Fréttablaðið - 29.08.2012, Blaðsíða 18
| 4 29. ágúst 2012 | miðvikudagur
Repúblikanaflokkurinn, annar af
stóru flokkunum tveimur í Banda-
ríkjunum, hyggst kalla eftir því
í stefnuskrá sinni fyrir forseta-
kosningarnar í haust að stofnuð
verði nefnd til að skoða tengingu
Bandaríkjadals við gullfót.
Dalurinn var skiptanlegur í til-
tekið magn gulls til ársins 1971
þótt hann hafi ekki verið á eigin-
legum gullfæti síðan á 19. öld.
Ekkert ríki í heiminum tengir
gjaldmiðill sinn gulli í dag en gull-
fótur er almennt talinn skað legur
fyrir hagvöxt og stöðugleika.
Í drögum að stefnuskrá Repú-
blikanaflokksins, sem verður
samþykkt á landsfundi flokksins
sem hófst á mánudag, er einnig
kallað eftir því að þingið hafi
eftirlit með peningamálastefnu
bandaríska Seðlabankans. Síðustu
áratugi hefur seðlabankinn verið
sjálfstæður frá afskiptum stjórn-
málamanna þótt forseti Banda-
ríkjanna skipi yfirmenn bankans
sem þingið þarf jafnframt að sam-
þykkja. - mþl
Repúblikanar vilja breyta
peningastefnu Bandaríkjanna:
Repúblikanar
skoða gullfót
undir dalinn
MITT ROMNEY Forsetaframbjóðandi
repúblikana.
Reykjanesbær hefur greitt upp öll erlend lán
og allar skammtímaskuldir bæjarsjóðs með
sölu á svokölluðu Magma-skuldabréfi á 6,3
milljarða króna. Bréfið féll í hlut bæjarins
við söluna á hlut í HS Orku til Geysis Green
Energy á sínum tíma.
Kaupandi skuldabréfsins er fjárfestinga-
sjóðurinn ORK, sem er rekinn af rekstrar-
félaginu Virðingu, en margir lífeyrissjóðir
eru meðal helstu eigenda og viðskiptavina
Virðingar. Kaupverðið var 6,3 milljarðar,
sem Árni Sigfússon, bæjarstjóri Reykjanes-
bæjar, segir að sé í samræmi við bókfært
virði skuldabréfsins.
ORK hefur þegar greitt bæjarsjóði 3,5
milljarða króna í peningum og 500 milljónir
í markaðsskuldabréfum, en eftirstöðvarnar
verða gerðar upp eftir fimm ár, þegar Al-
terra, áður Magma, gerir bréfið upp.
Í tilkynningu frá Reykjanesbæ kemur
fram að kaupverðinu verði varið til upp-
greiðslu skulda. 800 milljónir fara í að
greiða upp erlent lán bæjarins við þýska
bankann Depfa, 870 milljónir fara í rekstur
Reykjaneshafnar, sem hefur staðið höllum
fæti um árabil, 700 milljónir fara í að ganga
frá uppgjöri vegna endurskipulagningar á
Eignar haldsfélaginu Fasteign og 840 millj-
ónir fara í að greiða fjármagnstekjuskatt
sem var útistandandi vegna sölunnar á
hlutnum í HS Orku.
Þar að auki verða greidd upp öll skamm-
tímalán við bankastofnanir og skammtíma-
skuldir bæjarins.
„Þetta er mikið ánægjuefni þar sem við
erum að greiða allar bankaskuldir bæjar-
sjóðs og útistandandi reikninga sem er
mjög jákvætt,“ segir Árni í samtali við
Markaðinn. Hann bætir því við að með ofan-
greindu og sölu á 15% hlut bæjarins í HS
Veitum fyrir um 1,3 milljarða, muni bærinn
lækka skuldir og skuldbindingar sínar um
átta milljarða á þessu ári.
Reykjanesbær er í ábyrgðum fyrir skuldir
Reykjaneshafnar sem námu um 5,7 millj-
örðum króna í lok síðasta árs. 557 milljóna
tap varð á rekstri hafnarinnar á síðasta ári.
Við endurskipulagningu skulda hafn-
arinnar í fyrra skuldbatt bærinn sig til
þess að ef kæmi til sölu á Magma-bréfinu
myndi fjórðungur af útborgun renna til
hafnarinnar í formi víkjandi láns, eins og
nú verður gert.
Árni segir að engar skuldbindingar hafi
hins vegar fylgt kaupunum á skuldabréfinu.
Í ársreikningi Reykjanesbæjar fyrir árið
2011 kemur fram að beinar skuldir bæj-
arsjóðs hafi verið 25,8 milljarðar í árs-
lok, en heildarskuldir samstæðunnar, þar
sem Reykjaneshöfn fellur undir, voru 41,2
milljarðar.
Í samantekt bæjarins frá vori 2011 eru
tíundaðar seljanlegar eignir A-hluta bæjar-
sjóðs. Þar voru, fyrir utan Magma-bréfið
og 2,5 milljarða króna innistæðu í Lands-
bankanum, hlutur í HS veitum, bókfærður á
6,5 milljarða, og land og auðlindir á Reykja-
nesi sem höfðu verið boðin ríkissjóði á 1,8
milljarða. - þj
Reykjanesbær selur Magma-
skuldabréf fyrir 6,3 milljarða
Andvirðið af sölu Reykjanesbæjar á Magma-skuldabréfinu fer í að greiða niður skuldir bæjarins og bæta
stöðu Reykjaneshafnar. Um fimm milljarðar króna staðgreiddir.
Vodafone hagnaðist um 206 millj-
ónir króna á fyrstu sex mánuðum
ársins. Hagnaðurinn jókst um
150 milljónir króna á milli ára.
Hagnaður félagsins fyrir skatta,
fjármagnsliði og afskriftir
(EBITDA) var tæplega 1,4 millj-
arðar króna sem er um fimmtungi
meira en Vodafone hagnaðist um
á sama tímabili í fyrra.
Heildartekjur Vodafone jukust
um fimm prósent á milli ára og
voru um 6,5 milljarðar króna.
Aukningin var mest í sjónvarps-
þjónustu þar sem hún nam 19
prósentum. Að sama skapi jókst
rekstrarkostnaður um fimm pró-
sent.
Vodafone var með 29,3 prósenta
markaðshlutdeild á farsímamark-
aði í fyrra. Félagið stefnir að því
að verða skráð í Kauphöll Íslands
á fjórða ársfjórðungi 2012. - þsj
Mikil aukning í tekjum af
sjónvarpsþjónustu:
Vodafone
hagnast um
206 milljónir
MP banki stefnir að því að sækja
sér aukið hlutafé á komandi vetri
til að geta haldið vexti sínum
áfram. Eignir bankans hafa aukist
hratt og samhliða hefur eiginfjár-
hlutfall hans lækkað. Um mitt
þetta ár var það orðið 14,3 pró-
sent en eigið fé hans er 5,2 millj-
arðar króna.
Sigurður Atli Jónsson, forstjóri
MP Banka, staðfestir að hlutafjár-
aukning verði skoðuð. „ Hlutirnir
eru að ganga vel hjá bankanum
og okkur er að takast mjög vel að
auka viðskiptamagn. Samhliða
hefur komið að því að sá eiginfjár-
grunnur sem við erum með í dag
fer að verða takmarkandi þáttur.
Um þessar mundir er því verið að
fara yfir frekari útfærslur á því
að auka eiginfjárgrunn bankans
til að geta haldið áfram á þessari
vaxtarbraut. Á meðal þess sem
verður skoðað er að sækja okkur
nýtt hlutafé.“
Að sögn Sigurðar Atla myndi
það gerast í vetur. Spurður hvort
einvörðungu verði leitað inn í nú-
verandi hluthafahóp eftir þeirri
innspýtingu segir hann að slíkt
verði skoðað með núverandi hlut-
höfum. „Það yrði síðan ákvörðun
stjórnar og hluthafafundar ef af
yrði. En við höfum ekkert skoðað
það frekar varðandi aðkomu fjár-
festa sem eru ekki í hluthafa-
hópnum í dag.“
Þegar nýir hluthafar, undir for-
ystu Skúla Mogensen, tóku yfir
MP banka í fyrra var það yfir-
lýst markmið þeirra að skrá hann
á markað innan þriggja ára. Sig-
urður Atli segir stjórnendur
bankans enn vera að vinna sam-
kvæmt því markmiði.
MP banki birti hálfsársuppgjör
sitt í gær. Bankinn hagnaðist um
119 milljónir króna á tímabilinu,
sem er verulegur við snúningur
frá 681 milljóna króna tapi á
sama tímabili í fyrra. Rekstrar-
tölur milli ára eru þó ekki saman-
burðarhæfar, enda tóku nýir eig-
endur við bankanum í apríl í
fyrra eftir að hafa keypt íslenskar
og litháískar eignir gamla MP
banka, og lagt nýja bankanum til
5,5 milljarða króna í nýtt hlutafé.
Alls námu eignir bankans um
71,8 milljörðum króna um mitt
þetta ár og jukust um 43 prósent á
milli ára. Handbært fé MP banka
hefur einnig aukist mjög hratt.
Í lok þriðja ársfjórðungs 2011
var það 15,8 milljarðar króna en
var 28,6 milljarðar króna í lok
júní síðastliðins. Á sama tíma
lækkuðu eignir bankans í verð-
tryggðum bréfum um 7,5 millj-
arða króna.
Helstu skýringar á vexti
bankans er að finna í því að útlán
hans hafa aukist úr 7,6 milljörðum
króna í 20,7 milljarða króna á einu
ári. Innlán og peningamarkaðs-
innlán jukust á sama tíma um 39
prósent og eru nú 51,1 milljarður
króna.
Bæði þóknana- og vaxtatekjur
MP banka hafa vaxið mikið milli
ára. Þóknanatekjur bankans
voru 72 milljónir króna um mitt
síðasta ár en 623 milljónir króna
í lok júní 2012. Vaxtatekjur bank-
ans jukust úr því að vera nei-
kvæðar um 45 milljónir króna í
að vera jákvæðar um 851 milljón
króna á sama tímabili.
Afskriftir bankans af út lánum
voru umfram rekstaráætlanir,
eða 254 milljónir króna. Í til-
kynningu sem fylgdi uppgjörinu
segir að þær skýrist „af sérstakri
niður færslu vegna einnar tiltek-
innar eignar sem nýir hluthafar
tóku yfir frá fyrri eigendum sam-
fara hlutafjáraukningu í fyrra.
Án hennar væri afkoma bank-
ans um 17 milljónum króna betri“.
MP banki skoðar að sækja
nýtt hlutafé á næstunni
MP banki hagnaðist um 119 milljónir króna eftir skatta á fyrri hluta ársins. Eignir bankans hafa vaxið mjög hratt
og eiginfjárgrunnur dugar ekki lengur. Forstjóri bankans segir hlutafjáraukningu líklega.
FJÁRMÁLAFYRIRTÆKI
Þórður Snær Júlíusson | thordur@frettabladid.is
Stóru bankarnir þrír, Landsbankinn, Arion banki og Íslandsbanki, munu
birta hálfsársuppgjör sín í lok þessarar viku. Landsbankinn og Íslandsbanki
á fimmtudag en Arion banki á föstudag. Samanlagt högnuðust þeir um 17,8
milljarða króna á fyrstu þremur mánuðum ársins 2012. Íslenska ríkið er
stærsti eigandi Landsbankans og á hlut í báðum hinum. MP banki er því eini
banki landsins sem er að fullu í eigu einkaaðila. Stærsti eigandi hans er Títan
B ehf., eignarhaldsfélag í eigu Skúla Mogensen, með 17,3 prósenta hlut.
AÐRIR BANKAR BIRTA Í LOK VIKUNNAR
FORSTJÓRI Sigurður Atli Jónsson, forstjóri MP banka, segir að sá eiginfjárgrunnur sem bankinn sé með í dag fari að verða takmarkandi
þáttur í vexti hans.