Fréttablaðið - 29.08.2012, Blaðsíða 6
29. ágúst 2012 MIÐVIKUDAGUR6
LANDBÚNAÐUR Íslenskum kart-
öflubændum hefur fækkað úr
hundrað í þrjátíu á síðustu tíu
árum. Nætur frost síðustu daga
og þurrkar sumarsins munu hafa
slæm áhrif á kartöfluuppskeru
þessa árs hjá kartöflubændum,
sérstaklega á Norðurlandi. Berg-
vin Jóhannsson, formaður Sam-
bands kartöflubænda, segir það
áhyggjuefni hversu fáir bændur
eru eftir.
„Á meðan okkur er haldið í gísl-
ingu með verðlag hættir sér eng-
inn út í þetta,“ segir Bergvin. „Við
náum ekki að verðleggja vöruna
sjálfir og höfum verið á sama róli
árum saman þrátt fyrir að aðföng
hafi hækkað gríðarlega í verði.“
Bergvin bendir á að um 1985
hafi verið skráðir 38 kartöflu-
bændur í Eyjafjarðarsveit einni
saman, en nú séu þeir þrír. Þá hafi
verið um tvö hundruð á landinu
öllu.
„Þegar þetta eldist af mönnum
kemur enginn í staðinn,“ segir
hann. „En vissulega eru þeir sem
eftir eru umfangsmeiri en áður.“
Allt útlit er fyrir nokkurn upp-
skerubrest í haust, en þó ekki eins
mikinn og í fyrra. Íslenskar kart-
öflur hættu að fást í verslunum í
apríl síðastliðnum og voru ófáan-
legar í þrjá mánuði.
Helgi Örlygsson, bóndi á Þóru-
stöðum í Eyjafjarðarsveit, segir
haustið hafa lofað nokkuð góðu,
en næturfrost síðustu daga hafi
skemmt uppskeru síðustu daga
ágústmánaðar og þá fyrstu í
september.
„Þetta var ansi lélegt í fyrra út
af frostaveðrum í ágúst og ætli
þetta verði ekki svipað núna.
Jafnvel minna vegna þurrkanna,“
segir hann. Fjárhagslegt tap
segir Helgi hlaupa á milljónum.
„En maður getur ekki verið að
reikna svoleiðis út fyrir fram.
Þetta er happdrætti á hverju ári.“
Bjarni Jónsson, framkvæmda-
stjóri Sambands garðyrkju-
bænda, segir greinilegt að kart-
öfluuppskera síðustu ára nái ekki
að anna eftirspurn. Draumurinn
sé vissulega að ná að metta mark-
aðinn.
„Ég mundi vilja hækka verð á
kartöflum, en þarna ráða samn-
ingar á milli smásölu og fram-
leiðanda,“ segir hann. „Svo koma
hörð ár og uppskera minnkar um
tugi prósenta, þá er mjög auð-
velt að gefast upp. Að hafa litla
afkomu ár eftir ár og fá svo
uppskerubrest, það er rosalegt
högg.“ sunna@frettabladid.is
Kartöflubændur of
fáir fyrir markaðinn
Kartöflubændum hefur fækkað úr hundrað í þrjátíu á síðustu tíu árum. Ná
ekki að metta íslenskan markað ef veðurskilyrði bregðast. Þurrkar og nætur-
frost hafa áhrif á uppskeru í ár. Happdrætti á hverju ári, segir kartöflubóndi.
KARTÖFLUUPPSKERA Heildarkartöfluuppskera síðustu ára hefur verið sveiflukennd vegna frosta og þurrka og er allt útlit fyrir
lélega uppskeru í haust.
DÓMSMÁL Upplýsingamiðlunin Creditinfo hefur
höfðað mál á hendur fjármálaráðuneytinu og
Þjóðskrá Íslands til að láta reyna á lögmæti
þess að innheimt sé gjald fyrir upplýsingar úr
Þjóðskrá, til dæmis veðbönd og fasteignamats-
upplýsingar.
Fyrirtækið gerir um 400 milljóna króna bóta-
kröfu vegna ofgreiddra gjalda undanfarin ár.
Upphaf málsins má rekja til álits umboðs-
manns Alþingis frá því í fyrravor, þegar hann
komst að því að ekki hefði verið sýnt fram á
að gjaldtakan samræmdist lögum sem segja
að hún megi ekki vera umfram kostnaðinn við
að taka upplýsingarnar saman. Hann taldi sig
þó ekki hafa forsendu til að meta hvort gjaldið
hefði verið of hátt.
„Þjóðskrá og ríkið hafa kosið að fara ekki
eftir áliti umboðsmanns og því ákváðum við
að láta reyna á lögmæti gjaldtökunnar fyrir
dómi enda óásættanlegt að embætti sem
ætlað er að kveða á um lögmæti og hafa
eftir lit með stjórnsýslunni sé virt að vett-
ugi,“ segir Hákon Stefánsson, framkvæmda-
stjóri Creditinfo.
„Verði niðurstaða dómsins í samræmi við
álit umboðsmanns má búast við því að verð
fyrir umræddar upplýsingar lækki umtals-
vert,“ segir Hákon, sem telur að dómurinn
muni, ef að líkum láti, hafa ríkt fordæmis-
gildi í málum sem lúti að gjaldtöku stofnana
fyrir upplýsingar.“
- sh
SKOTLAND Dómstóll í Glasgow í
Skotlandi hefur dæmt Nasserdine
Menni, sem aðstoðaði mann fjár-
hagslega sem sprengdi sjálfan
sig í miðborg Stokkhólms í des-
ember 2010, í sjö ára fangelsi.
Vitni greindu frá aðstoð Menn-
is auk þess sem sjá mátti á yfir-
liti bankareikninga að hann hefði
millifært jafngildi einnar millj-
ónar íslenskra króna yfir á reikn-
ing sprengjumannsins, Taimours
Abdulwahab.
Verjendur sögðu að féð hefði
verið ætlað fjölskyldu Mennis í
Alsír. Saksóknari sagði að honum
hefði átt að vera ljóst að féð
kynni að verða notað til hryðju-
verka. - ibs
Aðstoðaði sprengjumann:
Sjö ára fangelsi
fyrir hryðjuverk
ÞJÓÐSKRÁ Creditinfo byggir málsókn sína á áliti
Umboðsmanns Alþingis frá því í fyrravor.
FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA
Framkvæmdastjóri Creditinfo telur Þjóðskrá hafa ofrukkað fyrirtækið fyrir upplýsingar í áraraðir:
Creditinfo krefur ríkið um 400 milljónir
Telur þú að lækka eigi fast-
eignagjöld á Hörpuna?
JÁ 45,9%
NEI 54,1%
SPURNING DAGSINS Í DAG
Ferðast þú með bíl í og úr vinnu
eða skóla?
Segðu þína skoðun á Vísir.is
KJÖRKASSINN
MENGUNARMÁL Umhverfisstofnun
mældi magn þrávirka efnisins
hexaklórbensen í flugeldum og
skotkökum níu innflytjenda. Í
tveimur sýnishornum reyndist
efnið vera yfir leyfilegu magni,
en það var í flugeldum frá KR-
flugeldum og Alvöru flugeldum.
Umhverfisstofnun ákvað að
taka sýnin eftir að efnið hafði
fundist í flugeldum í nágranna-
löndunum og efnið mældist í
andrúmslofti á nýársnótt 2011.
Leyfileg mörk efnisins miðast við
50 míkrógrömm í kílói (μg/kg).
Í sýni Alvöru flugelda mældist
mest 210 μg/kg og frá KR-flug-
eldum 600 μg/kg. - kóp
HCB í flugeldum á Íslandi:
Bensen fannst í
flugeldum
FLUGELDAR Sýni KR-flugelda og Alvöru
flugelda reyndust innihalda of mikið
magn hexaklórbensens.
ÍTALÍA Skattalögreglan á Ítalíu er
nú á ferð um smábátahafnir lands-
ins til að hafa uppi á skemmtibáta-
og snekkjueigendum. Fyrir tíu til
tólf metra langan bát þarf nú að
greiða 800 evrur í skatt en 4.400
evrur fyrir tuttugu til 24 metra
langan bát. Fyrir snekkjur sem
eru lengri en 64 metrar þarf að
greiða 25.000 evrur.
Í frétt Dagens Industri sem vitn-
ar í The Economist segir að sumir
bátaeigendur séu farnir að leggja í
höfnum Korsíku eða Króatíu.
Nýi skatturinn er einnig sagður
gilda um skemmtibáta sem teknir
eru á leigu á Ítalíu. Við bátahöfn
skammt frá Róm hefur starfsemi
þeirra sem leigja út báta minnkað
um fimmtíu prósent. - ibs
Nýr skattur á skemmtibáta:
Bátaeigendur á
flótta frá Ítalíu
BELGÍA, AP Michelle Martin, eigin-
kona belgíska barnaníðingsins og
barnamorðingjans Marc Dutroux,
verður látin laus eftir að hafa
afplánað tæpan helming af þrjátíu
ára fangelsis-
dómi.
Dómstóll sam-
þykkti að leyfa
henni að ganga
í Claresse-
klaustrið í Mal-
onne og losna
þar með úr
fangelsinu. Hún
var á sínum
tíma talin sam-
sek eiginmanni sínum, alræmdasta
glæpamanni landsins. Meðal ann-
ars hafi hún borið ábyrgð á því að
tvö börn sultu til bana.
Dómstóllinn hafnaði mótmælum
frá ættingjum fórnarlamba þeirra
hjóna. Ekki er vitað hvenær Mart-
in fer í klaustrið. - gb
Eiginkona barnamorðingja:
Laus úr fangelsi
en fer í klaustur
MARC DUTROUX
Ná ekki tökum á eldinum
Eldur logaði enn í stærstu olíu-
hreinsistöð Venesúela í gærkvöld.
Eldsvoðinn hefur þegar kostað 48
manns lífið og hefur Hugo Chaves,
forseti landsins, lýst yfir þriggja daga
þjóðarsorg.
VENESÚELA
Svo koma hörð ár og
uppskera minnkar
um tugi prósenta, þá er mjög
auðvelt að gefast upp.
BJARNI JÓNSSON
FRAMKVÆMDASTJÓRI SAMBANDS
GARÐYRKJUBÆNDA