Fréttablaðið - 29.08.2012, Síða 12

Fréttablaðið - 29.08.2012, Síða 12
12 29. ágúst 2012 MIÐVIKUDAGUR F réttablaðið hefur undanfarna daga sagt fremur ömurlegar fréttir af heimilisofbeldi á Íslandi. Samkvæmt tölum frá ríkislögreglustjóra er lögreglan kölluð út tvisvar til þrisvar dag hvern vegna heimilisófriðar, alls yfir sjö þúsund sinnum undanfarin fimm ár. Í yfir fimmtán hundruð tilfellum var ofbeldi beitt. Þrír fjórðu hlutar ofbeldisfólksins voru karlar og fjórð- ungur konur. Áfengi og fíkniefni komu við sögu í stórum hluta tilvika. Oft fylgja ofbeldinu grófar hótanir og eignaspjöll. Iðulega verða börn vitni að ofbeldinu. „Oft eru það börnin sjálf sem þurfa að hringja. Þetta getur verið andlegt ofbeldi, öskur og hótanir. Því miður eru þarna líka dæmi um að heimilið er rústir einar, börnin í áfalli og kannski móðir sem þarf að flytja á slysadeild,“ segir Ragna Björg Guðbrandsdóttir, félagsráðgjafi á Barnaverndarstofu. Hún hefur umsjón með tilraunaverkefni sem snýst um að veita börnum sem verða vitni að heimilisofbeldi sálgæzlu. Heimilisofbeldi er þjóðfélagsböl og hefur verið alltof lengi. Að stórum hluta er það kynbundið ofbeldi, þar sem karlar neyta aflsmunar og yfirburðastöðu gagnvart konum. Lengi vel var litið á slíkt sem nokk- urs konar einkamál, sem lögreglan eða dómskerfið ætti ekki að skipta sér of mikið af. Það viðhorf hefur sem betur fer breytzt og lagaúrræði til að stöðva ofbeldið og koma lögum yfir gerendurna hafa verið styrkt. Mikið vantar þó upp á að þolendunum sé sinnt sem skyldi og gerend- unum hjálpað að finna aðrar leiðir en ofbeldi til að leysa úr ágreiningi. Í nokkur ár hefur verið starfrækt meðferð fyrir ofbeldismenn undir heitinu Karlar til ábyrgðar. Í síðustu viku var sagt frá góðum árangri þess verkefnis; flestir karlar sem gangast undir meðferðina hætta ofbeldinu strax við upphaf hennar. Þeir vilja líka sjálfir leita sér hjálpar; hina sem réttlæta það fyrir sjálfum sér að það megi berja konur sjá sálfræðingarnir ekki, sagði Einar Gylfi Jónsson, annar umsjónarmaður meðferðarinnar, hér í blaðinu. Þetta meðferðarúrræði hefur hins vegar frá upphafi verið fjársvelt. Það takmarkast til dæmis að mestu leyti við höfuðborgarsvæðið þótt auðvitað sé vandamálið að finna um allt land. Í ársskýrslu verkefnisins segir að nauðsynlegt sé að þróa verkefnið áfram og „auka þjónustu við landsbyggðina, auka þjónustu við nýbúa og bjóða konum sem beita ofbeldi á heimili upp á meðferð.“ Tilraunaverkefni Barnaverndarstofu, sem er rekið í samstarfi við barnaverndarnefndir og lögregluna, lýkur um áramót að óbreyttu. Ragna Guðbrandsdóttir sagði í samtali við Fréttablaðið í gær að reynslan af verkefninu væri hins vegar góð. Ofbeldið á heimilinu hætti þannig yfirleitt. „Það virðist vera að þegar fókusinn er settur á börnin sem verða vitni að svona átökum, og hvaða áhrif ofbeldið hefur á þau, að þá hugsi fólk sinn gang,“ segir hún. Það væri auðvitað æskilegast að við gætum útrýmt heimilisofbeld- inu og upprætt þau viðhorf og hugsunarhátt sem liggja að baki því. Það verður ekki gert á einum degi. Þótt verkefnin tvö sem hér voru nefnd snúi ekki sízt að afleiðingum ofbeldisins sýnir reynslan líka að þau hafa fyrirbyggjandi áhrif til framtíðar. Það á þess vegna að efla þessa þjónustu og festa hana í sessi. FRÉTTABLAÐIÐ Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík SÍMI: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is FRÉTTASTJÓRAR: Arndís Þorgeirsdóttir arndis@frettabladid.is, Kristján Hjálmarsson, kristjan@frettabladid.is og Trausti Hafliðason trausti@frettabladid.is HELGAREFNI: Sigríður Björg Tómasdóttir, ritstjórnarfulltrúi, sigridur@frettabladid.is MENNING: Bergsteinn Sigurðsson bergsteinn@frettabladid.is DÆGURMÁL: Kjartan Guðmundsson kjartan@frettabladid.is FÓLK OG SÉRBLÖÐ: Elín Albertsdóttir elin@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is ÍÞRÓTTIR: Sigurður Elvar Þórólfsson seth@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Kolbrún Ingibergsdóttir kolbrun@frettabladid.is ÚTGÁFUFÉLAG: 365 miðlar ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Ingibjörg S. Pálmadóttir FORSTJÓRI OG ÚTGÁFUSTJÓRI: Ari Edwald RITSTJÓRI: Ólafur Þ. Stephensen olafur@frettabladid.is AÐSTOÐARRITSTJÓRI: Steinunn Stefánsdóttir steinunn@frettabladid.is Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Issn 1670-3871 greinar@frettabladid.is FRÁ DEGI TIL DAGS HALLDÓR Ólafur Þ. Stephensen olafur@frettabladid.is SKOÐUN Þorsteinn Pálsson skrifar greinar í Fréttablaðið um helgar. Greinar hans eru mjög áþekkar og jafnan þar að finna sömu stefin. Eitt slíkt stef er að VG sé tvísaga í aðildarviðræðunum við ESB; sé fylgjandi aðild innan veggja Stjórnarráðsins en andvígt utandyra. Þjóðin hafi orðið þess vitni, skrifar hann nýlega, þegar ráðherrar VG stóðu „utan veggja Stjórnarráðsins og lýstu því yfir að rétt væri að endurmeta umsókn Íslands vegna óróa í peningamálum á evru svæðinu. Um leið ítrekuðu þeir and- stöðu sína við aðild og upptöku evru. Þetta lýsti grundvallarágreiningi stjórn- arflokkanna í sama máli. Annaðhvort eru ráðherrar VG að segja ósatt sitjandi innan veggja Stjórnarráðsins eða stand- andi utan þeirra.“ Ekki er þetta nú svo. Á fundi ríkis- stjórnarinnar 13. júlí sl. komu samnings- markmið Íslands í peningamálum til umfjöllunar, svo og aftur 21. ágúst eftir þessi svikabrigslaskrif Þorsteins Páls- sonar, sem af hálfu stjórnvalda gegnir trúnaðarstöðu í ESB ferlinu. Hið rétta er að þrír fyrirvarar komu fram á þessum fundum: Varðandi afnám gjaldeyris- hafta; varðandi inngöngu í ERM II gjald- eyrissamstarfið og varðandi upptöku evru. Sá sem ekki vill ganga í ESB er varla áhugasamur um upptöku evru og hélt ég að Þorsteini Pálssyni væri kunnugt um afdráttarlausa afstöðu VG í þeim efnum. VG gerði fyrirvara um málið í heild sinni og hefur frá upphafi haldið því opnu að endurskoða málið ef aðstæður breyttust. Það hafa þær svo sannarlega gert. Samfylkingin hafnaði því í aðdrag- anda stjórnarmyndunar að spyrja þjóðina hvort hún vildi sækja um aðild. En réttur þjóðarinnar verður ekki af henni tekinn endalaust, ekki síst þegar aðstæður breytast. Það stóð aldrei til að draga viðræður á langinn þar til ESB og sambandssinnar hér á landi finna heppi- legri tímapunkt en nú er í augsýn til að ljúka málinu. Samkvæmt skoðanakönnunum er yfir- gnæfandi meirihluti Íslendinga andvígur því að ganga í ESB. Það er ekkert undar- legt því Evrópa logar. Að sjálfsögðu á þjóðin rétt á því að vera spurð hvort hún vilji inn í eldhafið. Það verður að gerast áður en þetta kjörtímabil er úti. Þá verða kaflaskil. ESB og lýðræðisrétturinn ESB-aðild Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra Mest selda bókin á Íslandi 2012 Heilsuréttir fjölskyldunnar 3. PRENTU N KOMIN Í VERSLA NIR! bokafelagid.is Blessaðir lýðskrumararnir Guðmundur Kristjánsson, forstjóri Brims, er ósáttur við lýðskrumara, enda skiljanlegt. Í samtali við Útvegs- blaðið segir hann þá hafa gaman af því að fara á þing og blaðra um hvorki eitt né neitt. „Þetta á líka við um blaða- og fréttamenn og fleiri.“ Ástæða þessara orða Guðmundar er sú að honum sárnar að búið sé að rugla þjóðina með umræðu um eignarhaldið á kvótanum og fisk- inum í sjónum. „Þó útgerðar- fyrirtæki eigi kvóta, á það ekki fiskinn í sjónum, frekar en nokkur annar.“ Bitamunur en ekki fjár Nú er það vissulega satt og rétt hjá Guðmundi að enginn á fiskinn í sjónum, frekar en regndropa him- insins. Hann er hins vegar auðlind og ef Guðmundur fer og veiðir fiskinn getur hann selt hann á markaði. Undirritaður yrði hins vegar kærður fyrir brot á afla- reglum. Einhver mundi segja að í því væri fólgið einhvers konar eignarhald. Eitthvað að á Vestfjörðum Ungt og framtakssamt fólk í Sam- fylkingunni hyggst nú stofna félag ungra jafnaðarmanna á Vestfjörðum. Flóki skal það heita og á að vinna gegn draugasögum um „hina vondu jafnaðarmenn sem vilja leggja svæðið í eyði og skilja ekkert eftir nema sumarhús,“ eins og segir í tilkynningu. Í ljósi þess markmiðs má segja að það sé óheppilegt að stofnfundinn á að halda í Reykja- vík, kannski vegna þess að ungir jafnaðarmenn eru þar um vetur og fyrir vestan á sumrin? kolbeinn@frettabladid.is Heimilisofbeldi er ömurlegt þjóðfélagsböl: Þolendum og gerendum hjálpað

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.