Fréttablaðið


Fréttablaðið - 19.03.2012, Qupperneq 18

Fréttablaðið - 19.03.2012, Qupperneq 18
KYNNING − AUGLÝSINGÖryggisþjónustur & kerfi MÁNUDAGUR 19. MARS 20122 VSI öryggishönnun & ráð-gjöf er verkfræðistofa sem býður upp á sérhæfða og óháða ráðgjöf um öryggismál í víðum skilningi, allt frá hönnun öryggisbúnaðar til uppfræðslu og námskeiða um hvers kyns örygg- ismál fyrir stjórnendur og starfs- fólk stofnana og fyrirtækja. Bruna- hönnun bygginga og vinnuvernd hefur einnig verið stór þáttur í þjónustu fyrirtækisins. VSI selur ekki öryggiskerfi eða önnur tæki heldur aðeins ráðgjöf og þekkingu. Starfsmenn VSI hafa áralanga reynslu af hönnun brunavarna og veita fyrirtækjum m.a. ráðgjöf um hvernig mæta megi kröfum yfir- valda um úrbætur í eldvarnamál- um. Ávallt er horft til þess að finna sem hagkvæmastar lausnir til að koma þeim málum í réttan farveg. VSI aðstoðar einnig fyrirtæki við að koma sér upp innri eftirlitskerfum brunavarna, bæta þær brunavarn- ir sem fjárfest hefur verið í og efla samskipti við brunavarnayfirvöld. En ótal þættir hafa áhrif á öryggi í nútímasamfélagi og hætturnar breytast með samfélagsgerðinni. Auk brunavarna veitir VSI m.a. ráðgjöf um innbrotavarnir, varn- ir gegn ógnandi hegðun, svikum, rýrnun hjá fyrirtækjum, starfs- mannaþjófnaði og svo mætti lengi telja. Fyrirtækið býður einnig upp á verkefnastjórnun og reglubundn- ar öryggisúttektir auk rekstrar- tæknilegra úttekta á öryggismálum fyrirtækja og stofnana. Einkunnar- orð VSI eru lýsandi fyrir áherslur og þjónustu fyrirtækisins en þau eru: vitund, varnir og viðbrögð. Vitund Jakob Kristjánsson, framkvæmda- stjóri VSI, segir almenna öryggis- vitund ákaflega mikilvæga. „Við leggjum mikla áherslu á að fólk sé meðvitað um hættur og veik- leika í öryggismálum fyrirtækja sinna. Vita þarf hvers konar að- stæður geti komið upp og hvað beri að forðast, hvort sem það snýr að eldvörnum, vinnuvernd eða öðru. Þetta er í raun nauðsynleg forsenda þess að öryggisbúnaður virki sem skyldi. Þá þarf að kunna vel á alla verkferla og einstaklingar verða að vera meðvitaðir um sitt hlut- verk og ábyrgð. Séu þættir í ólagi geta búnaðarkerfi skapað falska öryggiskennd.“ Varnir Hönnun öryggisbúnaðar er í öllum tilfellum sérsniðin að þörfum við- skiptavina. Hún tekur mið af eðli starfseminnar, húsnæði og ytra umhverfi. Skipulag starfsrýmis getur skipt sköpum í þessu efni. Stundum er þörf á því að endur- innrétta eldra húsnæði út frá ör- yggissjónarmiðum og þá ber að hafa hugfast að öryggishættur breytast í takt við samfélagsþróun. „Við greinum raunverulegar þarfir viðskiptavina okkar og hönnum heildstæðar lausnir út frá þeirri greiningu. Við metum hvers konar öryggisbúnaður eða þjón- usta eru viðeigandi í hverju tilfelli fyrir sig og hvernig best sé að hátta uppsetningu þeirra. Þjónustan er svo gjarnan boðin út til aðila sem sérhæfa sig í öryggisbúnaði eða vöktun. Okkar sérsvið er alhliða þekking á öryggismálum, greining og hönnun lausna og hjá VSI starf- ar vel menntað starfsfólk með mjög langa og mikla praktíska reynslu í öryggismálum,“ segir Jakob. Hann segir ennfremur að rétt greining og markviss útfærsla séu forsendur skilvirkni og hagkvæmni í öryggismálum. Þegar þetta tvennt fari saman megi fá yfirsýn yfir kostnað og hámarka öryggi á sem hagkvæmastan hátt. Viðbrögð Nauðsynlegt er að viðbrögð við að- steðjandi vá séu rétt. VSI hannar sérsniðnar viðbragðs- og rýming- aráætlanir fyrir ólíkar aðstæður og skipuleggur æfingar þar að lútandi. Fyrirtækið býður upp á fjölbreytt námskeið um öryggis- mál og rétt viðbrögð. „Þegar hættu- ástand skapast er fyrir öllu að geta brugðist hratt og umfram allt rétt við. Þetta helst raunverulega allt í hendur. Skilningur á mögu- legum hættum, forvarnir, þekking á verkferlum og öryggisbúnaði og loks hæfni til þess að bregðast við hættuástandi. Það er brýnt að nálg- ast öryggismál heildstætt, af festu og alvöru og forðast falskt öryggi,“ segir Jakob. Óháð öryggisráðgjöf í aldarfjórðung Víðtæka sérfræðiþekkingu á öryggismálum er að finna hjá verkfræðistofunni VSI. Jakob Kristjánsson, framkvæmdastjóri VSI, segir almenna öryggisvitund ákaflega mikilvæga. MYND/ANTON ÖRYGGISHERBERGI Æ fleiri láta nú innrétta á heimilum sínum sérstök öryggisherbergi sem innbrotsþjófar og aðrar boðflennur komast ekki inn í af ótta við að þeir kunni að vinna húsráðendum mein. Enda þykja slík herbergi fyrir löngu hafa sannað notagildi sitt. Danski teiknarinn Kurt Westergaard faldi sig þannig í öryggisherbergi þegar öfgasinnaður múslimi braust inn á heimili hans. Sá vildi drepa Westergaard með exi fyrir að hafa teiknað umdeilda mynd af spámann- inum Múhameð sem Jyllands-Posten birti árið 2005. Skömmu síðar kom lögreglan á staðinn, særði árásarmanninn og færði á bak við lás og slá. Westergaard slapp því með skrekkinn. Þegar óeirðir brutust út í Kaíró árið 2011 var árás gerð á ísraelska sendiráðið. Starfsmenn sendiráðsins leituðu hælis í öryggisherbergi þar sem stálhurð kom í veg fyrir að árásarmennirnir gætu unnið þeim mein. Egypskir hermenn björguðu fólkinu og fluttu það ásamt fjölskyldum þess frá Egyptalandi. Leikkonan Jodie Foster lék í kvikmyndinni Panic Room í leikstjórn Davids Fincher árið 2002. Þar fer Foster með hlutverk konu sem nær að forða sér og dóttur sinni undan innbrotsþjófum inn í öryggisherbergi af fullkomnustu gerð. Brunaúttektir Neyðarljós Brunakerfi Aðgangsstýringar Eftirlitsmyndavélar Vöruverndarhlið Innbrotakerfi Öryggisgæsla www.115.is • sími: 5 115 115

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.