Fréttablaðið - 14.05.2012, Qupperneq 45
MÁNUDAGUR 14. maí 2012 21
ÞÓR Syngur djass á Kex á morgun.
Þór Breiðfjörð söngvari kemur
fram á næstu tónleikum djass-
tónleikaraðarinnar á KEX Hostel
við Skúlagötu 28 annað kvöld.
Þór leikur aðalhlutverkið í
söngleiknum Vesalingarnir í
Þjóðleikhúsinu en á morgun
bregður hann sér í djassfrakkann
og flytur ásamt félögum sínum
dagskrá sem hann nefnir inni-
leika. Á efnisskránni eru þekkt
djasslög sem hafa náð frægð í
meðförum „krúnera“ á borð við
Bing Crosby.
Þór til fulltingis eru Vignir
Þór Stefánsson á píanó, Snorri
Sigurðarson á trompet, Gunnar
Hrafnsson á kontrabassa og Erik
Qvick á trommur. Tónleikarnir
hefjast klukkan 20.30 og standa í
um tvær klukkustundir með hléi.
Aðgangur er ókeypis.
Innilegur
Þór á Kex
Karen Nadía Pálsdóttir söng-
kona heldur útskriftartónleika
í Listasafni Sigurjóns Ólafs-
sonar á morgun. Karen Nadía
lýkur BMus gráðu í einsöng frá
Listaháskóla Íslands í vor.
Á efnisskrá tónleikanna eru
verk eftir Karl Ó. Runólfsson,
R. Schumann, H. Purcell, C.W.
Cluck, G. Mahler, G. Fauré, G.
Bizet, M. Mussorgsky, P.l. Tchai-
kovsky, A. Bliss, S. Barber, A.
Dvorák og A. Ponchielli. Auk
þess flytur Nadía nýtt lag, Un
dur, eftir Halldór Smárason, tón-
smíðanema hjá Listaháskóla
Íslands. Píanóleikari er Selma
Guðmundsdóttir.
Karen Nadía
syngur í Sig-
urjónssafni
Út er komin bókin Stasiland eftir ástralska höf-
undinn Anna Funder. Í henni rekur höfundurinn
sannar sögur venjulegs fólks í einu mesta lög-
reglu- og eftirlitsríki allra tíma, Austur-Þýska-
landi.
Bókin hlaut einróma lof þegar hún kom út fyrst
árið 2003 og hlaut meðal annars Samuel Johnson-
verðlaunin í Bretlandi árið 2004. Bókin hefur
verið þýdd á um tuttugu tungumál síðan þá og
verður senn sett upp á leiksviði í London.
Anna Funder er lögfræðingur að mennt og
starfaði lengi sem slíkur, einkum á sviði mann-
réttindamála, þar til hún ákvað að snúa sér að rit-
störfum. Stasiland er hennar fyrsta bók. Í fyrra
gaf hún út sína fyrstu skáldsögu, metsölubókina
All That I Am, sem gerist í Þýskalandi nasismans.
Bókaforlagið Ugla gefur bókina út en þýðandi
er Elín Guðmundsdóttir.
Sögur handan Berlínarmúrsins
ANNA FUNDER Er lögfræðingur að mennt en hefur helgað sig
ritstörfum. Stasiland er hennar fyrsta bók. NORDICPHOTOS/GETTY IMAGES
Kammerkór Reykjavíkur heldur
upp á tíu ára afmæli sitt með
hátíðartónleikum í Háteigskirkju
á þriðjudagskvöld. Efnisskráin er
fjölbreytt en þar má finna verk
eftir ýmsa innlenda og erlenda
höfunda, svo sem Igor Stravinsky,
Edvard Elgar, Zoltán Kodály, Geor-
ges Bizet, Anton Bruckner, Ariel
Ramirez, Björgvin Þ. Valdimars-
son og Eyþór Stefánsson.
Þá verður flutt nýtt verk eftir
Sigurð Bragason, stjórnanda
kórsins. Verkið nefnist „Á fótskör
þinni“ og er samið við ljóð Valdi-
mars Lárussonar. Einnig verður
flutt í fyrsta sinn á Íslandi „Le
Sette Parole di Nostro Signore“,
verk fyrir kór og einsöngvara, eftir
Pietro Allori.
Tónleikarnir annað kvöld hefjast
klukkan 20.
Kammerkór tíu ára
SIGURÐUR BRAGASON BARÍTÓN
Save the Children á Íslandi