Fréttablaðið - 14.05.2012, Side 16

Fréttablaðið - 14.05.2012, Side 16
14. maí 2012 MÁNUDAGUR16 timamot@frettabladid.is Merkisatburðir 1919 Átta klukkustunda vinnudagur lögfestur í Danmörku. 1922 Fimm skip fórust og með þeim 44 sjómenn í norðan ofsa- veðri, sem gekk yfir norðan- og austanvert landið. 1948 David Ben-Gurion, forsætisráðherra lýsti yfir stofnun Ísraels ríkis. 1955 Varsjárbandalagið var stofnað í Varsjá í Póllandi. Stofn- ríki voru Sovétríkin, Pólland, Austur-Þýskaland, Tékkó- slóvakía, Ungverjaland, Rúmenía, Búlgaría og Albanía. Til- gangur þess var að vera mótvægi við Atlantshafsbanda- lagið (NATO). 1959 Pétur Ottesen, sem verið hafði þingmaður lengur en nokkur annar, eða í 43 ár, hætti þingmennsku. 1965 Fokker Friendship-flugvél Flugfélags Íslands, sú fyrsta sinnar tegundar, kom til landsins, en slíkar vélar voru síðan notaðar í innanlandsflugi í áratugi. 69 Loðvík 14. (5. september 1638 – 1. september 1715) var konungur Frakklands og Navarra frá 14. maí 1643 þar til hann lést, eða frá fjögurra ára aldri þar til hann var nærri sjötíu og sjö ára gamall. Hann ríkti því í sjötíu og tvö ár og 110 daga, lengur en nokkur annar franskur konungur eða nokkur annar af helstu einvöldum Evrópu. Hann tók þó ekki persónulega við valdataumunum fyrr en Mazarins kardináli lést árið 1661 en hann hélt um stjórnartaumana fyrstu 23 árin. Loðvík 14. var þekktur sem „sólkonungurinn“ (Le Roi Soleil), „Loðvík hinn mikli“ (Louis le Grand) eða sem „hinn mikli einvaldur“ (Le Grand Monarque). Hann er einnig þekktur fyrir að eiga að hafa sagt „Ríkið, það er ég“ („L‘État, c‘est moi“) en þó er það ekki staðfest með heimildum heldur frekar til merkis um alræði stjórnunarhátta hans og ríkulegt sjálfsálit. Í valdatíð hans voru Frakkar leiðandi þjóð í Evrópu. Er hann lést tók barna- barnabarn hans við krúnunni en Loðvík 14 lifði son sinn og sonarson. ÞETTA GERÐIST: 14. MAÍ 1643 Loðvík 14 verður konungur Frakklands ÓLAFUR RAGNAR GRÍMSSON forseti Íslands er 69 ára í dag. „Ég hef aldrei litið á forsetaembættið sem hefðarembætti heldur fyrst og fremst lýðræðislega þjónustu við fólkið í landinu.“ Í viðtali við Fréttablaðið 5. mars 2012. Fjórða íslenska söguþingið verður haldið í húsa kynnum Háskóla Íslands dagana 7. til 10. júní næstkomandi. Þingið þjónar sem vettvangur fyrir kynningu á niður- stöðum nýjustu rannsókna í íslenskri sagnfræði, veitir yfirlit yfir stöðu þeirra nú og þar er rætt um hvert stefnir í rannsóknum á sviðinu. Á þinginu verða í boði á þriðja tug málstofa um hin ýmsu efni með yfir níutíu fyrirlestrum. Sagnfræðistofn- un Háskóla Íslands hefur boðið þremur heimsþekktum sagnfræðingum til þingsins, þeim Lindu Colley, pró- fessor við Princeton-háskóla, David Cannadine, pró- fessor við Princeton-háskóla og Geoff Eley, prófessor við háskólann í Michigan í Banda ríkjunum. Linda Col- ley mun flytja Jóns Sigurðs sonar-fyrirlesturinn þetta árið. Þar að auki munu tveir erlendir fyrirlesarar tala á opinni málstofu um Evrópumál, sem styrkt er af Evr- ópustofu. Þetta eru þau Anne Katherine Isaacs, prófess- or við háskólann í Písa, og Anne Deighton, prófessor við háskólann í Oxford. Að síðustu mun Karl-Erik Frand- sen, lektor við Kaupmannahafnarháskóla, tala í mál- stofu um sjúkdómafaraldra á fyrri tíð. Hægt er að skrá sig á heimasíðu þingsins, www.aka- demia.is/soguthing. Söguþing í júní SÖGUÞINGIÐ Þjónar meðal annars sem vettvangur fyrir kynningu á nýjustu rannsóknum í íslenskri sagnfræði. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, HELGA VALBORG PÉTURSDÓTTIR Holtateigi 28, Akureyri, lést á Sjúkrahúsinu á Akureyri þriðjudaginn 8. maí. Útför hennar fer fram frá Akureyrar- kirkju föstudaginn 18. maí kl. 10.30. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hennar er bent á Sjúkrahúsið á Akureyri. Alúðarþakkir til starfsfólks Sjúkrahússins fyrir góða umönnun og hlýju. Þú lifir í hjörtum okkar Arnþór Björnsson Anna Sigríður Arnþórsdóttir Tryggvi Jónsson Birna Margrét Arnþórsdóttir Steinar Magnússon Drífa Þuríður Arnþórsdóttir Mark Siddall ömmu og langömmubörn. Ballettskóli Sigríðar Ármann var settur á laggirnar fyrir 60 árum síðan. Skólinn fagnaði tímamótunum með veglegri nemendasýningu í Borgar- leikhúsinu á dögunum og sýningu í Tjarnar bíói í haust. „Nemenda sýningin var með nokkuð hefðbundnu sniði en hófst þó á sýningu á myndum úr sögu skólans og dansarnir höfðu flestir verið fluttir áður á danssýningum skólans,“ segir Ásta Björnsdóttir, skólastjóri Bal- letskólans. „Í Tjarnarbíói voru dans- atriði nemenda auk fróðleiks um sögu skólans og danslistar sem Jóhanna Vig- dís Arnardóttir leikkona flutti.“ Ásta, sem er dóttir stofnandans Sigríðar Ármann, hefur starfað við kennslu í skólanum allt frá því að hún lauk ballettkennaranámi í London árið 1982. Hún tók svo við skólastjórn af móður sinni fyrir rúmum áratug. „Ég byrjaði í dansnámi sem lítið barn og hef verið viðloðandi skólann síðan,“ segir Ásta sem var á leið í kennslu síð- degis á föstudegi þegar Fréttablaðið sló á þráðinn. „Maður þarf eiginlega að snúa við deginum þegar maður starfar sem danskennari, við erum á leið í vinnu þegar flestir eru á leið heim úr vinnu. En ég kvarta ekki yfir því enda þekki ég ekki annað,“ segir Ásta en auk hennar kenna fimm kennarar við skólann. Balletskóli Sigríðar Ármann hefur alla tíð sérhæft sig í klassískum ball- ett og lagt áherslu á vandvirkni, nákvæmni og aga. Leiðarljósið hefur verið að miðla því að ballett væri upp- byggileg, spennandi og skemmtileg list- grein. Að sögn Ástu var venjan sú að taka inn nemendur frá átta ára aldri en fyrir 20 árum var settur á laggirnar forskóli fyrir fjögurra til sex ára. Fyrir nokkrum árum var síðan bætt við ballett leikskóla fyrir þriggja til fjögurra ára. „Það er alltaf vinsælt að kenna litlum stelpum, þær læra ballett- æfingar og ganga um leið inn í ævin- týra- og leikhúsheim. Undir hljómar píanóleikur en ég hef lagt áherslu á að hafa píanóleikara í yngstu tímunum, stelpunum finnst það meiri háttar,“ segir Ásta. „Strákarnir eru sjald séðir en það er einn og einn sem mætir í tíma, ballettinn þyrfti sannarlega að komast í tísku hjá strákum.“ Þær yngstu æfa einu sinni í viku en eldri hópar tvisvar til þrisvar. Á hefð- bundnum námskeiðum skólans eru nemendur frá þriggja ára og upp í 25. En einnig hefur Ásta boðið upp á nám- skeið fyrir eldri nemendur og fullorðna byrjendur sem hafa áhuga á að æfa og læra klassískan ballett. Og aðsóknin er góð. „Það er með ólíkindum hvað er mikill áhugi á klassískum ballett hér á landi, miðað við hve tækifærin til að horfa á hann eru fá,“ segir Ásta að lokum. sigridur@frettabladid.is BALLETTSKÓLI SIGRÍÐAR ÁRMANN: FAGNAR SEXTUGSAFMÆLI Nemendur frá þriggja ára aldri BALLERÍNUR Úr afmælissýningunni í Borgarleikhúsinu á dögunum. ÁSTA BJÖRNSDÓTTIR Segir mikinn áhuga á klassískum ballett hér á landi. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, GUÐRÚN KARLSDÓTTIR áður til heimilis að Dalatanga 6 Mosfellsbæ, er lést á Hjúkrunarheimilinu Eir 8. maí verður jarðsungin föstudaginn 18. maí kl. 13.00 frá Guðríðarkirkju Grafarholti. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir. Jón Vigfússon Edda Melax Günter Schmid Stefán Már Jónsson Hrefna Lind Borgþórsdóttir Kolbrún Jónsdóttir Bæring Sigurbjörnsson barnabörn og barnabarnabarn.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.