Fréttablaðið - 29.08.2012, Síða 16

Fréttablaðið - 29.08.2012, Síða 16
 | 2 29. ágúst 2012 | miðvikudagur Fróðleiksmolinn Allar markaðsupplýsingar eru aðgengilegar á Dagatal viðskiptalífsins Miðvikudagur 29. ágúst ➜ Gögn tengd áramótastöðu íbúða og sumarhúsa ➜ Vísitala neysluverðs í ágúst 2012 Fimmtudagur 30. ágúst ➜ Nýskráningar og gjaldþrot í júlí 2012 ➜ Vísitala framleiðsluverðs í júlí 2012 ➜ Norræna Öryggisráðstefnan í Hörpu Föstudagur 31. ágúst ➜ Vöruskipti við útlönd janúar-júlí 2012 Mánudagur 3. september ➜ Greiðslujöfnuður – hagtölur SÍ ➜ Erlend staða þjóðarbúsins – hagtölur SÍ ➜ Erlendar skuldir – hagtölur SÍ Þriðjudagur 4. september ➜ Gjaldeyrismarkaður – hagtölur SÍ ➜ Krónumarkaður – hagtölur SÍ ➜ Raungengi – hagtölur SÍ Miðvikudagur 5. september ➜ Fasteignamarkaðurinn eftir landshlutum ➜ Gistinætur og gestakomur á hótelum í júlí 2012 ➜ Vöruskipti við útlönd ➜ Lífeyrissjóðir – hagtölur SÍ Föstudagur 7. september ➜ Nýjar upplýsingar frá Þjóðskrá Íslands ➜ Landsframleiðsla 2011, endur- skoðun ➜ Vísitala launa á 2. ársfj. 2012 ➜ Landsframleiðsla á 2. ársf. 2012 ➜ Efnahagur Seðlabankans – hagtölur SÍ ➜ Úboð ríkisbréfa dagatal viðskiptalífsinsl i i lí i ÍS L E N S K A S IA .I S I C E 5 39 19 0 3 /2 01 1 ER ÞITT FYRIRTÆKI MEÐ SAMNING? Fyrirtæki sem eru með samning við Icelandair njóta þess í hagkvæmari rekstri, betri tímanýtingu og ánægðara starfsfólki. Hlunnindi sem fyrirtækjasamningur veitir: Sérstakur ferðaráðgjafi hefur umsjón með hverju fyrirtæki. Neyðarnúmer sem er opið allan sólarhringinn – alla daga ársins. Afsláttur sem býðst af fargjöldum til áfangastaða Icelandair. Nákvæmt viðskiptayfirlit á vefnum. + Allar nánari upplýsingar á www.icelandair.is/fyrirtaeki eða sendið fyrirspurnir á fyrirtaeki@icelandair.is ECONOMY COMFORT Meiri þægindi, góð vinnuaðstaða, rafmagnsinnstunga fyrir tölvu. Inter Hospita l ity Holding, dóttur félag sænska húsgagna- framleiðandans Ikea sem stað- sett er í Liecthenstein, verður mögulega á meðal eigenda hót- elsins sem fyrirhugað er að rísi við hlið Hörpu, samkvæmt heim- ildum Markaðarins. Félagið er í samstarfi við World Leisure Investment, sem keypti bygg- ingarréttinn á lóðinni við hlið Hörpu, um að fjárfesta í 100 hót- elum víðs vegar um Evrópu. Ein þeirra borga sem koma til greina er Reykjavík. Pétur J. Eiríksson, stjórnarfor- maður Portusar, segist geta stað- fest að Inter Hospitality Holding, dótturfélag Inter Ikea Holding, sé í samstarfi við World Leisure í þessu verkefni. „Ég get hins vegar ekki staðfest að þeir verði inni í verkefninu í Reykjavík,“ segir Pétur. Spurður hvort Íslendingar séu á meðal eigenda World Leis- ure segir Pétur svo ekki vera, að minnsta kosti ekki enn sem komið er. Sumarið 2011 var opnað fyrir tilboð í lóð undir hótel við hlið Hörpu. Þá bárust sex tilboð og var tveimur fyrirtækjum, sem áttu hæstu tilboðin, boðið í frekari viðræður. Í fyrrahaust var síðan samið við svissneska félagið World Leisure Invest- ment, sem hafði boðið 1,8 millj- arða króna í byggingarréttinn, um að byggja hótelið. Öll fram- kvæmdin átti síðan að kosta um átta milljarða króna. Lítið er vitað um World Leisure annað en að það er vett vangur þar sem fjölmargir fjárfestar leggja sameiginlega fram fé til fjárfestinga í hótel- eða ferða- iðnaði. Samkvæmt upplýsingum Markaðarins eru efnaðir einstak- lingar frá Bandaríkjunum, Bret- landi og Persaflóa á meðal þeirra sem leggja fé inn í félagið. Þeir fjárfestar sem standa að World Leisure nýta vettvanginn til að finna fjárfestingatækifæri, annast skipulag framkvæmd- arinnar og til að sinna annarri þróunar vinnu. Í kjölfarið skipta þeir fjárfestingunum á milli sín og fá oft á tíðum inn aðra sam- starfsaðila. Í þessu verkefni hefur samstarfsaðili World Leis- ure verið Marriot-hótelkeðjan. Þrátt fyrir að tæpt ár sé liðið frá því að samið var við World Leisure hefur enn ekki verið gengið formlega frá samningum við félagið. Opinbera skýringin er sú að í raun sé búið að klára alla þá vinnu, en að undirrit- un samninga klárist ekki vegna ýmissa tæknilegra aðstæðna. Heimildir Markaðarins herma að ástæða tafanna sé innkoma Inter Hospitality Holding, dóttur- félags Ikea, inn í samstarfið. Í kjölfar þess að það gerðist var ráðist í að stofna nýtt félag utan um ýmsar fjárfestingar í Evrópu með nýja samstarfsaðilanum og Marriot-hótelkeðjunni, enda lýsti Ikea því yfir fyrr í ágústmánuði að það væri stefna sam stæðunnar að byggja yfir 100 hótel í Evrópu á næstu árum. Alls áætlar Ikea að setja um 150 milljarða króna í þetta verkefni. Ódýrt á að vera að gista á þessum hótelum og stefnt er að því að þau verði öll miðsvæðis í helstu borgum Evr- ópu. Ikea ætlar ekki að reka hót- elin sjálf og þau verða ekki rekin undir nafni sænska húsgagna- framleiðandans. Samkvæmt heimildum Mark- aðarins var það stór steinn í götu framgangs verkefnisins við hlið Hörpu að Ísland er ekki á lista yfir lönd sem Ikea heimilar fé- lögum í sinni eigu að fjárfesta í. Vegna þessa hefur enn ekki verið ákveðið hvort Ikea taki þátt í Hörpuhótelinu. Ikea gæti komið að hóteli við Hörpu Dótturfélag Ikea er í samstarfi við World Leisure Investment, sem á byggingarrétt- inn að hóteli við hlið Hörpu, um að byggja 100 hótel í Evrópu. Eitt þeirra gæti risið á Íslandi ef Ikea leyfir dótturfélaginu að fjárfesta hérlendis. HARPA Hótelið sem um ræðir á aö rísa við hlið Hörpu. Bygging hótelsins er talin forsenda þess að ráðstefnuhluti Hörpunnar geti skilað viðunandi tekjum til framtíðar. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA HÓTEL LYKILL AÐ RÁÐSTEFNUTEKJUM FERÐAÞJÓNUSTA Þórður Snær Júlíusson | thordur@frettabladid.is Í REKSTRARÁÆTLUN fyrir Hörpu sem lögð var fram í febrúar 2011 voru forsvarsmenn rekstrarins afar bjartsýnir á ráðstefnuhald sem tekjuleið, þrátt fyrir að hótel væri ekki risið við hlið hússins á fyrstu árum starfsemi þess. Þar segir meðal annars að „fyrstu árin mun Harpa ekki vera með hótel, sem takmarkar möguleika hússins að vinna markaðshlutdeild þó að það séu hótel í nágrenninu. Hér verður því gert ráð fyrir að Harpa nái 45% markaðs- hlutdeild árið 2012 eða rúmlega 52 þúsund manns. Gert er ráð fyrir að markaðshlutdeild Hörpu aukist úr 45% í 52% á þremur árum um leið og markaðurinn stækkar vegna fjölgunar ferðamanna og þar sem ráðstefnum vegna fagfélaga fjölgar […] Reiknað er með að hótelið verði komið í notkun síðla árs 2013.“ Í dag er talið að hótelið muni taka til starfa á árinu 2015. Vert er að taka fram að samkvæmt áætluninni átti ráðstefnuhald að skila Hörpu 216,4 milljónum króna í tekjur á þessu ári. Í úttekt KPMG á stjórnun og rekstri Hörpu, sem gerð var nýverið, er áætlað að tekjurnar verði hins vegar 130,7 milljónir króna, eða 85,7 milljónum minna en lagt var upp með. Lengst af var atvinnuleysi á Íslandi hærra meðal kvenna en karla en við hrun íslensku bankanna snerist dæmið við. Atvinnuleysi meðal kvenna fór mest upp í 8 % en var um tíma vel yfir 10% hjá körlum. Það er einnig forvitnilegt að frá hruni hafa sveiflur í atvinnuleysi verið mun meiri meðal karla en kvenna. Þekkt er að atvinnuleysi er almennt lægra á sumrin, en sú árstíðabundna sveifla kemur mun skýrar fram hjá körlum, eins og sjá má á myndritinu hér að ofan. Atvinnuleysi karla og kvenna frá aldamótum 2000 2002 2004 2006 2008 2010 2012 10 8 6 4 2 0 ■ Karlar ■ Konur HTTP://DATA.IS/U8HRRI % Konur virðast hins vegar líklegri en karlmenn til að vera í hlutastarfi. Þriðjungur starfandi kvenna var í hlutastarfi í júlí 2012 en einungis áttundi hver karlmaður. Starfandi karlmenn eftir starfshlutfalli STARFANDI Í FULLU STARFI 12,35% 87,65% HTTP://DATA.IS/U8NHCV STARFANDI Í HLUTASTARFI Starfandi konur eftir starfshlutfalli STARFANDI Í FULLU STARFI STARFANDI Í HLUTASTARFI 65,78% 34,22% HTTP://DATA.IS/U8NMWZ Starfandi eftir kyni og starfshlutfalli

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.