Fréttablaðið - 14.05.2012, Síða 54

Fréttablaðið - 14.05.2012, Síða 54
14. maí 2012 MÁNUDAGUR30 GOTT Á GRILLIÐ Tónlistarmaðurinn Bryan Ferry verður með ein- valalið með sér á tónleikunum sem hann heldur í Hörpu 27. og 28. maí. Þrettán manns verða með honum á sviðinu, þar á meðal öflugur danshópur, trommarinn Paul Thompson úr Roxy Music, gömlu hljómsveitinni hans Ferry, Paul Turner, bassaleikari Jamiroquai, og Chris Spedding sem er einn þekktasti hljóðvers- gítarleikari Bretlands. Hann hefur spilað með Paul McCartney, Roxy Music, Tom Waits og Katie Melua, auk þess sem hann spilaði inn á plötu Stuðmanna, Sumar á Sýrlandi. Alls telur hópurinn sem kemur með Ferry til landsins um þrjátíu manns. Þar verða einnig tæknimenn og sonur hans, Isaac Ferry. Umboðs- maður söngvarans og tónleikabókari koma einnig til Íslands en mjög sjaldgæft er að þeir ferðist með honum á tónleika. Óskalisti Ferrys baksviðs er lágstemmdur. Hann hefur beðið um að nuddarar verði til taks, auk þess sem hann vill kampavín af gerðinni Dom Perignon. Evian-vatn er einnig á listanum en hið tæra íslenska vatn verður líklega frekar fyrir valinu. Þetta verða fyrstu tónleikar Bryans Ferry á þessu ári og þeir fyrstu síðan hann lauk Olympia-tónleika- ferð sinni í London í desember í fyrra. Hún samanstóð af fimmtíu tónleikum og var uppselt á þá alla. Það er einmitt uppselt á fyrri tónleikana í Hörpu en enn eru til miðar á þá síðari á Midi.is. -fb Einvalalið fylgir Bryan Ferry Á LEIÐ TIL ÍSLANDS Bryan Ferry stígur á svið á tvennum tón- leikum í Hörpu í lok maí. Jasmin Rexhepi, nemandi við Kvik- myndaskóla Íslands, er á leið með fyrsta skólaverkefni sitt á kvik- myndahátíðina í Cannes á mið- vikudaginn næsta. Kvikmyndin á að gerast í Frakklandi en var tekin upp á heimili Jasmin í Reykjavík. Jasmin er frá Kósóvó en flutti hingað til lands fyrir fjórum árum síðan og er nú að ljúka sínu öðru ári við Kvikmyndaskólann. Stutt- mynd hans, The Forgotten Moni- que, verður sýnd í Short Cor- ner-flokknum í Cannes sem er sérstaklega ætlaður stuttmyndum. „Það er gamall draumur minn að sýna á Cannes og því ákvað ég að sækja um á hátíðinni um leið og myndin var tilbúin. Ég hef fengið einhverja fjárhagsaðstoð sem gerir mér kleift að komast út og ég er orðinn mjög spenntur fyrir ferðinni,“ útskýrir Jasmin sem hyggst nýta tækifærið til að mynda sambönd við framleið endur og aðra kvikmyndagerðamenn. Jasmin kveðst vera hrifinn af franskri kvikmyndagerð sem hann lýsir sem mjög listrænni og þangað sótti hann innblástur fyrir The Forgotten Monique. „Myndin er algjörlega án samtala og mér fannst einhvern veginn passa betur ef sögumaðurinn væri franskur. Aðalleikkona myndarinnar er íslensk en með mjög franskt útlit og sá sem tók að sér að tala yfir myndina er Frakki sem er búsettur hér á landi. Ég þurfti svo að breyta íbúðinni minni þannig að hún liti út fyrir að vera frönsk og það var ekki auðvelt verk. Ég eyddi miklum tíma í að finna alls kyns hluti er gætu talist franskir í útliti og lagði mjög mikla áherslu á að smáatriðin væru í lagi og þannig gekk þetta upp.“ Jasmin hyggur á áframhaldandi störf innan íslenska kvikmynda- geirans í framtíðinni. „Planið er að vinna áfram hér enda er Ísland orðið mitt land og hér vil ég vera,“ segir hann að lokum. sara@frettabladid.is JASMIN REXHEPI: GAMALL DRAUMUR AÐ RÆTAST Með fyrsta skólaverkefnið sitt á Cannes-hátíðina Á LEIÐ TIL CANNES Jasmin Rexhepi, nemandi við Kvikmyndaskóla Íslands, er á leið með skólaverkefni sitt á kvikmyndahátíðina í Cannes. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN „Ég lærði af pabba mínum að setja úrbeinuð læri heil á grillið og skera niður í sneiðar á meðan ég grilla þau. Það er svona fjalla- mannatrix. Ég er mikið fyrir íslenskar kryddblöndur eins og bláberjakrydduð læri, en svo er sérstök hátíðarstund þegar maður kemur við í Nóatúni og kaupir Heiðmerkurkryddað læri.“ Einar Bárðarson athafnamaður. Myndasagnahöfundurinn Vignir Þór Þórhallsson, eða Flotti-Comics eins og hann kallar sig, er kominn með fimm þúsund aðdáendur á Facebook-síðu sína. Þessi tvítugi piltur hefur samið myndasögur síðan hann var fimm- tán ára. „Þegar ég var í grunn- skóla leiddist mér stundum og þá byrjaði ég að teikna myndasögur,“ segir Vignir Þór, sem setti mynda- sögurnar inn á síðuna Hugi.is. Þar urðu þær vinsælar en núna ein- beitir hann sér að eigin Facebook- síðu en einnig birtir hann kvikmynda tengdar sögur á síðunni Kvikmyndir.is. Sögurnar hans eru bæði á ensku og íslensku, enda vill hann ná til fleira fólks með verkum sínum. „Ég hef verið að birta sögurnar stundum á 9gag.com sem er vinsæl grínsíða. Það hafa nokkrar komist á for- síðuna, sem er æðislegt því það er svo breiður áhorfendahópur þar.“ Vignir Þór, sem ætlar að gefa út myndasögubók í nánustu fram- tíð, segir aðspurður að Hugleikur Dagsson sé í miklu uppáhaldi hjá sér. „Ég geri aðeins öðruvísi sögur en mér finnast sögurnar hans voða góðar. Það er mjög svartur húmor í þeim og hann þorir að fara langt yfir strikið.“ -fb Vaxandi vinsældir hjá Flotta VINSÆLL Myndasagnahöfundurinn er kominn með tæplega fimm þúsund aðdáendur á Facebook. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM Save the Children á Íslandi QI Stephen Fry fer á kostum í skemmtilegum þáttum BBC ENTERTAINMENT ER Á STÖÐ 2 FJÖLVARP | FÁÐU ÞÉR ÁSKRIFT Á STOD2.IS

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.