Fréttablaðið - 14.05.2012, Qupperneq 17
HönnunarMars hefur fest sig í sessi sem einn af stærstu viðburðum ársins í íslensku menningar-
lífi. „Við fengum fleiri á hátíðina nú en
í fyrra en þá mættu um þrjátíu þúsund
manns sem eru tíu prósent þjóðarinnar.
Vitund þjóðarinnar um hönnun sem
atvinnugrein er að aukast og hönnuðir
og aðstandendur viðburðarins eru mjög
ánægðir með viðtökurnar,“ segir Greipur
Gíslason, verkefnastjóri HönnunarMars
hjá Hönnunarmiðstöð Íslands.
Viðburðurinn í ár fékk töluverða
umfjöllun í erlendum miðlum og hefur
umfjöllunin aukist ár frá ári. „Markmiðið
með Hönnunarmars er að vekja athygli
á íslenskri hönnun bæði hérlendis og
erlendis. Öll umfjöllun er góð og það
er gott að geta bent á og vísað í um-
fjöllun um íslenska hönnun í fjölmiðlum
erlendis.“
Greipur segir að aðstandendur há-
tíðarinnar hafi fundið fyrir miklum
áhuga fagaðila erlendis frá. Hátíðin þyki
sérstök og íslensk hönnun áhugaverð.
Hönnuðirnir sem tóku þátt í síðustu hátíð
hafa fengið fleiri fyrirspurnir eftir hana að
sögn Greips. Umfjölluninni fylgir ákveðin
vakning meðal almennings í útlöndum.
Við vitum af skipulögðum hópum sem
komu á síðustu hátíð en aðalatriðið er
að öll umfjöllun vekur athygli, þó ferða-
mennirnir komi ekki endilega á ákveðinn
atburð eins og HönnunarMars eða Ice-
land Airwaves eða Listahátíð þá sjá þeir
sem áhuga hafa á þessum viðburðum um-
fjöllun um þá í erlendum miðlum og láta
verða af því að koma til landsins.“
„Við hjá Hönnunarmiðstöð erum fyrst
og fremst að reyna að búa til hressan
viðburð sem vekur athygli innanlands
sem og út fyrir landsteinana og ég
held að okkur hafa tekist vel til,“ segir
Greipur.
VITUND ALÞJÓÐA
MARGIR Á HÖNNUNARMARS Fleiri mættu á HönnunarMars í ár en í fyrra.
Hátíðin hefur fest sig í sessi og er nú ein af fjórum stærstu hátíðum ársins.
ÍSLENSK HÖNNUN
Fjöldi fallegra hluta
hefur verið sýndur á
HönnunarMars.
MIKILL ÁHUGI Greipur
segir aðstandendur
HönnunarMars hafa
fundið fyrir miklum áhuga
fagaðila erlendis frá.
MYND/STEFÁN
BLÁA LÓNIÐ STYÐUR VIÐ HÖNNUN
Bláa lónið og Hönnunarmiðstöð Íslands hafa gert með
sér samstarfssamning. Hönnun skipar mikilvægan sess
í starfsemi Bláa lónsins og hefur hönnun fyrirtækisins
hlotið margar viðurkenningar. Með samstarfinu vill
Bláa lónið stuðla að því að efla íslenska hönnun frekar.
Gerið gæða- og
verðsamanburð
Sofðu vel - heilsunnar vegna
Listhúsinu Laugardal, 581 2233 · Baldursnesi 6, Akureyri, 461 1150 · Opið virka daga kl. 10.00 - 18.00 · laugardaga 12.00 - 16.00
*3,5% lántökugjald
VORTILBOÐ Á ÖLLUM STILLANLEGUM HEILSURÚMUM
Með okkar bestu heilsudýnu.
Verð frá kr. 339.900 á hjónarúmi.
MIKIÐ ÚRVAL AF
SVEFNSÓFUM
12 má
naða
vaxtal
ausar
greiðs
lur*
SÉRFRÆÐINGAR Í RAFGEYMUM
Mesta úrval landsins af rafgeymum í allar gerðir farartækja