Fréttablaðið - 19.03.2012, Qupperneq 54
19. mars 2012 MÁNUDAGUR26
MORGUNMATURINN
LSR – sjóðfélagafundur
Akureyri
Í tilefni af nýlegri skýrslu um úttekt á fjárfestingarstefnu,
ákvarðanatöku og lagalegu umhverfi lífeyrissjóðanna í
aðdraganda bankahrunsins 2008 boðar stjórn LSR til
fundar með sjóðfélögum.
Skýrslu úttektarnefndar má nálgast
á heimasíðu sjóðsins www.lsr.is
Stjórn LSR
Fimmtudaginn 22. mars kl. 16:30
Lionssalur á 4. hæð
Skipagötu 14, Akureyri
Bankastræti 7 101 Reykjavík Sími: 510 6100 Fax: 510 6150 lsr@lsr.is www.lsr.is
„Ég var með risatónleika í Las Vegas,“ segir Geir
Ólafsson, sem söng með 25 manna hljómsveit vinar
síns, Dons Randi, í borginni í síðasta mánuði.
Þrjú hundruð manns voru á tónleikunum sem
voru haldnir á Fairmont-hóteli í Vegas. Ýmsir fræg-
ir voru í salnum, þar á meðal dóttir söngvarans
Deans Martin og Robert Davi. Hann hefur leikið
óþokka í hinum ýmsu kvikmyndum, þar á meðal í
Bond-myndinni Licence to Kill.
„Þetta var gríðarlegur heiður og frábært að upp-
lifa þessa stemningu,“ segir Geir og stefnir á að
stíga aftur á svið í Vegas síðar meir.
Geir söng einnig á skemmtistaðnum Baked Potato
í Hollywood, sem er í eigu Randi, eins og hann hefur
áður gert. Þar deildi hann sviði með Brandon Fields
sem er kunnur saxófónleikari í Bandaríkjunum.
Gunnar Sigurðsson tók upp báða tónleika Geirs og
ætlar að búa til heimildarmynd um ævintýrið. „Það
var mjög gaman að vinna með honum. Hann er mik-
ill fagmaður,“ segir Geir um Gunnar. Hann hefur
áður gert heimildarmyndina Maybe I Should Have.
-fb
SÖNG Í VEGAS Geir Ólafsson söng
í fyrsta sinn í Las Vegas í síðasta
mánuði. Þar hitti hann leikarann
Robert Davi.
Söng í fyrsta sinn í Las Vegas
Leikstjórinn Ágúst Guðmundsson hefur fengið vilyrði
um framleiðslustyrk fyrir hátt í sjötíu milljónir króna
fyrir kvikmyndina Ófeigur gengur aftur.
„Þetta er skilyrt því að það takist að klára fjármögnun
á verkinu. Ég er að bíða eftir niðurstöðu frá erlendum
sjóði,“ segir Ágúst. Hann getur því ekki sagt til um hvort
tökur á myndinni geta hafist á þessu ári eða ekki.
„Þetta er frekar gamansöm mynd um fólk í miðbæ
Reykjavíkur sem býr við draugagang í húsinu sínu. Tvær
af persónunum eru framliðnar,“ bætir hann við um Ófeig
gengur aftur.
Átta ár eru liðin frá síðustu mynd Ágústs, Stuðmanna-
myndinni Í takt við tímann. Þar áður sendi hann frá sér
Mávahlátur. Leikstjórinn er með fleiri verkefni í bígerð.
„Ég er líka að vinna að mynd sem verður tekin á Græn-
landi vonandi á næsta ári,“ segir hann. Sú mynd gerist í
seinni heimsstyrjöldinni en hefur enn ekki fengið nafn.
- fb
Gamansöm draugamynd í bígerð
Ásgeir Börkur Ásgeirsson, fót-
boltamaður hjá Fylki, hefur geng-
ið í raðir rokksveitarinnar Mercy
Buckets eftir tveggja ára hlé frá
tónlist. Hann var áður söngvari
þungarokksveitarinnar Shogun
en sagði skilið við sveitina árið
2010 til að geta betur einbeitt sér
að fótboltaferlinum.
„Þungarokk er góð útrás og ég
hef alltaf þarfnast mikillar útrás-
ar. Mér fannst erfitt að hafa ekki
rokkið, ég fúnkeraði einfaldlega
ekki nógu vel og þess vegna ákvað
ég að byrja aftur í tónlistinni,“
útskýrir Ásgeir Börkur, en Mercy
Buckets tók nýverið þátt í hljóm-
sveitakeppninni Global Battle of
The Bands.
Aðspurður segir Ásgeir Börkur
að hljómsveitaræfingarnar bitni
ekki á fótboltanum heldur hafi
þvert á móti góð áhrif á frammi-
stöðu hans á vellinum. „Ef maður
fer yfir spjaldasögu mína þá voru
spjöldin nokkuð mörg sumarið
2010 þegar ég var hættur í Shog-
un. Þannig að þetta helst alveg í
hendur. Ég held það sé ekki spurn-
ing að spjöldin verða færri núna í
sumar fyrst ég er kominn aftur í
rokkið, svo er maður líka alltaf að
þroskast.“
Ásgeir Börkur framlengdi
nýverið samning sinn við Fylki
og mun leika með liðinu næstu
tvö árin. Hann viðurkennir þó
að drauminn sé að komast út í
atvinnumennsku. „Það hefur
verið draumurinn frá því að
maður var lítill strákur og ef það
gerist þá yrði ég að segja skil-
ið við hljómsveitina. Nema þeir
komi bara með mér út?“
Að sögn Ásgeirs Barkar æfa
meðlimir Mercy Buckets ekki
sérstaklega stíft og hafa fram að
þessu einungis spilað á tvennum
tónleikum; afmælistónleikum á
Bar 11 og í Global Battle of The
Bands.
„Við erum heldur rólegir og
æfum sjaldan, við erum meira í
því að hafa gaman af þessu. En
ætli við reynum ekki að æfa gott
prógramm fyrir sumarið þannig
að við séum þéttir og góðir svo
við getum spilað á tónleikum ef
okkur býðst til þess.“
sara@frettabladid.is
ÁSGEIR BÖRKUR ÁSGEIRSSON: ÞUNGAROKKIÐ ER GÓÐ ÚTRÁS
Ásgeir snýr aftur í tónlist
til að fækka spjöldunum
ÚTRÁS Í ROKKINU Fótboltamaðurinn Ásgeir Börkur Ásgeirsson fær útrás í rokkinu sem hefur jákvæð áhrif á frammistöðu hans á
vellinum. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
MYNDARLEGUR STYRKUR
Ágúst hefur fengið vilyrði
fyrir myndarlegum fram-
leiðslustyrk fyrir myndina
Ófeigur gengur aftur.
„Ég er lélegastur á heimilinu
í að fá mér morgunmat, en ef
ég geri það þá fæ ég mér oftast
hafragraut.“
Björn Árnason, ljósmyndari.
Heimir & Kolla
vakna með þér í bítið
Fréttir, fróðleikur og frábær tónlist
alla virka morgna kl. 6.50 – 9.00