Fréttablaðið - 03.04.2012, Blaðsíða 12

Fréttablaðið - 03.04.2012, Blaðsíða 12
3. apríl 2012 ÞRIÐJUDAGUR12 Guðsteinn Bjarnason gudsteinn@frettabladid.is FRÉTTASKÝRING: Falklandseyjar þrjátíu árum síðar Þess var minnst bæði í Argentínu og á Bretlandi í gær að þrjátíu ár eru liðin frá því Falklandseyja- stríðið hófst. Stríðsátökin stóðu í 74 daga og kostuðu 907 manns lífið. Vaxandi spenna er á milli ríkjanna vegna olíuleitar fimm breskra fyrirtækja við Falklandseyjar. Spenna hefur farið vaxandi milli Argentínu og Bretlands undan- farna daga vegna áforma breskra olíuleitarfyrirtækja sem eru að kanna möguleikann á olíuvinnslu út af Falklandseyjum. Þrjátíu ár eru liðin frá Falk- landseyjastríðinu, sem hófst 2. apríl árið 1982 og lauk 74 dögum síðar með sigri Breta. Átökin kost- uðu 907 manns lífið, þar af 649 argentínska hermenn, 255 breska hermenn og þrjá íbúa eyjanna. Argentínubúar hafa allar götur síðan á 19. öld gert tilkall til eyjanna, sem þeir nefna reynd- ar Malvínaseyjar en ekki Falk- landseyjar. Sú afstaða hefur ekki breyst, þótt ólíklegt sé að Argent- ínumenn muni leggja út í hernað á ný í von um að ná loks yfirráðum á eyjunum. Viðskiptastríð Argentínustjórn hefur hins vegar hótað lögsókn á hendur nokkrum bönkum, sem hyggjast fjármagna olíuleit fimm breskra fyrirtækja á landgrunninu við Falklandseyjar. Þótt Argentínumenn hafi látið sér lynda að Bretar ráði á Falk- landseyjum, þá eru of miklir hagsmunir fólgnir í olíuvinnslu á svæðinu til þess að hún verði látin afskiptalaus með öllu. Argentínumenn saka Breta um að brjóta gegn alþjóðasátt- málum með því að vera með her- afla á Falklandseyjum. Einnig hafa Argentínumenn reynt að torvelda samgöngur og viðskipti Falklandseyjabúa við umheiminn, meðal annars með því að banna bæði skipasiglingar og flugferðir milli eyjanna og Argentínu. Galtieri herforingi Það var argentínski herforinginn Leopoldo Galtieri, leiðtogi þáver- andi herforingjastjórnar í Arg- entínu, sem tók ákvörðun um að senda herlið sitt til Falklandseyja í byrjun apríl árið 1982. Hann sagði af sér þann 17. júní sama ár, þegar ljóst var að stríðið við Breta var tapað eftir að átökin höfðu kostað hundruð manna lífið. Íbúar eyjanna vildu hins vegar ekki segja skilið við Bretland og Margaret Thatcher, þáverandi forsætisráðherra Bretlands, sem hikaði ekki við að senda öflugt breskt herlið til að berjast við Argentínumenn. Herforingjastjórnin Herforingjastjórninni í Argentínu hefur jafnan verið kennt um að hafa látið sverfa til stáls, en íbúar Falklandseyja virðast sannfærð- ir um að almenningur í Argentínu geti ekki hugsað sér að missa til- kallið til eyjanna. Christina Fernandez, forseti Argentínu, hefur nú birt opinber- lega skýrslu um öll þau mistök sem herforingjastjórnin gerði í Falklandseyjastríðinu. Skýrsl- una átti ekki að birta fyrr en eftir fimmtíu ár, en Fernandez leggur mikla áherslu á að draga fram í dagsljósið þann þátt sem herfor- ingjastjórnin átti í stríðinu. Arg- entínskum almenningi megi ekki kenna um það, hvað þá núverandi stjórnvöldum sem segja fráleitt að þau ætli að fara út í hernaðarátök á ný, þrátt fyrir lítt dulbúnar hót- anir um viðskiptastríð vegna olíu- áforma. Hávaði Bresku fyrirtækin, sem stunda nú olíuleit við Falklandseyjar, gefa hins vegar lítið fyrir hótanir Arg- entínu um viðskiptastríð. „Þetta er eins og að gelta að tunglinu,“ hefur AP-fréttastofan eftir John Foster, framkvæmda- stjóra breska fyrirtækisins Falk- land Islands Holding, sem á hlut í einu fyrirtækjanna sem stundar olíuleit við Falklandseyjar. „Tilkallið er hvorki viðurkennt af íbúum Bretlands né íbúum Falklandseyja. Fjárfestar átta sig á að Argentína er með hávaða, en þetta er bara hávaði.“ Spenna vegna olíuvinnslu Stjórnvöld í Argentínu hafa hótað breskum og bandarískum bönkum lögsókn í von um að koma í veg fyrir að þeir útvegi fé til fimm breskra olíuleitarfyrirtækja sem eru að kanna landgrunnið í kringum Falklandseyjar. Argentína Síle Svæði til olíuleitar 200 km Punta Arenas Rio Gallegos Svæði sem til- heyrir Bretlandi Norður- Falklandseyja- djúpið Falklandseyjar (Malvínaseyjar) SUÐUR- ATLANTS- HAFIÐ Suður- og Austur- Falklands- eyjadjúpið Horn- höfði © GRAPHIC NEWSHeimildir: Oil company reports, Sunday Telegraph Háaleitisbraut 66, 1O3 Reykjavík, Sími 528 44OO Einnig er hægt að hringja í söfnunar- símann 9O7 2OO2, gefa framlag á framlag.is, gjofsemgefur.is eða á söfnunarreikning O334-26-886, kt. 45O67O-O499. Valgreiðsla hefur verið send í heimabanka þinn. Með því að greiða hana styður þú innanlandsaðstoð Hjálparstarfs kirkjunnar og hjálpar til sjálfshjálpar. Hjálpum heima PI PA R\ TB W A • S ÍA • 12 07 4 4 Hjálparstarf kirkjunnar veitir fjölbreytta aðstoð á Íslandi. Við hjálpum til sjálfshjálpar. Argentínumenn ítreka tilkall til Falklandseyja MINNISMERKI Í BRETLANDI Eiginkona eins hinna föllnu bresku hermanna við nafn hans á minnismerki í Staffordshire, þar sem skráð eru nöfn allra þeirra 255 Breta sem létu lífið í átökunum árið 1982. NORDICPHOTOS/AFP MINNISMERKI Í ARGENTÍNU Stúlka skoðar nöfn hinna föllnu á minnismerki í Ushuaia í Argentínu, þar sem skráð eru nöfn allra þeirra 649 argentínsku hermanna sem létu lífið. NORDICPHOTOS/AFP 1982 2. apríl Innrás argentínska hersins hefst að skipun Leopoldo Galtieris, leiðtoga herforingjastjórnarinnar í Argentínu. 3. apríl Argentínuher hertekur eyjuna Suður-Georgíu, sem er um 1.400 kílómetra austur af Falklandseyjum. 5. apríl Breski herinn sendir 65 herskip og 15.000 hermenn af stað frá Bret- landi til Falklandseyja. 12. apríl Bretar lýsa yfir 200 sjómílna bannsvæði í kringum Falklandseyjar. 22. apríl Bresk herskip koma að Falklandseyjum. 25. apríl Lítil bresk hersveit nær Suður-Georgíu á sitt vald. 26. apríl Ronald Reagan Bandaríkjaforseti lýsir yfir stuðningi við Breta. Stríðið stóð í 74 daga 1. maí Breskar sprengjuþotur varpa sprengjum á flugvöllinn á Falklands- eyjum. 3. maí Umdeildasti atburður stríðsins: Breski kafbáturinn HMS Conqueror skýtur tundurskeytum á argentínska beitiskipið General Belgrano, 30 sjómílur fyrir utan stríðssvæðið. Árásin kostar 323 Argentínumenn lífið. Bretar bera við sjálfsvörn. 4. maí Argentínumenn skjóta flugskeyti á breska tundurspillinn HMS Sheffield og sökkva honum. 22 Bretar láta lífið. 14. maí Bretar gera árásir á Falklandseyjar og eyðileggja 11 herflugvélar frá Argentínu. 20. maí Friðarviðræður fara út um þúfur. 21. maí Breskir hermenn ná landi á Falklandseyjum. Argentínumenn sökkva bresku freigátunni HMS Ardent. 23. maí Sprengjuárás á breska herskipið HMS Antelope. Bretar eyðileggja 22 argentínskar herþotur á þremur dögum. 25. maí Argentínumenn sökkva bresku herskipunum HMS Coventry og MV Atlantic Conveyor. 28. maí Bretar ná bænum Goose Green á sitt vald. Átökin kosta 150 argentínska hermenn og 18 breska hermenn lífið. 8. júní Um 200 breskir hermenn féllu eða særðust þegar sprengjuárásir voru gerðar á birgðaskipin Sir Galahad og Sir Tristram. 11.-13. júní Breskir hermenn ná fjöllunum Longdon og Tumbledown á sitt vald eftir bardaga í návígi. 14. júní Argentínska setuliðið í Port Stanley gefst upp. 17. júní Galtieri segir af sér. 20. júní Stríðsátökum lýkur formlega. manns féllu í stríði Breta og Argentínu- manna um Falklandseyjar árið 1982. 907
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.