla. Vörn er
afar stolt af frábæru
starfsfólki sem sjá
um uppsetningar og
tækni vinnu.“
Jón seg i r þessa
heildar pakka hafa nýst f yrir-
tækjum vel gegnum tíðina. „Til
að mynda stórum fyrirtækjum
sem eru með dreifð-
an rekstur úti um allt
land. Þá eru þau með
myndavélar á hverjum
stað og geta þannig
fylgst með þeim öllum
úr einni „móðurstöð“,“
bendir hann á.
Ýmis fylgibúnað-
ur býðst og nefnir Jón
snúningsvélar í því
samhengi. „Þær eru búnar still-
anlegum ljósabúnaði, geta snúið
hvert sem er og „súmað“ inn á hluti
í mikilli fjarlægð,“ útskýrir hann
og segir slíkar vélar hafa nýst vel í
matvælaiðnaðinum. „Þar hafa þær
verið notaðar til dæmis við gæða-
eftirlit í fiskvinnslum. Þannig geta
forsvarsmenn fyrirtækja komið
auga á mistök í ferlinu.“
Heimahús og sumarbústaðir
Jón segir Vörn bjóða svipaða pakka
fyrir heimahús. „Þetta eru kerfi
sem eru einföld í uppsetningu
þar sem velja má milli 4, 8 og 16
myndavéla. Vélarnar eru búnar
hreyfisk ynjara sem
geta sent sms-
skeyti eða tölvu-
póst til viðkomandi
vegna óæskilegrar
hreyfingar og send-
ir mms mynd af atburð-
inum en kerfið geymir upptökur í
einn og hálfan mánuð,“ lýsir hann.
Vörn er líka með sérsniðna
pakka fyrir sumarbústaði. „Þetta
er tveggja véla
pakki og lítil tölva
sem hægt er að tengj-
ast heiman frá sér.
Þær eru búnar hreyfi-
skynjara sem senda
tölvupóst og sms-skeyti
ef óæskileg hreyfing greinist
í grennd við bústaðinn,“ segir
Jón og hvetur sem flesta að kynna
sér betur Vörn. Upplýsingar megi
nálgast á heimasíðunni vorn.is.
Þær séu líka veittar í síma 561 5600
og 896 4630.
Fullkominn eftirlitsbúnaður
Vörn öryggiskerfi selur fullkomnar öryggismyndavélalausnir sem eru sérsniðnar að ólíkum þörfum hvers og eins. Fyrirtækið þjónustar íbúða- og
sumarbústaðaeigendur og fjölda fyrirtækja sem hafa nýtt sér vörur þess með góðum árangri.
Lítil yfirbygging og hagstæðir samningar hafa frá byrjun tryggt viðskiptavinum okkar hágæða vöru á sanngjörnu verði og hefur sú stefna borið góðan árangur þar sem nú eru yfir
500 fyrirtæki stór og smá í viðskiptum við Vörn,“ segir Jónas Hermannsson hjá Vörn. MYND/ANTON
vorn@vorn.is | www.vorn.is | Sími 562-6559