Fréttablaðið - 03.04.2012, Blaðsíða 54

Fréttablaðið - 03.04.2012, Blaðsíða 54
3. apríl 2012 ÞRIÐJUDAGUR50 LÖGIN VIÐ VINNUNA „Ég hlusta á mjög fjölbreytta tónlist. David Bowie er mér iðulega innan handar og það eru The Stranglers líka. Annars hlusta ég á allt milli djass og þungarokks.“ Svanur Már Snorrason, blaðamaður og rithöfundur. Vefur bandarísku útvarpsstöðvarinnar KEXP fer fögrum orðum um tónleika Of Monsters and Men í heimaborg stöðvarinn- ar, Seattle, á dögunum. Útvarpsstöðin sá íslensku sveitina fyrst á Iceland Airwaves-hátíðinni 2010 og var fyrst til að spila tónlistina hennar í banda- rísku útvarpi. „Það er eitthvað vingjarn- legt við Of Monsters and Men sem höfðar til svo margra. Hamingjan lekur af tónlistinni þeirra, sama hvort þau syngja um óendur- goldna ást eða verur í skóginum,“ skrifaði blaðamaðurinn, sem var sérlega hrifinn af lögunum Dirty Paws, Lakehose og From Finner. Hann bætti við að þrátt fyrir að hljómsveitin væri undir greinilegum áhrif- um frá Arcade Fire og Edward Sharpe and the Magnetic Zeros hefði Of Monsters and Men náð að þróa sinn eigin hljóm. Uppselt var á tónleikana sem um 1.800 manns sáu á staðnum Showbox SoDo. Lay Low hitaði upp og fékk hún einnig góða dóma hjá KEXP, sem sagði hana hafa verið sjálfsörugga og að áhorfendurnir hafi kunn- að vel að meta hana. Of Monsters and Men og Lay Low spila á austurströnd Bandaríkjanna næstu tvær vikurnar og verða tónleikar sveitarinnar í New York sýndir í beinni útsendingu á You- tube á fimmtudaginn. Fyrsta plata Of Mon- sters and Men á Bandaríkjamarkaði, My Head Is An Animal, kemur út í dag og verð- ur fróðlegt að fylgjast með viðbrögðunum við henni. - fb Vel heppnaðir tónleikar í Seattle GÓÐIR DÓMAR Of Monsters and Men á tónlistarhátíð- inni South By Southwest í Texas. Tónleikar sveitarinnar í Seattle fá góða dóma hjá KEXP. NORDICPHOTOS/GETTY Vefsíðan Stylepark.com fjallar um vöruhönnuðinn Sigríði Heim- isdóttur í grein sinni um norræna, kvenkyns vöruhönnuði. Greinar- höfundurinn Anneke Bokern segir áberandi hversu margar norrænar konur hafa náð langt í greininni. Í greininni kemur fram að kven- kyns vöruhönnuðir búi við betri tækifæri á Norðurlöndunum en víða annars staðar og því hafi margar náð að skapa sér nafn í starfsgrein sem er að miklu leyti karlastétt. Sigríður rifjar meðal annars upp atvik frá námsárum sínum á Ítalíu þegar kennari efað- ist um getu hennar vegna kyns. „Fyrir lokaverkefni okkar ákvað ég og fimm bekkjarsystur mínar að hanna saman hjól. Prófessor- inn spurði okkur þá vingjarnlega hvort við treystum okkur í slíkt verkefni þar sem við værum allar stelpur,“ segir Sigríður í greininni og bætir við að þetta hefði ekki átt sér stað í hennar föðurlandi, Íslandi. „Á Norðurlöndunum er stúlkum og strákum kennt að vel- gengni hefur ekkert með kyn að gera, ekki heldur í hönnunargeir- anum.“ Blaðamaður Stylepark.com fjallar einnig um sænska hönn- uðinn Monicu Förster og Danann Cecilie Manz og norsku hönnuðina Silju Søfting og Evu Marit Tøftum. Stylepark er virtur miðill sem fjallar um arkitektúr og hönnun en sinnir einnig öðrum störfum líkt og ráðgjöf og sýningastjórnun og var sett á laggirnar í Frankfurt árið 2000. - sm Sigga Heimis í hópi þeirra bestu VEKUR ATHYGLI Fjallað er um Sigríði Heimisdóttur í grein á vefsíðunni Style- park.com. Greinin fjallar um norræna, kvenkyns hönnuði. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK Bæjarlind 6, Kópavogi, sími 517 6067. Opið mán. - fös. 10 -18, laug. 11-16. Glæsilegt í baðherbergið 3.990,- 2.290,- 2.890,- 1.490,- 1.490,- 1.890,- 1.690,- 2.990,- 2.890,- 690,- Fyrsta plata hljómsveitarinnar Legend kemur í verslanir á morg- un. Hún nefnist Fearless og inni- heldur tíu lög, þar á meðal Sisters sem hefur verið spilað töluvert í útvarpinu. Legend er skipuð Krumma Björgvinssyni og Halldóri Á. Björnssyni sem hafa áður starf- að saman í hljómsveitinni Esju en þeir hafa verið vinir frá 1999. Tíu árum síðar varð Legend til og heitir sveitin í höfuðið á sam- nefndri ævintýramynd Ridley Scott frá árinu 1985 sem fjallar um baráttuna á milli ljóss og myrkurs. „Við erum rosalega spenntir. Þessi plata er búin að vera heilt ár í bígerð og það er gaman þegar maður fær ein- takið loksins í hendurnar,“ segir Krummi en platan var tekin upp í Stúdíó Neptúnus og annaðist vinur þeirra Hazar hljómjöfnun. Tónlistina sem Legend spilar má flokka sem drungalegt nor- rænt rafpopp í anda Depeche Mode og sænsku hljómsveit- arinnar The Knife. „Ég hlusta mjög mikið á raf-iðnaðarrokk með goth-i í. Ég er mikið fyrir alla tónlist en er sérstaklega hrif- inn af þessari tónlistarstefnu.“ Spurður nánar út í hvað sé svona gott við hana bætir Krummi við: „Það eru þessi vélarhljóð sem við heyrum í kringum okkur þegar við löbbum út úr húsi og þessi framtíðarsýn. Það er líka viss sál, finnst mér, í þessari tónlist sem er á vissan hátt ósýnileg. Það eru margt í henni sem heillar mig.“ Fearless kemur út samtímis á geisladiski og vínylplötu í vönd- uðum umbúðum. „Við lögðum mikið í að hafa flottar umbúðir og gera rosalega flottan pakka. Við viljum endilega að fólk fari út í búð og kaupi sér eintak í áreið- anlegu formi.“ Útgáfuteiti vegna plötunnar verður haldið á skemmtistaðn- um Boston annað kvöld kl. 20 þar sem hún verður fáanleg á góðu verði. Næstu tónleikar Legend verða á tónlistarhátíðinni Aldrei fór ég suður um páskana og í maí verða svo útgáfutónleikar í Reykjavík. freyr@frettabladid.is KRUMMI BJÖRGVINSSON: MARGT Í TÓNLISTINNI SEM HEILLAR MIG Vélarhljóð og ósýnileg sál á nýrri plötu frá Legend LEGEND Krummi Björgvinsson og Halldór Á. Björnsson ásamt trommuleikaranum Frosta Jóni Runólfssyni sem spilar með þeim á tónleikunum. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Fatahönnuðurinn Guðmundur Jör- undsson sýndi nýja fatalínu fyrir Kormák & Skjöld á RFF um helgina sem leið. Myndir frá sýningunni birtust á tískuvefsíðunni Nowfas- hion.com og í gær var sýning Kor- máks & Skjaldar í þriðja sæti yfir vinsælustu tískusýningarnar og sló þar við tískuhúsum á borð við Alex- ander McQueen, Victoriu Beckham og Dior. Að sögn Guðmundar gekk sýning- in vonum framar og er hann ánægð- ur með athyglina sem hún hefur vakið. „Þetta gekk allt samkvæmt áætlun enda er ég að vinna með miklu fagfólki sem stóð allt við sitt og rúmlega það. Það er líka gaman hvað sýningin hefur vakið mikla athygli og frábært að vera vinsælli en McQueen og Victoria Beckham.“ Nowfashion.com birtir fyrst tískuvefrita myndir frá sýningum á rauntíma og starfar náið með þýska Vogue, Grazia og Showstudio. Guðmundur notaði ekki vanar fyrirsætur á sýningunni heldur fékk vini, kunningja og menn sem honum þótti vera með réttu útgeisl- unina til að sýna flíkurnar. „Flesta þekki ég vel eða kannast eitthvað við. Einn greip ég á meðan hann sat í stólnum hjá hárgreiðslumann- inum Stjúra og svo kom einn með flugi frá Seyðisfirði.“ Aðspurður segist Guðmund- ur hafa haft í nægu að snúast um helgina og átti meðal annars nokkra fundi með erlendum gestum hátíð- arinnar. „Það er ýmislegt í pípunum eftir RFF og við erum núna á fullu að undirbúa framhaldið, skipu- leggja framleiðsluna og senda út prótótýpur. Það er ýmislegt sem þarf að ganga frá og klára og svo þarf ég að byrja á sumarlínunni sem fyrst. Ég fór í fermingarveislu úti á landi á sunnudaginn og var svo þreyttur eftir helgina að ég sofnaði í henni,“ segir Guðmundur í gaman- sömum tón en viðurkennir að það sé gott að hann hafi nóg að vinna og gera. „Ég er mjög sáttur við þetta allt saman.“ - sm Vinsælli en McQueen og Dior VINSÆLL Tískusýning Guðmundar Jörundssonar er vinsælli en sýning Alexanders McQueen og Victoriu Beckham á vefsíðunni Nowfashion.com. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.