Fréttablaðið - 03.04.2012, Blaðsíða 28

Fréttablaðið - 03.04.2012, Blaðsíða 28
FÓLK|HEILSA Mind Xtra 1990 • 2990 • 3990 Einnig stelpufatnaður fyrir 4-12 ára. Erum við hliðina á Herra Hafnarfirði á 2. hæð. 3 VERÐ LÉTT PITSA FÓLK ER KYNNINGARBLAÐ sem býður auglýs- endum að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og umfjallana ásamt hefðbundnum auglýsingum. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega. Útgefandi: 365 miðlar | Ábyrgðarmaður: Jón Laufdal Sölumenn: Jónína María Hafsteinsdóttir, jmh@365.is s 512 5473 Sverrir Birgir Sverrisson, sverrirbs@365.is s 512 5432 Hönnun: Silja Ástþórsdóttir Italiano Pizzeria hefur nú fyrst íslenskra pitsuveitingahúsa reiknað út hitaeiningafjölda allra rétta á matseðli sínum. Pitsur hafa oft að ósekju á sér neikvæðan stimpil sem hitaeiningaríkur skyndibiti. Því fengu hjónin og eigendur Italiano Pizzeria, þau Högni Jökull Gunnarsson og Marta Halldórsdóttir, næringarfræðinginn Ragnheiði Ástu Guðnadóttur til að reikna út fjölda hitaeininga í pitsum og öðrum réttum veitingahússins. Með þær upplýsingar að leiðarljósi geta viðskiptavinir sjálfir stjórnað hversu hitaeiningarík pitsan þeirra er, en á Italiano er að finna lista yfir hitaeiningafjölda réttanna, sem og á www.italiano.is. Á hitaeiningalistanum kemur einnig fram dagleg orkuþörf og því auðvelt fyrir hvern og einn að sjá hvað honum hentar best. Italiano Pizzeria er í Hlíðasmára 15 í Kópavogi. www.italiano.is. Góð framkoma fullorðinna lifir með börnum ævina út. Ég bið stund-um fullorðið fólk að hugsa til bernsku sinnar og hvort það muni eftir fullorðinni manneskju sem kom sérstak- lega vel fram við það, og flestum er það í fersku minni, rétt eins og manneskjur sem komu illa fram við það,“ upplýsir Aðalbjörg Stefanía Helgadóttir, hjúkrun- arfræðingur á Barnaspítala Hringsins. Í lok mars kom út bæklingur með sex samskiptaboðorðum sem Aðal- björg hefur þróað. Boðorðin eru í senn aðgengileg og auðskiljanleg, og ætlað að efla þekkingu fullorðinna á eðli upp- byggjandi og nærandi samskipta við börn. „Samskiptaboðorðin urðu til þegar ég bjó til forvarnaverk um uppbyggjandi samskipti fyrir skólaliða í Langholts- skóla, en hvergi var til aðgengilegt eða þægilegt efni til fræðslu þess efnis. Markmið mitt var því að ná utan um kjarnann í uppbyggjandi samskiptum á einfaldan hátt,“ útskýrir Aðalbjörg. Samskiptaboðorðin byrja öll á bók- stafnum H og eru: horfa, heilsa, hlusta, hljóma, hrósa og hjálpa. En hvert þeirra telur Aðalbjörg mikilvægast að fullorðn- ir tileinki sér í samskiptum við börn? „Boðorðin mynda saman heild og eru því öll jafnmikilvæg. Þó tel ég hlustun með öllum skilningarvitum einna mikilvægasta því beiti fullorðnir virkri hlustun á börn kemur hitt í framhaldinu og þeir geta hjálpað barninu og hrósað því,“ segir Aðalbjörg og útskýrir betur virka hlustun. „Með virkri hlustun reynum við að ná því sem börnin eru að segja okkur, því þau segja oft ekki hvað þau meina. Við þurfum því að kenna börnum að meina það sem þau segja, og gera það sem við segjum, því börn taka mjög vel eftir því.“ Samskiptaboðorðunum verður dreift á Barnaspítala Hringsins, í heilsugæslu- stöðvar og í skóla, en einnig má nálgast þau hjá Aðalheiði í gegnum tölvupóst- inn addahelga@gmail.com. ■ thordis@365.is ÞAÐ LÆRA BÖRNIN SEM FYRIR ÞEIM ER HAFT MANNVIRÐING Kanntu að umgangast börn af virðingu, einlægni, hluttekn- ingu, umhyggju og í trúnaði? Samskiptaboðorðin sex gefa þér gott veganesti. BARNAGÆLA Aðalbjörg starfar sem hjúkrunarfræðingur á vökudeild Barnaspítala Hringsins og er sjálf fimm barna móðir. Hún segir Samskiptaboð- orðin eiga erindi við alla fullorðna sem eru í sam- skiptum við börn. MYND/GVA GILDI SAMSKIPTABOÐORÐANNA • Virðing – að mæta hverjum einstaklingi af auðmýkt, því einstaklingur sem sýnir öðrum virðingu nýtur sjálfur virðingar. • Einlægni – að vera heiðarlegur, hreinskiptinn og ótvíræður. • Hluttekning – að auðsýna samhygð og setja sig í spor annarra af tillitssemi og nærgætni. • Umhyggja – að koma fram við hvern einstakling af heiðarlegri umhyggju. • Trúnaður – að sýna trúnað og vera sannarlega traustsins verður. Við erum á Facebook LAGERTILTEKT Í FLASH SKOKKAR – KJÓLAR afsláttur af völdum vörum 50% frá 2.000 kr. 20% afsláttur af öðrum vörum
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.