Fréttablaðið - 29.08.2012, Blaðsíða 10

Fréttablaðið - 29.08.2012, Blaðsíða 10
29. ágúst 2012 MIÐVIKUDAGUR10 til batnaðar á einfaldan og öfgalausan hátt? INGA KRISTJÁNSDÓTTIR næringarþerapisti D.E.T. kennir ykkur hve einfalt það getur verið að bæta mataræðið og hvaða ráð hún hefur til þess. ÞETTA ER EKKI FLÓKIÐ! Inga er búin að halda yfir 40 fyrirlestra um efnið enda nálgunin einföld, skýr og hentar öllum sem áhuga hafa á breyttum lífsháttum. Staður og stund: Heilsuhúsið Lágmúla 5, kl.18:30 - 21:00 Innifalið er mappa með uppskriftum og fróðleik. Verð: 4.900 kr. Nánari upplýsingar og skráning í síma 8995020 eða á inga@inga.is www.heilsuhusid.is FARIÐ VERÐUR MEÐ EINFÖLDUM HÆTTI YFIR: • Hverju er hægt að skipta út og hvað kemur þá í staðinn • Hvernig hægt er að þekkja muninn á hollri og skaðlegri fitu • Hvernig þú getur haldið fullri orku allan daginn og losnað við sykurþörf og þreytuköstNý námskeið að byrja eftir sumarfrí! BANDARÍKIN, AP Hitabeltisstormur- inn Ísak var síðdegis í gær orðinn að fellibyl og stefndi að norður- strönd Mexíkóflóa, þar sem hann ógnaði íbúum í Louisiana og þremur öðrum ríkjum. Veðurhamurinn hafði þá þegar kostað tugi manna lífið á Haítí og í Dóminíkanska lýðveldinu, ásamt því að gera mikinn usla á Kúbu þegar hann mjakaði sér yfir Karíba hafið. Nákvæmlega sjö ár eru liðin í dag frá því fellibylurinn Katrína skall á Louisiana og lagði meðal annars heilu hverfin í New Orleans í rúst. Katrína kostaði hátt í tvö þúsund manns lífið og varð þar með einn af fimm mannskæðustu fellibyljum í sögu Banda- ríkjanna. Ekki var búist við að Ísak ylli nærri jafn miklu tjóni og Katarína, enda engan veginn jafn öflugur. Vindstyrkurinn í Katrínu náði allt að 78 metrum á sekúndu, en Ísak var í gær farinn að nálgast um eða yfir 40 metra á sekúndu – vind- styrk sem Íslendingum er ekki ókunnugur. Það var einkum flóða hættan sem olli Bandaríkjamönnum áhyggjum, enda fylgdi veðrinu úrhellisrigning. Víða var unnið hörðum höndum að því að styrkja flóðvarnargarða, auk þess sem íbúum var ráðlagt að yfirgefa mestu hættusvæðin og leita skjóls í þar til ætluðum neyðarskýlum. „Nú er ekki tími til að storka örlögunum,“ sagði Barack Obama Bandaríkjaforseti í sjónvarps- ávarpi í gær, þar sem hann hvatti íbúa til að fara að ráðleggingum stjórnvalda: „Þið verðið að taka þetta alvarlega.“ George W. Bush, forveri Obama í embætti, var sakaður um að hafa ekki staðið sig nógu vel árið 2005 þegar Katrína hamaðist á New Orleans. Björgunarstarf virtist illa skipulagt og uppbygging gekk hægt fyrir sig. Félagar Bush í Repúblikana- flokknum fengu hins vegar að kenna á Ísak strax í gær, þar sem þeir sátu á landsþingi flokksins í borginni Tampa á vest- anverðum Flórídaskaga. Stytta þurfti lands- þingið um einn dag, úr fjórum í þrjá, og svo virtist fréttaflutning- ur af fellibylnum ætla að kaffæra að stórum hluta fréttir af þinginu, sem er einn stærsti við- burðurinn í aðdraganda forsetakosninganna í nóvember, þar sem flokksfélagar hafa meðal annars formlega samþykkt að Mitt Romney verði forsetaefni þeirra gegn Obama. Úrkoman mikla, sem fylgir Ísak, er bændum og öðrum ræktendum í suðurríkjum Bandaríkjanna hins vegar fagnaðarefni, enda hafa miklir þurrkar eyðilagt upp- skeru víða þar í sumar. Hugsan- lega kemur þessi úrkoma samt of seint og sumir óttast að hún verði það mikil, að hún geri hreinlega illt verra. gudsteinn@frettabladid.is Ísak herjar á Bandaríkin Íbúar í Louisiana og víðar í Suðurríkjum Banda- ríkjanna bjuggu sig í gærkvöldi undir átök við felli- bylinn Ísak. Í dag eru rétt sjö ár frá því fellibylurinn Katrína lagði heilu hverfin í New Orleans í rúst. LOUISIANA Í GÆRKVÖLD Fellibylurinn Ísak nálgaðist ströndina í gærkvöldi en ekki var búist við því að hann ylli jafnmiklu tjóni og fellibylurinn Katrína sem varð hátt í tvö þúsund manns að bana fyrir sjö árum. NORDICPHOTOS/GETTY ÍÞRÓTTIR Fyrsta almennings- hlaupið sem efnt er til í Grímsey verður ræst hinn 8. september. Hlaupið verður kallað Norður- heimskautsbaugshlaup TVG- Zimsen. Aldrei hefur verið hlaupið norðar á Íslandi. Tvær vegalengdir verða í boði en hægt er að hlaupa annað hvort 12 kílómetra eða 24 kíló- metra. Drykkjarstöðvar verða við hlaupaleiðina en ræst verður frá félagsheimilinu í eyjunni. Þátttaka í hlaupinu er ókeypis. - bþh Hlaupið við heimskautsbaug: Keppt í fyrsta sinn í Grímsey ESB Ísland leggur mikla áherslu á að sambandið við Færeyjar sé varðveitt þrátt fyrir að til ESB-aðildar komi. Þetta er meðal þess sem kemur fram í samningsafstöðu Íslands varðandi utanríkistengsl, en samningsafstaða varðandi þann málaflokk annars vegar og um tollabandalag hins vegar var opinberuð í gær. Í afstöðunni um utanríkistengsl er tíundað hið nána samband milli Íslands og Færeyja sem endur- speglast í Hoyvíkur-samningnum svonefnda, en það er víðtækasti fríverslunarsamningur sem Ísland hefur gert. Einnig eru settar fram kröfur um að sem minnst röskun verði á innflutningi á aðföngum til orku- freks iðnaðar, hráefnis til fisk- vinnslu og aðfanga til fiskvinnslu og fiskeldis. Þá er gerður fyrirvari um mikil- vægi tollaverndar fyrir innlendan landbúnað, en það mun tengjast samningaviðræðum um landbún- aðarmál. Með þessu hefur Ísland lagt fram samningsafstöðu í 24 samn- ingsköflum, en alls eru kaflarnir 33. Viðræður eru hafnar í átján köflum og er þegar lokið í tíu. Í tilkynningu frá utanríkisráðu- neyti segir að búist sé við því að viðræður hefist í umræddum mála- flokkum fyrir áramót. - þj Samningsafstaða birt í tveimur málaflokkum ESB-viðræðnanna: Áhersla á sambandið við Færeyjar VIÐ SAMNINGSBORÐIÐ Íslensk stjórnvöld hafa kynnt afstöðu Íslands í tveimur málaflokkum til viðbótar. 1. Hvað fer hátt hlutfall af tekjum Hörpu í fasteignagjöld? 2. Hverjir voru foreldrar lista- konunnar Temmu Bell? 3. Hvað heitir forsætisráðherra Danmerkur? SVÖR: 1. Helmingurinn. 2. Louisa Matthíasdóttir og Leland Bell. 3. Helle Torning-Schmidt. VEISTU SVARIÐ? Nú er ekki tími til að storka örlög- unum. BARACK OBAMA FORSETI BANDARÍKJANNA

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.