Fréttablaðið - 19.03.2012, Page 48

Fréttablaðið - 19.03.2012, Page 48
19. mars 2012 MÁNUDAGUR20 sport@frettabladid.is ALFREÐ GÍSLASON og lærisveinar hans í Kiel voru fyrsta liðið til þess að tryggja sér sæti í átta liða úrslitum Meistaradeildarinnar í handbolta þegar liðið sló út pólska liðið Wisla Plock með 27-24 sigri í seinni leiknum í gær. Kiel vann fyrri leikinn 36-24. Tvö önnur Íslendingalið unnu fyrri leiki sína í 16 liða úrslitum í gær, AG Kaupmannahöfn vann 34-24 sigur á Sävehof og Füchse Berlin vann 32-30 heimasigur á HSV Hamburg. FÉLAGAR MEÐ PREMIUM ICELANDAIR AMERICAN EXPRESS® FRÁ KREDITKORTI GREIÐA EKKERT ÁRGJALD Í ICELANDAIR GOLFERS Golfsettið ferðast frítt! Þú nýtur þessara hlunninda: + Enska úrvalsdeildin: Wolves - Manchester United 0-5 0-1 Jonny Evans (21.), 0-2 Antonio Valencia (43.), 0-3 Danny Welbeck (45.+1), 0-4 Javier Hernández (56.), 0-5 Javier Hernández (61.) Newcastle - Norwich 1-0 1-0 Papiss Cissé (11.) Fulham - Swansea 0-3 0-1 Gylfi Þór Sigurðsson (36.), 0-2 Gylfi Þór Sigurðsson (66.), 0-3 Joe Allen (77.) Wigan - West Bromwich 1-1 1-0 James McArthur (54.), 1-1 Paul Scharner (65.) STAÐA EFSTU LIÐA: Man. United 29 22 4 3 73-27 70 Man. City 28 21 3 4 69-20 66 Tottenham 28 16 5 7 52-34 53 Arsenal 28 16 4 8 57-39 52 Chelsea 28 14 7 7 48-32 49 Newcastle 29 13 8 8 41-41 47 Liverpool 28 11 9 8 33-26 42 Swansea 29 10 9 10 34-34 39 Enski bikarinn - 8 liða úrslit: Chelsea - Leicester City 5-2 1-0 Cahill (12.), 2-0 Kalou (18.), 3-0 Torres (67.), 3-1 Beckford (77.), 4-1 Fernando Torres (85.), 4-2 Ben Marshall (88.), 5-2 Raúl Meireles (90.+1), Liverpool - Stoke 2-1 1-0 Luis Suárez (23.), 1-1 Peter Crouch (27.), 2-1 Stewart Downing (57.), Everton - Sunderland 1-1 0-1 Phillip Bardsley (12.) 1-1 Tim Cahill (23.) Tottenham - Bolton 1-1 (aflýst) FÓTBOLTAÚRSLIT FÓTBOLTI Gylfi Þór Sigurðsson virð- ist hafa verið síðasta púslið í hið stórskemmtilega og vel spilandi Swansea-lið sem er komið upp í áttunda sæti ensku úrvalsdeildar- innar eftir 3-0 útisigur á Fulham um helgina. Gylfi Þór átti þarna enn einn stórleikinn og skoraði tvö mörk í annað skiptið á tveimur vikum. „Ég hef skorað fimm mörk í átta byrjunarliðsleikjum í deild- inni sem er kannski meira en ég bjóst við fyrir fram. Ég nýt þess að spila með frábæru liði. Það er ekki erfitt að skora þegar þú færð svona þjónustu eins og ég fékk í þessum mörkum,“ sagði Gylfi lítillátur í viðtali á heimasíðu Swansea City. Fréttablaðið leitaði til Guðjóns Þórðarsonar, núverandi þjálfara Grindavíkur, til að fá hans skoð- un á því af hverju Gylfi passar svona vel inn í enska boltann. Það var einmitt Guðjón sem gaf Gylfa fyrsta alvöru tækifærið í enska boltanum þegar hann fékk hann á láni frá Reading í febrúar 2009. Gylfi var þá aðeins 19 ára gamall. „Hann sýndi strax af sér djörf- ung og dug hjá mér. Hann er ofboðslega vinnusamur, samvisku- samur og góður atvinnumaður,“ sagði Guðjón um Gylfa. „Það var vitað mál að þessi strákur væri að fara langt en þetta var bara spurning um hversu langt hann færi. Þegar ég var að reyna að segja mönnum hér heima á Íslandi hvað hæfi- leikar byggju í þessum strák þá vildu nú ekki allir hlusta. Menn sem voru að velja úrvalsliðin okkar á Íslandi töldu sig ekki hafa þörf fyrir hann,“ segir Guðjón en af hverju finnur Gylfi sig betur í enska boltanum en í þeim þýska? „Það er meiri ástríða í fótboltan- um í Englandi heldur en í Þýska- landi. Hann er búinn að vera lengi í Englandi og þekkir og skynjar andann,“ segir Guðjón. Guðjón segir Gylfa hafa alltaf verið tilbú- inn að leita leiða til að bæta sinn leik þegar hann var hjá Crewe. „Gylfi er fyrst og fremst ofboðs- lega vinnusamur. Hann tók alltaf með DVD-klippurnar og DVD af leikjunum og skoðaði þær. Hann hugsar um fótboltann daginn út og daginn inn, Hann var líka allt- af tilbúinn að spyrja til að leita leiða og lausna þótt hann væri bara pjakkur þegar ég tók við honum,“ rifjar Guðjón upp. En hvar skapar Gylfi sér sér- stöðu inni á vellinum að mati Guðjóns. „Það er þessi sýn sem hann hefur. Sýn hans á leikinn er breiðari og magnaðri en hjá mörg- um kollegum hans,“ segir Guðjón og hann spáir því að Gylfi fari til eitt af stóru liðunum á Englandi í sumar. „Ég á von á því að eitt af stóru liðunum á Bretlandi taki hann og gefi honum raunverulegt tæki- færi,“ segir Guðjón að lokum. Gylfi fékk mikið hrós í umfjöll- un enskra fjölmiðla um leik- inn og einn af þeim sem völdu hann mann leiksins var Patrick Barcklay blaðamaður á The Independent. „Sá renglulegi öðl- ast glæsileika þegar hann fær boltann og hann hefur alltaf nóg af hugmyndum og eldmóði í sínum leik. Nú er Sigurðsson líka farinn að skora mörk,“ skrifaði Barcklay í umfjöllun sinn. Það verður spennandi að fylgj- ast með Gylfa og Swansea-lið- inu á næstunni og einhverjir eru örugglega farnir að telja niður þar til liðið spilar næst sem er á móti Everton á laugardaginn kemur. ooj@frettabladid.is Fer í eitt af stóru liðunum Guðjón Þórðarson gaf Gylfa Þór Sigurðssyni fyrsta alvöru tækifærið í enska boltanum þegar hann var stjóri Crewe 2008-09 og sá strax hvað bjó í stráknum. Gylfi fór á kostum um helgina og skoraði tvisvar í 3-0 sigri Swansea á Fulham. SKALLAMARK Gylfi Þór Sigurðsson fagnar hér fyrra marki sínu. NORDICPHOTOS/GETTY FÓTBOLTI Fabrice Muamba, leik- maður Bolton, er enn í gjörgæslu á hjartadeild London Chest-spítal- ans eftir að hann hneig niður í lok fyrri hálfleiks í bikarleik Totten- ham og Bolton á White Hart Lane á laugardaginn. Sjúkraliðar reyndu að lífga Muamba við í sex mínútur á vell- inum. Muamba er áfram haldið sofandi en hann er enn í mikilli lífshættu. - óój Fabrice Muamba hneig niður: Enn í lífshættu MUAMBA Aðeins 23 ára. NORDICPHOTOS/GETTY FÓTBOLTI Fernando Torres skor- aði sitt fyrsta mark í 150 daga og í 1.541 mínútur þegar Chelsea tryggði sér sæti í undanúrslitum enska bikarsins í gær. Torres bætti við öðru marki 18 mínútum síðar og átti einnig tvær stoðsendingar í leiknum þegar Chelsea vann 5-2 sigur á Leicester City. Chelsea hefur þar með unnið þrjá fyrstu leiki sína undir stjórn Roberto Di Matteo. Það komu langþráð mörk í fleiri leikjum því bæði Luis Suá- rez og Stewart Downing skoruðu í 2-1 sigri Liverpool á Stoke. Það var dregið í undanúrslitin í gær og þar munu mætast Tottenham eða Bolton á móti Chelsea annars vegar og Liverpool á móti Sun- derland eða Everton hins vegar. - óój Fernando Torres hjá Chelsea: Langþráð mörk FERNANDO TORRES Skoraði sín fyrstu mörk síðan í október. NORDICPHOTOS/GETTY FÓTBOLTI Manchester United er komið með fjögurra stiga forskot á nágranna sína í Manchester City eftir 5-0 stórsigur á Úlfunum í gær. „Við erum að spila vel og erum að ná í stigin á mikilvægum tíma á leiktíðinni. Við erum að spila okkar besta bolta í allan vetur og þetta voru mikilvæg úrslit eftir vonbrigðin í vikunni,“ sagði Wayne Rooney eftir fimmta deildarsigur United í röð. -óój Enska úrvalsdeildin: United með 4 stiga forskot

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.