Fréttablaðið


Fréttablaðið - 07.08.2012, Qupperneq 4

Fréttablaðið - 07.08.2012, Qupperneq 4
7. ágúst 2012 ÞRIÐJUDAGUR4 GENGIÐ 03.08.2012 GJALDMIÐLAR KAUP SALA HEIMILD: Seðlabanki Íslands 207,1088 GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR 120,28 120,86 187,44 188,36 147,46 148,28 19,813 19,929 19,957 20,075 17,781 17,885 1,5359 1,5449 181,08 182,16 Bandaríkjadalur Sterlingspund Evra Dönsk króna Norsk króna Sænsk króna Japanskt jen SDR AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Einar Davíðsson einar.davidsson@365.is, Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@365.is, Laila Awad laila@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Benedikt Freyr Jónsson benediktj@365.is, Ívar Örn Hansen ivarorn@365.is, Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is, Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is, Sverrir Birgir Sverrisson sverrirbs@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Guðný Gunnlaugsdóttir gunny@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is KYNNINGARSTJÓRI: Einar Skúlason einar.skulason@365.is Alveg mátulegur Heimilis GRJÓNAGRAUTUR H V ÍT A H Ú SI Ð / S ÍA VEÐURSPÁ Alicante Basel Berlín Billund Frankfurt Friedrichshafen Gautaborg Kaupmannahöfn Las Palmas London Mallorca New York Orlando Ósló París San Francisco Stokkhólmur HEIMURINN Vindhraði er í m/s. Hitastig eru í °C. Gildistími korta er um hádegi. 29° 28° 22° 20° 22° 22° 20° 20° 26° 19° 34° 29° 32° 18° 24° 23° 19°Á MORGUN 8-13 m/s V-til, annars hægari. FIMMTUDAGUR 5-13 m/s, hvassast NV-til. 13 13 14 14 16 12 17 13 17 14 5 6 7 10 7 6 5 6 4 5 7 4 15 13 16 19 15 15 13 16 22 13 HVESSIR Í dag og næstu daga verða suðvestlægar áttir ríkjandi, það hvessir heldur V-til en áfram horfur á fremur hægum vindi annars staðar. Það verður nokkuð bjart SA- og A-til en þungbúnara vestanlands. Áfram hlýtt í veðri, eink- um inn til landsins austantil. Soffía Sveinsdóttir veður- fréttamaður BRUNI Tuttugu slökkviliðsmenn voru kallaðir út í gær vegna elds í skipinu Arnari ÁR 55 í Þorláks- höfn. Skipið var mannlaust. Tilkynnt var um eldinn um átta- leytið um morguninn og var búið að ráða niðurlögum hans tveimur tímum síðar. Þetta kemur fram á Rúv.is. Talið er að eldurinn hafi komið upp í rými framarlega í skipinu en ekki er vitað hversu mikið tjónið er. Níu menn eru í áhöfn skipsins og höfðu þeir verið á makrílveiðum en komið í land á fimmtudaginn. - ktg Slökkvilið kallað út: Eldur í skipi í Þorlákshöfn ÍSRAEL Um fimmtán egypskir her- menn voru myrtir af óþekktum hryðjuverkahópi múslíma á Sínaí- skaga á sunnudag. Reuters- fréttaveitan greindi frá þessu. Ehud Barak, varnarmálaráð- herra Ísraels, sagðist vona að árásin verði Egyptum vakning en hann hefur gagnrýnt egypsk stjórnvöld fyrir slakar varnir við landamærin við Ísrael. Ísra elskir hermenn skutu í kjölfarið átta vígamenn eftir að þeir reyndu að komast yfir landamærin til Ísra- els. Barak nýtti einnig tækifærið og hrósaði ísraelsku hermönnun- um fyrir skjót viðbrögð. - sm Egypskir hermenn myrtir: Vakning fyrir Egyptaland NOREGUR Ítarleg leit var gerð að 16 ára stúlku í Ósló um helgina. Stúlkan hefur enn ekki fundist og er hennar nú einnig leitað á alþjóðlegum vettvangi. Um 500 sjálfboðaliðar leituðu á landi í gær, ásamt lögregluliði og leitar- hundum. Kafarar hafa leitað í vatni í nágrenninu og þyrlur leitað stúlkunnar úr lofti. Þetta kemur fram á vef norska ríkisútvarpsins. Stúlkan, sem ber nafnið Sigrid Giskegjerde, hafði verið í heim- sókn hjá vinkonu sinni á laugar- dagskvöldið en skilaði sér ekki heim og gerðu foreldrar stúlkunnar lögreglu viðvart í kjöl- farið. Eigur stúlkunnar, farsími, sokk- ar og skór fundust síðar á víð og dreif við leikskóla nokkur hundruð metrum frá heimili hennar. Leitarhundar hafa nú rakið slóð stúlkunnar að leikskólanum, en þar endar slóðin. Flest þykir benda til þess að stúlkan hafi verið numin á brott í bifreið þaðan, gegn vilja sínum. Íbúar í grennd leik- skólans segjast hafa heyrt öskur um það leyti sem stúlkan hvarf og þykir það renna stoðum undir þessa kenningu. - ktg 16 ára stúlka talin hafa verið numin á brott rétt hjá heimili sínu: Alþjóðleg leit að norskri stúlku MANNSHVARF Í gærkvöldi bárust lög- reglunni nýjar upplýsingar og fundust nærbuxur, veski og sólgleraugu í kjölfarið. Óvíst er þó hvort þessir hlutir tengist hvarfi stúlkunnar. NORDICPHOTOS/AFP STJÓRNSÝSLA Innanríkisráðu neytið hefur vísað frá kæru Jóns Jósefs Bjarnasonar, fulltrúa minnihluta Íbúahreyfingarinnar í bæjar- stjórn Mosfellsbæjar, vegna afgreiðslu bæjarráðs á skulda- máli. Ráðuneytið segir bæjarfull- trúa ekki hafa kærurétt þar sem hann eigi ekki aðild að málinu. „Mér finnst þetta út í hött. Ráðuneytið á að verja lýðræðið og með þessu eru þeir að standa gegn því. Þeir eru að taka af bæjar- fulltrúunum réttinn til að setja fram formlega skoðun á málinu,“ segir Jón. Bæjarráð Mosfellsbæjar ákvað á fundi 21. júní að fela bæjarstjóra að semja um greiðslu til Lands- bankans á um 250 milljónum króna. Um er að ræða sjálf- skuldarábyrgð sem bærinn gekkst í fyrir verktaka vegna áforma um uppbyggingu í Helgafellslandi. Samkvæmt lögfræðiáliti sem unnið var fyrir bæinn var óheimilt að gangast í slíka sjálfskuldar- ábyrgð, eins og fjallað hefur verið um í Fréttablaðinu. Því hefur Har- aldur Sverrisson, bæjarstjóri Mos- fellsbæjar, mótmælt og vísað til þess að ábyrgðin falli undir dag- legan rekstur sveitarfélagsins. Í kæru Jóns er vísað til sveitar- stjórnarlaga, þar sem segir að sveitarstjórn ein geti tekið endan- legar ákvarðanir sem varði veru- legar fjárhagslegar skuldbind- ingar. Því segir Jón augljóslega ólöglegt að afgreiða málið á fundi bæjarráðs. Jón segir að með því að full- afgreiða málið á fundi bæjarráðs sé þeim bæjarfulltrúum sem ekki eigi sæti þar haldið frá því að tjá sig um málið. Bæjarstjórnin er í sumarfríi um þessar mundir en kemur aftur saman í ágúst. Jón segir ekkert liggja á að afgreiða málið, vel hefði mátt bíða fram í ágúst með að taka lokaákvörðun um afgreiðslu þess. Innanríkisráðuneytið tekur ekki afstöðu til þess hvort kæruefnið sé réttmætt heldur vísar kærunni frá. Jón segir að niðurstöðu ráðu- neytisins verði vísað til umboðs- manns Alþingis. „Ég vænti þess að hann snúi þessari ákvörðun, ég trúi ekki öðru.“ brjann@frettabladid.is Bæjarfulltrúi ekki aðili að skuldamáli Mosfellsbæjar Innanríkisráðuneytið hefur vísað frá kæru bæjarfulltrúa í Mosfellsbæ vegna afgreiðslu bæjarins á 250 milljóna króna sjálfskuldarábyrgð. Bæjarfulltrúinn segist ekki trúa öðru en að umboðsmaður Alþingis snúi niðurstöðu ráðuneytisins. Með afgreiðslu sinni sé ráðuneytið að standa gegn lýðræðislegu ferli. UPPBYGGING Mosfellsbær samdi við verktaka um mikla uppbyggingu í Helgafellslandi árið 2006. Áformin gengu ekki eftir nema að litlum hluta og bærinn sat uppi með sjálfskuldarábyrgð vegna samningsins. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Hægt að kæra sveitarfélög til ráðherra Samkvæmt sveitarstjórnarlögum hefur innanríkisráðherra eftirlit með því að sveitarfélög í landinu gegni skyldum sínum og fari að lögum. Hægt er að leggja fram stjórnsýslukæru til innanríkisráðuneytisins vegna ákvarðana sveitarfélaga, en aðeins „aðilum máls“ er heimilt að leggja fram slíkar kærur.Fórnarlamba minnst 67 ár voru í gær liðin síðan Banda- ríkjamenn vörpuðu kjarnorkusprengju á japönsku borgina Hiroshima. Fórnarlamba árásanna var minnst víða um heim af þessu tilefni. JAPAN GRIKKLAND Lögreglan í Grikklandi hefur handtekið meira en sex þúsund innflytjendur í landinu undanfarna daga. Um 1.600 ólög- legir innflytjendur verða sendir úr landi á næstunni. Nikos Dendias, ráðherra í grísku ríkisstjórninni, segir landið ekki geta staðið undir kostnaði sem fylgi innflytjendum sökum fjármálakreppunnar sem þar ríkir. Um 88 einstaklingar voru fluttir aftur til Pakistan á sunnu- dag og hafa grísk yfirvöld hert gæslu við landamæli Tyrklands til muna en áttatíu prósent allra ólöglegra innflytjenda í Evrópu fara í gegnum Grikkland. - sm Herða eftirlit við landamæri: Innflytjendur handteknir

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.